Morgunblaðið - 11.03.2021, Page 63
ÍÞRÓTTIR 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2021
Landsliðsþjálfarar Ísland í
fótbolta eru ekki í öfundsverðri
stöðu þessa dagana. Arnar Þór
Viðarsson er á leið inn í sitt fyrsta
verkefni sem landsliðsþjálfari Ís-
lands í lok mars þegar undan-
keppni HM 2022 hefst. Þá stýrir
Davíð Snorri Jónasson íslenska
U21-árs landsliðinu í fyrsta sinn í
lokakeppni EM 2021 í Ungverja-
landi og Slóveníu.
Í dag eru nákvæmlega fjórtán
dagar í að bæði lið hefji leik, ís-
lenska A-landsliðið í Duisburg þar
sem það mætir Þýskalandi, og
U21-árs landsliðið mætir Rúss-
landi í Györ. Þrátt fyrir að einungis
fjórtán dagar séu í verkefnin hafa
þjálfararnir ekki minnstu hugmynd
um hvernig lokahópur þeirra fyrir
verkefnin mun líta út.
„Við erum ekki eina þjóðin sem
er í þessari stöðu,“ er frasi sem
heyrist mjög reglulega en á sama
tíma telja flestar aðrar þjóðir ekki
rúmlega 350.000 manns. Það er
ekki eins og knattspyrnumenn
vaxi á trjánum á Íslandi þótt við
höfum vissulega staðið okkur frá-
bærlega í að búa til frambærilega
og góða leikmenn undanfarin ár.
Það verður mjög áhugavert að
sjá hvað erlend félagslið gera
varðandi leikmenn sína fyrir kom-
andi landsleikjahlé. Kannski verð-
ur núverandi gluggi byrjun á ein-
hverri þróun sem verður erfitt að
stoppa þegar félagslið byrja að
meina leikmönnum sínum að fara í
landsliðsverkefni en vonandi ekki.
Fyrir mitt leyti hefur UEFA haldið
illa á spilunum í samskiptum sín-
um við félagslið í Evrópu og sam-
bandið gæti fengið það í bakið
núna.
Af hverju ættu félagslið í Evr-
ópu ekki að hugsa um sjálf sig
þegar UEFA hefur gert lítið annað
undanfarin ár en að auka álag á
landsliðsmenn með heimskulegri
Þjóðadeild, þriggja leikja landsliðs-
gluggum og eiginhagsmuna
rekstrarfyrirkomulagi.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
SVÍÞJÓÐ
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Spennandi tímar eru fram undan
hjá handknattleikskonunni Ásdísi
Þóru Ágústsdóttur en hún er á leið
í atvinnumennsku eftir tímabilið.
Ásdís, sem er nýorðin 19 ára
gömul, er uppalin hjá Val á Hlíð-
arenda en hún mun ganga til liðs
við sænska úrvalsdeildarfélagið
Lugi frá háskólabænum Lundi í
Suður-Svíþjóð að tímabilinu loknu.
Ásdís hefur leikið með öllum
yngri landsliðum Íslands en hún
skrifaði undir tveggja ára láns-
samning við sænska félagið sem sit-
ur sem stendur í níunda sæti
sænsku úrvalsdeildarinnar með 17
stig en tólf lið leika í deildinni.
„Ég er mjög spennt og það verð-
ur gaman að reyna fyrir sér í Sví-
þjóð,“ sagði Ásdís í samtali við
Morgunblaðið.
Hafa fylgst lengi með
„Ég heyrði fyrst af áhuga Lugi
fyrir um mánuði síðan og hlutirnir
gengu nokkuð hratt fyrir sig eftir
það. Forráðamenn Lugi hafa fylgst
vel með mér síðan 2019 en þeir
fylgdust með mér á EM U17-ára í
Lignano á Ítalíu, sumarið 2019, og
eins þegar Valur lék gegn sænska
liðinu Skuru í fyrstu umferð EHF-
bikars kvenna haustið 2019.
Ég skrifaði undir langtímasamn-
ing við Val um áramótin þannig að
ég var búin að sjá það fyrir mér að
vera á Íslandi og spila með Val
næstu árin. Þegar þetta kom upp
þá gat ég ekki hafnað því enda er
Lugi mjög flottur klúbbur í Sví-
þjóð,“ sagði Ásdís.
Margir ungir leikmenn
Ásdís hefur verið í stóru hlut-
verki í Valsliðinu undanfarin ár
þrátt fyrir að vera 19 ára gömul.
„Hvort maður sé tilbúinn að
standa á eigin fótum þarf bara að
koma í ljós en ég tel mig vera til-
búna að taka þetta skref í hand-
boltanum. Ég skrifaði undir láns-
samning þannig að ég get komið
aftur heim eftir ár ef þetta verður
eitthvert bíó þarna úti en mark-
miðið er að vera í Svíþjóð í alla
vega tvö ár.
Ég hef ekki fylgst vel með
sænsku deildinni í gegnum tíðina
en það breytist núna. Ég vissi ekki
mikið um klúbbinn þegar ég heyrði
fyrst af áhuga þeirra en Hafdís Re-
nötudóttur lék með liðinu og talaði
vel um félagið.
Eins þá hef ég heyrt að þetta sé
gott félag til þess að taka sín fyrstu
skref í atvinnumennsku. Það er frá-
bær umgjörð þarna með frábæra
leikmenn og þjálfararnir eru mjög
góðir þannig að þetta var í raun of
gott til að vera satt.“
Faðir Ásdísar, Ágúst Jóhanns-
son, hefur þjálfað hana á Hlíð-
arenda undanfarin ár.
„Það hefur alltaf verið markmið
hjá mér að komast út að spila í at-
vinnumennsku og gera sig gildandi
í landsliðinu. Þetta er mjög gott
skref fyrir mig persónulega og leik-
menn liðsins eru flestir á sama
aldri og ég sem er mjög jákvætt.
Liðið er ungt og það hentar mér
vel.
Það verður að sjálfsögðu skrítið
að spila fyrir annan þjálfara en
pabba en ég held að ég hafi bara
gott af því. Hann studdi mig alla
leið í þessu og gaf mér góð ráð. Við
vorum í raun jafn spennt fyrir
þessu en hann vill eflaust ekki
missa mig úr liðinu þótt hann hafi
lítið minnst á það.“
Geta allir unnið alla
Úrvalsdeild kvenna hér á Íslandi
hefur sjaldan verið jafn spennandi
og í vetur en Valur er sem stendur
í þriðja sæti deildarinnar með 15
stig, rétt á eftir KA/Þór og Fram.
„Það væri draumur að enda
tímabilið á bikar og það er nóg eft-
ir. Deildin er mjög sterk og hefur
eflaust aldrei verið svona sterk áð-
ur. Hún er mjög jöfn og það hefur
sýnt sig á leiktíðinni að það geta
allir unnið alla ef svo ber undir.
Ég er búin að skrifa undir í Sví-
þjóð og núna er markmiðið að ein-
beita sér fyrst og fremst að því að
standa sig vel með Valsliðinu í þeim
leikjum sem eftir eru. Við settum
okkur markmið fyrir tímabilið sem
við ætlum okkur að ná,“ bætti Ás-
dís við í samtali við Morgunblaðið.
Við pabbi erum jafn spennt
Ásdís Þóra yfirgefur Val eftir tímabilið og fer í atvinnumennsku hjá Lugi í
Svíþjóð Tveggja ára lánssamningur Vill fyrst ná markmiðunum með Val
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flytur Ásdís Þóra Ágústsdóttir yfirgefur Val í sumar og verður leikmaður Lugi í Svíþjóð næstu tvö árin.
Allt bendir til þess að bandaríska
knattspyrnufélagið New England
Revolution kaupi landsliðsmanninn
Arnór Ingva Traustason af sænsku
meisturunum Malmö, samkvæmt
frétt Fotboll Direkt í gær. Þar var
sagt að einungis formsatriði væru
eftir í samningum félaganna um
kaupverð og í samningagerð Arn-
órs við New England. Liðið hefur
aðsetur í Foxborough í Massachu-
setts og komst í fjögurra liða úrslit
um bandaríska meistaratitilinn á
síðasta ári. Keppni í MLS-deildinni
á að hefjast 17. apríl.
Arnór á leið til
New England
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
MLS Arnór Ingvi Traustason fer
líklega vestur um haf.
Hilmar Snær Örvarsson hafnaði í
sjötta sæti í stórsvigi á Evrópu-
mótaröð IPC, Alþjóðaíþrótta-
sambands fatlaðra, í Malbun í
Liechtenstein í gær. Hilmar var
fimmti eftir fyrri ferðina en lauk
keppni í sjötta sæti eftir að hafa
verið með fjórum sekúndum lakari
tíma í seinni ferðinni. Arthur
Bauchet frá Frakklandi vann bæði
stórsvigsmótin.
Í dag og á morgun er keppt í
svigi. Í dag er keppt á landsmóti
Liechtenstein og á morgun á Evr-
ópumótaröðinni.
Hilmar sjötti í
Liechtenstein
Ljósmynd/ÍF
Öflugur Hilmar Snær Örvarsson er
í fremstu röð í Evrópu.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
HS Orkuhöll: Grindavík – Þór Þ ......... 18.15
Hertz-hellir: ÍR – Höttur..................... 19.15
Blue-höll: Keflavík – Haukar .............. 19.15
DHL-höll: KR – Valur ......................... 20.15
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
Dalhús: Fjölnir – Skallagrímur........... 18.30
Smárinn: Breiðablik – Snæfell ................. 20
HANDKNATTLEIKUR
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Hertz-höll: Grótta – HK U .................. 19.30
Framhús: Fram U – Valur U .............. 19.30
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
Kórinn: HK – KA/Þór ............................... 18
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
KR-völlur: KR – FH ................................. 17
Í KVÖLD!
Dominos-deild kvenna
Haukar – KR...................................... (70:60)
Valur – Keflavík ................................. (42:28)
Leikjunum var ekki lokið þegar blaðið
fór í prentun. Sjá mbl.is/sport/korfubolti.
Evrópubikarinn
16-liða úrslit, H-riðill:
Andorra – Mornar Bar ....................... 89:61
Haukur Helgi Pálsson skoraði 13 stig
fyrir Andorra, tók 4 fráköst og átti 2 stoð-
sendingar á 20 mínútum.
Andorra beið í gærkvöld úrslita í öðrum
leik um hvort liðið kæmist í 8-liða úrslit.
Meistaradeild Evrópu
16-liða úrslit, L-riðill:
Zaragoza – Bamberg .......................... 77:65
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 4 stig
fyrir Zaragoza og tók 3 fráköst á 15 mín-
útum.
Zaragoza 2/0, Nymburk 2/0, Bamberg
0/2, Sassari 0/2.
Manchester City rétti sig af eftir
tapið gegn grönnum sínum í Man-
chester United um síðustu helgi og
náði fjórtán stiga forystu á ný í
ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu
í gærkvöld.
City tók á móti Southampton og
vann öruggan sigur, 5:2, eftir að
staðan var 3:1 í hálfleik.
Kevin De Bruyne og Riyad Ma-
hrez skoruðu tvö mörk hvor fyrir
meistaraefnin og Ilkay Gündogan
eitt.
James Word-Prowse hleypti
spennu í leikinn um tíma í fyrri
hálfleik þegar hann jafnaði metin í
1:1 úr vítaspyrnu. Che Adams skor-
aði seinna mark Southampton úr
vítaspyrnu og minnkaði þá muninn
í 4:2.
Markaveisla City-manna heldur
áfram en þetta er í fimmta sinn í
síðustu átta leikjum í deildinni sem
liðið skorar þrjú mörk eða meira.
Það er mikill viðsnúningur eftir að
markaþurrð hrjáði liðið framan af
tímabilinu. Nú er það nánast
óstöðvandi. vs@mbl.is
AFP
Fagnað Kevin De Bruyne og Riyad Mahrez skoruðu tvö mörk hvor.
Náðu fjórtán stiga
forskoti á nýjan leik