Fréttablaðið - 09.09.2021, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 09.09.2021, Blaðsíða 10
Ólafur Már Björnsson augnlæknir og ljósmyndari. Tómas Guðbjartsson hjartaskurð­ læknir og náttúru­ unnandi. Askja í Dyngjufjöllum lætur engan ósnortinn sem hana heimsækir, enda með stórkostlegustu náttúruperlum Íslands. Óvíða á Íslandi hafa náttúruöflin verið jafn virk, sem sést á fjölmörgum eldgosum síðastliðin 150 ár og á einu stærsta berghlaupi á nútíma sumarið 2014. Á síðustu mánuðum hefur land verið að rísa að nýju í Öskju, sem gæti verið vísbending um að hún sé enn og aftur að rumska. Vonandi verða þær ræskingar ekki eins og 1875, en þá tæmdist kvikuhólf undir Dyngju- fjöllum skyndilega. Við það myndaðist 11 ferkílómetra stór sigdæld sem varð 220 m djúpt Öskjuvatn. Örstutt frá Öskjuvatni varð til í sama gosi sprengigígurinn Víti, en á örfáum klukkustundum náði hann að spúa ljós- brúnni ösku yfir stóran hluta Austurlands og barst hún alla leið til Skandinavíu. Afleiðingarnar urðu alvarlegur uppskerubrestur í sveitum Norðausturlands. Síðan hafa orðið mörg gos í Öskju en smærri í sniðum. Síðasta gosið var í gjallgígum Vikraborga árið 1961 og rann frá þeim biksvart Vikrahraun í tilkomumiklu gosi. Enn minni gos urðu á árunum 1921-1930, en í einu þeirra 1926 myndað- ist lítil eyja í Öskjuvatni sem fékk nafnið Askur og í öðru gosi 1921 rann lítið hraun sem fékk nafnið Bátshraun. Mývatnsbændur höfðu sumarið áður rogast með bát inn að Öskjuvatni til að rannsaka það, en þegar þeir komu þangað ári síðar var hann horfinn undir hraun. Tilkomumest af nýlegum hraunum í Öskju er þó Mývetningahraun frá 1922, en það er suður af vatninu og þekur 2,2 ferkílómetra. Sérkennilega rauður litur þess stingur í stúf við svartan öskjubotninn og heiðblátt Öskjuvatn, sem víða skartar hvítum jarðhita útfellingum við ströndina. Þarna eru greinileg ummerki áðurnefnds berghlaups fyrir átta árum síðan, en þá losnaði 800 m breið spilda úr norðaustanverðum Dyngjufjöllum og steyptist út í vatnið. Olli hún allt að 30 m hárri f lóð- bylgju sem skall á bökkum vatnsins og teygði vatn sig hundruð metra upp á flatlendi Öskju. Þótt Mývetningahraun teljist utan alfaraleiða er klár- lega vert að gera sér leið þangað og berja augum rautt hraungólfið. Flóðbylgjan hefur slípað það til eins og flísagólf og svört innskotin minna á fúgur. Ekið er frá skála Ferðafélags Akureyrar í Drekagili að bílastæði við Vikraborgir. Þaðan er fylgt stikaðri gönguleið að Víti og Öskjuvatni og síðan haldið áfram með fram vatninu vestanverðu að Mývetningahrauni, tæplega 20 km báðar leiðir. ■ Rauða gólfið í Öskju Rautt hraungólf Mývetningahrauns tekur sig vel út með brúnaþungum Þorvaldstindi (1.510 m) í baksýn, en hann er hæsti tindur Dyngjufjalla. MYNDIR/TG Litafegurðin við suðurströnd Öskjuvatns er með ólíkindum, og má ekki síst þakka rauðlituðu Mývetningahrauni. Rautt hraun- gólfið minnir á rauðlitaðar gólfflisar sem eru skreyttar svörtum inn- skotum sem minna á fúgur. 10 Fréttir 9. september 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.