Fréttablaðið - 09.09.2021, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 09.09.2021, Blaðsíða 6
Um 300 hreinræktaðir hrútar og kindur eru í Bretlandi. Lilja Rannveig Sigur- geirsdóttir yrði yngst á þingi og Haraldur Ingi Haraldsson elstur. Hagsmunir okkar sem fámennra eyþjóða fara oft saman og samvinna í hagsmunagæslu er báðum til hagsbóta. Guðlaugur Þór Þórðarson. kristinnhaukur@frettabladid.is STJÓRNMÁL Útlit er fyrir að meðal- aldur þingheims haldi áfram að verða hár í sögulegu samhengi. Miðað við þá þingmenn sem næðu kjöri í nýjustu könnun MMR, verður meðalaldur þingmanna 49,1 ár en var 49,2 eftir kosningarnar fyrir fjórum árum. Þá hafði hann hækk- að um rúmlega tvö ár frá kosning- unum árið 2016. Á undanförnum áratugum hefur meðalaldurinn aðeins verið hærri eftir kosningarnar 1978 og 1999, en þá slagaði hann hátt í 50 ár. Sumir hafa lýst háum meðalaldri á Alþingi sem áhyggjuefni og sagt hann tilefni til þess að lækka kosningaaldur til að koma röddum ungs fólks að við ákvarðanatöku. Ef hvert kjördæmi er skoðað yrði meðalaldurinn hæstur í Suðurkjör- dæmi, það er 54,2 ár, en lægstur í Norðvesturkjördæmi, aðeins slétt 44 ár. Mestu skiptir þar um að í kjör- dæminu eru aðeins átta þingsæti og þar mælist Lilja Rannveig Sigur- geirsdóttir inni. Hún er formaður Ungra Framsóknarmanna og yrði langyngsti þingmaðurinn, aðeins 25 ára gömul. Í Reykjavíkurkjördæmunum yrði meðalaldurinn 46,6 ár í norðri og 47,3 í suðri. Í Norðausturkjördæmi 52,1 ár og 49,8 í Suðvesturkjördæmi. Enginn þingmaður yrði á eftir- launaaldri en tíu yrðu á milli sex- tugs og sjötugs. Aldursforseti yrði Haraldur Ingi Haraldsson, hjá Sósíalistaflokknum í Norðaustur- kjördæmi, 65 ára. Skammt þar á eftir eru Ásmundur Friðriksson og Jón Gunnarsson, þingmenn Sjálf- stæðisflokksins. Lilja yrði sú eina undir þrítugu en níu aðrir undir fertugu. Næst- yngstar yrðu Una Hildardóttir, frambjóðandi Vinstri grænna, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dóms málaráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, þrítugar. n Útlit fyrir að meðalaldur verði áfram hár meðal þingmanna Í nýrri skýrslu um sam- skipti Íslands og Færeyja eru 30 tillögur til að efla tengsl þjóðanna. Meðal annars tíðari samgöngur og hvernig auka megi nýtingu Færeyinga á heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa á Íslandi. birnadrofn@frettabladid.is UTANRÍKISMÁL Í nýrri skýrslu um samskipti Íslands og Færeyja sem unnin var af starfshópi skipuðum af Guðlaugi Þór Þórðarsyni, utanrík- is- og þróunarsamvinnuráðherra, fyrr á þessu ári, eru lagðar fram 30 tillögur til að efla tengsl þjóðanna tveggja. Guðlaugur Þór segir í skýrslunni að í ráðherratíð sinni hafi hann lagt áherslu á samskipti Íslands og Fær- eyja og beitt sér fyrir því að viðhalda sterkum tengslum þeirra á milli. „Hagsmunir okkar sem fámennra eyþjóða fara oft saman og samvinna í hagsmunagæslu er báðum til hags- bóta. Þá má ekki gleyma að í gildi er fríverslunarsamningur milli Íslands og Færeyja,“ segir Guðlaugur og vísar þar til Hoyvíkursamningsins, víðtækasta fríverslunarsamnings sem Ísland hefur gert. Tillögurnar sem lagðar eru fram í skýrslunni snúa meðal annars að samgöngum, nýsköpun og menn- ingu. Í skýrslunni eru lagðar til tíð- ari flugsamgöngur landanna tveggja á milli, sem sagðar eru hafa jákvæð áhrif á samskipti Íslands og Fær- eyja á sviði ferðaþjónustu og vöru- f lutninga og á almenn samskipti einstaklinga og fyrirtækja. „Lagt er til að stjórnvöld beiti sér fyrir gerð fýsileikakönnunar á aukn- um flugsamgöngum milli Íslands og Færeyja, í samstarfi við þau flugfélög sem nú sinna flugi á milli landanna,“ segir í skýrslunni. Þá eru þar einnig lagðar til auknar farþega- siglingar og mögulegar siglingar til hafna á suðvesturhorni Íslands. Tillögur um aukið samstarf á sviði viðskipta, heilbrigðismála og menntamála er einnig að finna í skýrslunni. Þar er lagt til að heil- brigðisyfirvöld í löndunum geri úttekt á því á hvaða sviðum og með hvaða hætti megi auka nýtingu Færeyinga á heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa á Íslandi. „Í gildi er almennur samningur milli LSH og Heilsumálaráðs Fær- eyja um heilbrigðisþjónustu. Það virðist hins vegar sem svo að sam- starf á öðrum vettvangi hafi dregist saman, til dæmis á sviði lækninga eða meðferða utan sjúkrahúsa,“ segir í skýrslunni. Þá er lagt er til Tíðari flug milli Íslands og Færeyja meðal tillagna starfshóps ráðherra Með auknum flugsamgöng- um geta fleiri dáðst að fegurð Færeyja, eins og Gásadal. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY að heilbrigðisráðuneytið ásamt heilbrigðisyfirvöldum í Færeyjum geri úttekt á því á hvaða sviðum og með hvaða hætti megi auka nýtingu Færeyinga á heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa á Íslandi. Á sviði menntamála er meðal annars lagt til að hið opinbera, félagasamtök og einkaaðilar fjár- magni vísinda- og menntasjóð, að mótaðar verði stuttar skiptinema- áætlanir á framhaldsskólastigi og að útbúið verði námsefni fyrir grunnskóla þar sem fjallað yrði um Færeyjar með heildstæðum hætti og lögð áhersla á tengsl Íslands og Færeyja. Starfshóp utanríkis- og þróunar- samvinnuráðherra skipuðu Júlíus Hafstein sem jafnframt var formað- ur, Elin Svarrer Wang, Gísli Gíslason og Sif Gunnarsdóttir. Starfsmaður hópsins var Andri Júlíusson. n arib@frettabladid.is ÞÝSKALAND Corinna Schumacher, eiginkona Formúlu1 ökuþórsins Michaels Schumacher, segir að hann sé breyttur en sé enn til staðar. Mich ael varð fyrir alvarlegum heila- skemmdum í skíðaslysi árið 2013, síðan þá hefur lítið sem ekkert frést af líðan hans. Corinna veitti nýlega viðtal, sem er sjaldgæft, í tengslum við þáttaröð sem sýnd verður á Net- flix síðar í mánuðinum. „Michael er hérna enn þá. Hann er öðruvísi en hann er hérna, það veitir mér styrk,“ segir hún. n Schumacher til staðar en breyttur Schumacher var sigursæll ökuþór í byrjun aldarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY xxxx L ANDBÚNAÐUR Uppboðsstofan Harrison & Hetherington bauð í fyrsta sinn upp íslensk lömb um helgina. Afar fáir breskir bændur eru með íslenskt fé og aðeins um 300 hreinræktaðir hrútar og kindur til í landinu. Sumir hafa þó blandað íslensku fé saman við aðrar teg- undir, svo sem Hjaltlandseyjafé. Undanfarið hefur íslenskt fé þó vakið athygli í Bretlandi, líkt og í Bandaríkjunum, einkum fyrir eiginleika ullarinnar. Það er hið tvískipta tog og þel. „Á undanförnum árum hefur áhuginn á íslensku fé rokið upp. Tilgangurinn með uppboðinu er að sjá hver staða tegundarinnar er,“ segir Ruth Stanton, varaformaður félags bænda með íslenskt fé í Bret- landi, við dagblaðið News and Star í Vatnahéraðinu. Alls voru boðnir upp 17 gripir. Félagið var stofnað árið 1988 en fyrsta íslenska féð var f lutt inn árið 1979. Tilgangurinn er að við- halda hreinleika tegundarinnar og útvega áhugasömum kaupendum lömb. n Íslenskt sauðfé boðið upp í Bretlandi Íslenskt fé sækir í sig veðrið í Bretlandi. FRÉTTABLAÐIÐI/AFP arib@frettabladid.is AFG AN I S TAN Talíbanar beittu svipum á konur sem mótmæltu skertum réttindum í Kabúl, höfuð- borg Afganistan, í gær. Ný ríkis- stjórn talíbana, hefur boðað harð- línustefnu og meðal annars bannað konum að stunda íþróttir. CNN hefur eftir mótmælendum að talíbanar hafi einnig beitt svip- um á vegfarandur og á blaðamenn sem voru viðstaddir. n Talíbanar beittu svipum á konur 6 Fréttir 9. september 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.