Fréttablaðið - 09.09.2021, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 09.09.2021, Blaðsíða 20
Mörgum þykir Shai Gil- geous-Alexander, leikmaður körfuboltaliðsins Okla- homa City Thunder í NBA- deildinni í Bandaríkjunum, vera best klæddi leikmaður deildarinnar. starri@frettabladid.is Litríkur og skemmtilegur karakter Grátt og hvítt tónar vel við glæsi- kerruna sem hann keyrir á. Þessi 23 ára bakvörður byrjaði með stæl í nýliðavalinu sumarið 2018, en þar mætti hann í ljósgrænum jakkafötum skreyttum grænum blómum. Hann heldur úti vinsælli Instagram-síðu, @shai, þar sem hann birtir meðal annars myndir úr fataskápnum og er óhætt að segja að hann hafi bæði litríkan og skemmtilegan stíl. Kíkjum aðeins á úrvalið hjá þessum skemmtilega leikmanni. n Skærlituð peysan passar við appelsínugulu gleraugun. 2Pac bolur og litfagrar gallabuxur. Stórkostlegur jakki í nokkrum litum. Skrautlegar reimarnar breyta öllu. Ekkert að því að klæðast Lakers- jakka þótt maður spili með öðru liði. Lillablái liturinn spilar stórt hlutverk hér. Hver væri ekki til í að eiga eitt svona par? Grænar og bros- andi buxur sem vekja örugglega athygli hvert sem hann fer. SKJÁSKOT/ INSTAGRAM 4 kynningarblað A L LT 9. september 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.