Fréttablaðið - 09.09.2021, Blaðsíða 2
Það er líka gaman að
hafa eitthvað flott til
að sýna. Það finnst
mörgum gaman að
koma og halda á og
snerta.
Reynir Sigurvin Brynjólfsson.
Bókmenntahátíð í Reykjavík sett
Vinsældir Pokémon-spjalda
hafa aukist mjög síðustu ár
og eru dæmi um að hægt sé
að fá jafnvel milljónir fyrir
stök spil.
einarthor@frettabladid.is
SAMFÉLAG Pokémon-spjöld ganga
kaupum og sölum fyrir háar fjár-
hæðir hér á landi og eru dæmi um
að hægt sé að fá tugi þúsunda króna,
og allt upp í 3,5 milljónir, fyrir stök
spjöld. Pokémon-markaðurinn
hefur verið á mikilli siglingu undan-
farin misseri og má segja að svipuð
lögmál gildi þar og á rafmynta-
markaðnum.
Ásóknin í notuð og ný spjöld
hefur verið það mikil að í Glæsibæ
er rekin sérstök verslun sem sér-
hæfir sig í Pokémon-spjöldum.
Verslunin, PokeHöllin, er rekin af
þeim Gunnari Vali G. Hermanns-
syni, Reyni Sigurvin Brynjólfssyni,
Barða Páli Böðvarssyni og Hlyni
Erni Ómarssyni.
Pokémon-fyrirbærið var skapað
af Japananum Satoshi Tajiri árið
1995 og hefur í gegnum árin notið
mikilla vinsælda í tölvuleikjaheim-
inum. Sjónvarpsþættir, bækur og
leikföng fylgdu í kjölfarið og svo
títtnefnd Pokémon-spjöld. Í heimi
Pokémon-spjaldanna gildir lögmál-
ið um framboð og eftirspurn, eftir
því sem minna er til af ákveðnum
spjöldum, þeim mun dýrari eru þau.
Verslunin var opnuð fyrir tilstilli
Gunnars, sem hóf að selja úr stóru
Pokémon-safni sínu til Evrópu og
Bandaríkjanna árið 2017. Gunnar
stofnaði Facebook-hóp í október í
fyrra og hóf þá að selja íslenskum
áhugamönnum Pokémon-spjöld.
Þar kynntist hann Reyni og Barða
og úr varð að þeir opnuðu verslun-
ina saman. Hlynur bættist síðar í
hópinn.
Pokémon-spjöldin hafa lengi
verið á markaði og nutu mikilla
vinsælda hér í kringum aldamótin.
„Frá árinu 2016 hefur þetta verið á
uppleið og í byrjun Covid varð svo
algjör sprenging,“ segir Gunnar.
Í verslun þeirra er hægt að kaupa
bæði pakka og svo stök spil sem
sum eru gríðarlega verðmæt. Þeir
eiga til dæmis spil sem metið er á
rúmar þrjár milljónir króna í dag,
en umrætt spil er frá árinu 1999 og
er með fígúrunni Charizard framan
á. Segist Reynir telja að aðeins 117
slík spil séu til í heiminum. Þá eru
nokkur spil í versluninni sem eru
metin á vel yfir hundrað þúsund
krónur. Spilin eru þó ekki endilega
öll til sölu.
„Það gæti orðið erfitt að sjá á eftir
sumum spilum, en hvað gerir maður
ekki fyrir kúnnann?“ segir Gunnar
og hlær. „Það er líka gaman að hafa
eitthvað flott til að sýna. Það finnst
mörgum gaman að koma og halda á
og snerta,“ bætir Reynir við.
Til eru mörg dæmi um það að
íslenskir viðskiptavinir PokeHallar-
innar hafi komið með gömlu söfnin
sín sem legið hafa lengi í geymslu.
„Já, það er alltaf að gerast og það
er skemmtilegast. Það kemur fyrir
að þar leynist gullmolar. Það eru
líka margir sem koma hingað inn
og tala um að mamma þeirra hafi
jafnvel hent safninu og verðmætum
spjöldum. Við heyrum það mjög
oft,“ segir Gunnar. n
Nánar á frettabladid.is
Pokémon-markaðurinn hér
veltir milljónum á mánuði
Eigendurnir saman. Frá vinstri, Hlynur, Reynir, Gunnar og Barði, sem reka
verslunina saman í Glæsibæ. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Tímapantanir á opticalstudio.is
og í síma 511 5800
SMÁRALIND • HAFNARTORG • KEFLAVÍK
Sjónmælingar
eru okkar fag
bjornth@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Helga Vala Helga-
dóttir, formaður velferðarnefndar
Alþingis, segir að henni sé kunnugt
um alvarleika kynferðisbrotamáls-
ins innan forsetaembættisins. Hún
segir að meintir brotaþolar hafi
snúið sér til hennar og átt samtal.
Eins og Fréttablaðið fjallaði um í
gær liggur nú kæra starfsmanns, sem
segist hafa hrökklast úr vinnu hjá
forsetaembættinu, á hendur öðrum
starfsmanni embættisins, á borði
lögreglu. Helga Vala segir eðlilegt að
fastanefndir þingsins leyfi lögreglu
að ljúka rannsókn. Síðar gæti málið
mögulega átt erindi inn í nefndina.
Opinberir starfsmenn njóta mik-
illar verndar þegar upp koma mál af
þessu tagi. Þótt maðurinn hafi áður
játað brot gagnvart tveimur sam-
starfsmönnum og þolandi hafi nú
kært hann til lögreglu, hefur emb-
ættið ekki viljað svara hvort gerand-
inn sé enn í vinnu.
„Almennt séð er umhugsunarefni
hvort svona mál gefi tilefni til að
skoða lög um opinbera starfsmenn.
Við hljótum alltaf að taka afstöðu
með þolendum, Réttur hinna brot-
legu til starfs má ekki kaffæra rétt
þolenda. Á hinn bóginn verðum við
líka alltaf að varast nornabrennur
vegna sögusagna,“ segir Helga Vala. n
Bessastaðamálið gefi tilefni til að
skoða lög um opinbera starfsmenn
Helga Vala Helga-
dóttir, formaður
velferðarnefndar
Alþingis.
benediktboas@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Alls voru 16 sýni
af 64 sem Matvælaeftirlitið tók af
nautahakki á veitingastöðum í
Reykjavík í september til desember
í fyrra, jákvæð af E.coli með mein-
virkni- og bindigeni. Þetta kemur
fram í skýrslu Heilbrigðiseftirlitsins,
sem tekin var fyrir á fundi umhverf-
is- og heilbrigðisráðs nýverið.
Alls voru tekin 55 sýni af ham-
borgurum eða buffi og níu sýni af
hakki. Aðeins var verið að greina
tilvist bakteríunnar, en ek k i
magngreina. Þá var tekið eitt sýni
af lambahakki og reyndist það
jákvætt.
Rekjanleiki matvælanna sem sýni
voru tekin af, voru í lagi í 62 pró-
sentum tilfella. Hvað varðar eldun
á hakki, eins og hamborgurum,
kom í ljós að einungis um 44 prósent
veitingastaðanna þar sem sýni voru
tekin, bjóða ekki upp á mismunandi
eldun. n
Hakk víða í ólagi
og smitað af E.coli
Innan við helmingur veitingastaða
býður ekki upp á mismunandi eldun
á hamborgurum. FRETTABLAÐIÐ/GETTY
Eliza Reid forsetafrú setti Bókmenntahátíð í Reykjavík í gær. Hátíðin, sem haldin er í fimmtánda sinn, stendur fram á laugardag. Dagskráin fer fram í Norræna
húsinu á daginn en í Iðnó á kvöldin. Í ár taka átta skáldkonur úr íslenskri bókmenntasenu þátt í hátíðinni. Þá koma margir erlendir gestir. Eliza sjálf mun einnig
kynna bók á hátíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
2 Fréttir 9. september 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ