Fréttablaðið - 09.09.2021, Blaðsíða 27
Helga Árnadóttir er fram-
kvæmdastjóri sölu-, mark-
aðs- og vöruþróunarsviðs
Bláa lónsins og hefur starfað
í ferðaþjónustu um árabil.
Helga segir mikilvægt að greinin
rísi hratt aftur og vill breyta kjara-
samningsumhverfinu almennt
á Íslandi, sem sé alltof flókið.
Lágmarkskrafan hljóti að vera að
viðsemjendur sammælist um það
hvað sé til skiptanna, áður en lagt
er af stað og samið um kaup og
kjör.
„Síðustu misseri hafa verið mjög
lærdómsrík. Ég tel að við stöndum
að mörgu leyti mun betur að vígi
nú en eftir öldudalina sem við
lentum í í kjölfar fjármálahrunsins
og svo eldgossins í Eyjafjallajökli
árið 2010. Nú er búið að byggja
markvisst upp innviði, við höfum
þroskast mikið, fyrirtækin eflst
og stjórnvöld lært inn á greinina.
Ég tel skynsamlegt að nýta tæki-
færið sem fram undan er og höfða í
auknum mæli til fágætisferðanna,
enda hefur samkeppnishæfni
okkar aukist til muna hvað þennan
verðmæta markhóp varðar. Við
eigum að horfa til gæða umfram
magns. Fyrst þarf þó að koma
fyrirtækjunum á fætur,“ segir
Helga.
Oft er sagt að íslenskt atvinnulíf
hafi ekki nógu margar stoðir. Erum
við að gera rétt með því að veðja
aftur á ferðaþjónustuna eða ætti
að reyna að veðja á f leiri hesta?
„Við eigum alltaf að horfa til
þess að byggja sem flestar stoðir
undir atvinnulífið á Íslandi. Það
er sjálfsagt að veðja á ferðaþjón-
ustuna enda hefur hún alla burði
til að styðja við og styrkja efna-
hag þjóðarinnar eins og áður. Við
verðum að ná ferðaþjónustunni
hratt og örugglega á lappir. Hún
var að skila um 550 milljörðum
í gjaldeyristekjur árlega fyrir
Covid. Þá má ekki gleyma því að
hún er atvinnugrein sem styður
við byggðastefnu og hefur skilað
ávinningi um land allt. Við eigum
að tryggja henni ákveðna kjöl-
festu, en að því sögðu er alveg ljóst
að þeim mun fleiri egg í körfunni,
því betra,“ segir Helga.
Ferðaþjónustan getur unnið bug
á atvinnuleysinu – fljótt
„Við sem samfélag höfum verið
lánsöm að búa við nægt atvinnu-
framboð í gegnum árin. Klárlega
er ferðaþjónustan vinnuaflsfrek
atvinnugrein og sú grein sem getur
einna helst unnið bug á þeirri
meinsemd sem atvinnuleysið er á
sem skemmstum tíma. Hins vegar
er staðreyndin sú að erfiðlega
hefur reynst að manna störfin,
hvort sem um fagmenntuð störf er
að ræða eða ófagmenntuð, nú eftir
að viðspyrnan hófst í vor. Stundum
er talað um að störf í ferðaþjónustu
séu einungis láglaunastörf, en það
er alls ekki rétt og ekki hægt að
alhæfa með þeim hætti. Miklar
tæknibreytingar, samrunar fyrir-
tækja, aukin skilvirkni og aðrir
þættir hafa valdið því að sér-
hæfðum störfum í ferðaþjónustu
hefur verið að fjölga verulega og
hlutfallslega meira en öðrum.“
Hvað finnst þér að stjórnvöld
eigi að leggja áherslu á í þessum
efnum? Hvað þarf að gera til að
koma ferðaþjónustunni aftur á
koppinn?
„Ferðaþjónustan er að komast
á lappirnar en það er mikið undir
okkur komið, atvinnulífinu og
stjórnvöldum, að vel til takist.
Horft fram á veginn er mikilvægt
að laga til í rekstrarumhverfi og
horfa til samkeppnishæfni útflutn-
ingsatvinnugreinanna almennt.
Verðmætasköpun í landinu
stendur og fellur með útflutningn-
um. Hvað ferðaþjónustuna varðar
er hún í gríðarlegri samkeppni við
aðra áfangastaði um heim allan.
Hvernig getum við eflt okkur
gagnvart þeirri samkeppni? Til að
mynda með því að einfalda annars
þungt og flókið regluverk, sem var
reifað sérstaklega í samkeppnis-
skýrslu OECD fyrir stuttu og sýnir
svart á hvítu að regluverkið í ferða-
þjónustu er mun flóknara og erfið-
ara en í samkeppnislöndunum. Þá
myndi ég vilja að við horfðum til
þess að leggja af, þó ekki sé nema
tímabundið, íþyngjandi skatta og
gjöld sem eru margvísleg og mikil
í ferðaþjónustu. Fyrirtækin verða
að ná að rétta úr kútnum eftir for-
dæmalausa Covid-tíma,“ útskýrir
hún.
Talandi um samkeppnishæfni.
Hvað segir þú um launaþróunina á
Íslandi?
„Verðmætasköpunin stendur
einfaldlega ekki undir launa-
hækkunum. Sérstaklega eftir þessa
kröftugu niðursveiflu. Það eru
einfaldlega brostnar forsendur,“
segir Helga og tekur fram að mikil-
vægt sé að skoða vinnumarkaðinn
heildrænt.
„Við verðum að fara að hefja
kjaraviðræður á ákveðnu marki
sem allir geta sammælst um.
Hver er kakan sem við höfum
til skiptanna? Ef við getum ekki
einu sinni sammælst um það mun
þetta höfrungahlaup halda áfram,
sem við því miður þekkjum alltof
vel nú þegar. Laun munu hækka
umfram það sem er til í samfélag-
inu, sem þýðir að atvinnuleysi og
verðbólga fara að gera vart við sig
og kaupmáttur minnkar. Þá græðir
enginn. Ég veit að þetta hefur verið
reynt, en við megum ekki gefast
upp. Það er allt of mikið í húfi.“ ■
Segir kjarasamningsumhverfið ekki að virka
Helga Árnadóttir er framkvæmdastjóri sölu-, markaðs- og vöruþróunarsviðs Bláa lónsins. MYND/BIG
Það er sjálfsagt að
veðja á ferðaþjón-
ustuna enda hefur hún
alla burði til að styðja við
og styrkja efnahag þjóð-
arinnar eins og áður.
Að sögn Sigurðar R. Ragnarssonar,
stjórnarformanns félagsins, hefur
hann áhyggjur af því að langtíma-
atvinnuleysi festist í sessi. Innan
verktakabransans hafi gengisfall
krónunnar í upphafi Covid haft
bein áhrif á allt efni og aðföng sem
þeir kaupa inn. Hann saknar þess
að heyra uppbyggilegar tillögur frá
verkalýðshreyfingunni, nú þegar
viðspyrnan er hafin.
„Langvarandi atvinnuleysi getur
haft mikil sálræn og félagsleg áhrif
sem ekki má gera lítið úr. Þetta er
áhyggjuefni nú þegar við erum að
fara inn í veturinn og myrkrið er
að færast yfir. Það verður að passa
upp á þetta fólk,“ segir Sigurður,
sem tekur þó fram að hann
sé almennt ánægður með þær
aðgerðir sem stjórnvöld hafa þegar
gripið til í tengslum við heims-
faraldurinn.
Afkastaminnkun og
gengisfall krónunnar
Covid hafði nokkur áhrif á rekstur
ÍAV.
„Það er eins með okkur og flest
önnur fyrirtæki. Beinu áhrifin
fólust einna helst í afkastaminnk-
un á okkar verkstað. Sérstaklega
fyrst um sinn, þegar óvissan var
sem mest. Þá dró verulega úr
afköstum þar sem starfsfólk var
bæði óttaslegið og að passa sig á
að halda fjarlægð sín í milli. Það er
svo sem erfitt að meta í krónum
hvað það hefur kostað fyrirtækið,
en tjónið var umtalsvert. Þess
utan féll til ýmis kostnaður við að
skipta fólki upp á verkstað, í mötu-
neytum, búningsherbergjum og
kaffiaðstöðu; við að útvega grímur,
hanska, þrífa og þar fram eftir göt-
unum. En það var sjálfsagt mál að
gera, auðvitað, og starfsfólkið var
fljótt að aðlaga sig breyttum tímum
sem við erum afskaplega þakklát
fyrir,“ segir Sigurður.
Óbeinu áhrifin fólust fyrst og
fremst í gengisfalli krónunnar.
„Krónan veiktist um 20 pró-
sent þegar faraldurinn reið yfir.
Það hefur bein áhrif á allt efni og
aðföng sem við kaupum inn, sem
er töluvert magn, auk þess sem
umtalsverðar seinkanir urðu á
afhendingu efnis að utan vegna
Covid-áhrifa þar. Til að bæta gráu
ofan á svart höfðu aðgerðir stjórn-
valda í þá veru að hækka endur-
greiðslu virðisaukaskatts vegna
vinnu á byggingarstað, aðgerð
sem gerð var í því skyni að örva
hagkerfið, þau hliðaráhrif að bygg-
ingarvísitalan lækkaði. Þetta olli
byggingargeiranum í heild miklum
skaða. Þetta er enn þrætuepli milli
greinarinnar og ráðuneytanna
sem málið fellur undir og er stór-
mál. Greinin veltir hundruðum
milljarða á ári og þessi einstaka
aðgerð varð til þess að tekjur verk-
takanna minnka um rúmlega þrjú
prósent á mánuði. Þetta eru stórar
upphæðir sem ekki veitir af inn á
íslenskan vinnumarkað um þessar
mundir. Það er líka óeðlilegt að
hið opinbera geti „hagnast“ með
þessum hætti á sínum eigin stjórn-
valdsaðgerðum.“
Sigurður tekur þó fram að Covid
hafi ekki eingöngu haft slæm áhrif
á reksturinn.
„Ég nefni fundamenninguna.
Faraldurinn flýtti fyrir því sem
sennilega hefði orðið með tím-
anum og gerir fundahald að mörgu
leyti skilvirkara, sem eru þessir
fjarfundir. Manni dettur ekki
lengur í hug að keyra í hálftíma
til þess að sækja einn fund og svo
aftur til baka, heldur tekur þá raf-
rænt. Fundirnir ganga býsna vel
og ég tala ekki um hagræðinguna
sem mun felast í þessu til lengri
tíma. Maður þekkir mýmörg dæmi
þess að fólk sé til að mynda að
sækja fundi erlendis, fyrir kannski
einn dag. Þetta held ég að verði
gjörbreytt eftir Covid og er bæði
ódýrara og umhverfisvænna.“
Hvað varðar verktakabransann
almennt er Sigurður ánægður með
þá ákvörðun stjórnvalda að setja
aukna fjármuni í innviðauppbygg-
ingu sem viðbragð við faraldrinum.
„Og það var engin vanþörf á,
uppbyggingu í orkukerfinu eða í
vegakerfinu. Við munum öll njóta
góðs af því auk þess sem hið opin-
bera er að virka til sveiflujöfnunar
eins og vera ber, en það hefur ekki
alltaf tekist sem skyldi í gegnum
áratugina.“
Verkalýðshreyfingin hafi
skilað auðu
Sigurður nefnir að f lest svið sam-
félagsins hafi sýnt sveigjanleika
og skilning undanfarna átján
mánuði og reynt að leggja sitt af
mörkum.
„Ég vil þó nefna verkalýðs-
hreyfinguna sem aðila sem mér
finnst að gæti komið að borðinu
með f leiri hugmyndir að lausnum
á því ástandi sem skapaðist í sam-
félaginu,“ útskýrir Sigurður og
heldur áfram:
„Þegar Lífskjarasamningurinn
var undirritaður komu að því
stjórnvöld, atvinnurekendur og
verkalýðshreyfingin. Þetta eru
þessir þrír stóru sem hafa með
málið að gera. Þegar þessar ham-
farir gengu yfir lögðu stjórnvöld
sinn pakka á borðið, atvinnulífið
og ekki síst launþegar lögðu sitt
af mörkum en ég hef saknað þess
að verkalýðshreyfingin komi að
málunum með opinn hug og reyni
í sameiningu við hina að leita
lausna.“
Áskoranir fram undan
Fram undan eru kosningar og
segir Sigurður mikilvægast fyrir
byggingargeirann að viðhalda
stöðugleikanum, halda áfram
að byggja upp innviði og auka
lóðaframboð til að ná jafnvægi á
húsnæðismarkaðnum.
„Svo er lækkun tryggingagjalds
og einföldun regluverks við-
varandi verkefni. Ekki má heldur
gleyma aukinni innleiðingu raf-
rænna lausna á byggingarferlinu
öllu sem stuðlar að því að gera það
einfaldara og skilvirkara,“ segir
Sigurður að lokum. ■
Kallar eftir uppbyggilegum tillögum frá
verkalýðshreyfingunni í upphafi viðspyrnunnar
Sigurður R. Ragnarsson er stjórnarformaður Íslenskra aðalverktaka. MYND/BIG
Íslenskir aðalverktakar er
rótgróið fyrirtæki sem á
sér 66 ára sögu. Fyrirtækið
hefur komið að hönnun og
byggingu margra þekktra
mannvirkja, svo sem tónlist-
arhússins Hörpu, jarðganga,
virkjana og alls sem spannar
svið byggingariðnaðarins.
7FIMMTUDAGUR 9. september 2021 SAMTÖK ATVINNULÍFSINS