Fréttablaðið - 09.09.2021, Blaðsíða 16
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda
tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Birna Rut Guðjónsdóttir
Kirkjuvegi 31, Vestmannaeyjum,
lést á heimili sínu Hraunbúðum,
miðvikudaginn 1. september.
Útförin fer fram frá Landakirkju
laugardaginn 11. september kl. 13.00. Athöfninni verður
streymt á heimasíðu Landakirkju, www.landakirkja.is.
Aðalheiður Svanhvít Magnúsdóttir Eggert Sveinsson
Gíslína Magnúsdóttir Gísli J. Óskarsson
Magnea Ósk Magnúsdóttir Daði Garðarsson
barnabörn og langömmubörn.
Hjartans þakkir til allra sem sýndu
okkur stuðning og hlýhug við fráfall
elsku eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Jens Jónssonar
húsgagnabólstrara,
sem lést 9. ágúst síðastliðinn.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjartadeildar
Landspítalans fyrir hlýhug og góða umönnun.
Valdís Kristmundsdóttir
Jón Kristinn Jensson Sigurborg M. Guðmundsdóttir
Sigríður Jensdóttir Axel Þórir Alfreðsson
Lára Jensdóttir Einar Stefánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ólína S. Guðmundsdóttir
frá Grenivík í Grímsey,
lést á Landspítalanum mánudaginn
6. september. Útförin verður auglýst síðar.
Erlendur Geirdal Kolbrún Matthíasdóttir
Guðmundur Gísli Geirdal Linda Jörundsdóttir
Halldóra Sæunn Sæmundsdóttir
ömmu- og langömmubörn.
Ástkær faðir okkar, fósturfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ólafur Arnar Ólafsson
(Óli stormur)
fv. lögreglumaður og skipstjóri,
lést þann 14. ágúst
á sjúkrahúsinu Akranesi.
Útför verður frá Stykkishólmskirkju þann 13. september
klukkan 14. Útförin verður send út í streymi á
www.stormur.lognid.is
Ólafur Björn Ólafsson Jolanta M. Glaz
Þorsteinn Bjarki Ólafsson Tatiana Malai
Bent Russel Helga Ingibjörg Reynisdóttir
Rúnar Russel Tuti Ruslaini
Frank Russel
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Kristján Lárus Sæmundsson
frá Teigi í Hvammssveit, Dalasýslu,
Gerplustræti 17, Mosfellsbæ,
verður jarðsunginn frá Guðríðarkirkju
í Grafarholti, mánudaginn
13. september klukkan 13.00.
Guðrún Einarsdóttir
Einar Þórir Kristjánsson Úlfhildur Rögnvaldsdóttir
Sigrún Kristjánsdóttir Pálmi Bjarnason
Kristján Rúnar Kristjánsson Anna Sigurðardóttir
Gísli Kristjánsson
Guðjón Ingi Kristjánsson Brá Guðmundsdóttir
barnabörn og langafabörn.
Okkar yndislegi og ástkæri
Grettir Grettisson
rafiðnfræðingur,
Ólafsgeisla 20a,
lést í faðmi fjölskyldunnar mánudaginn
6. september á líknardeildinni í Kópavogi.
Útförin fer fram fimmtudaginn
16. september frá Langholtskirkju, kl. 13.
Jenný Stefanía Jensdóttir
Jens Grettisson Kolbrún Eva Sigurðardóttir
Íris Rut Grettisdóttir Mosi
Jenný Stefanía Jensdóttir og Benjamín Darri Jensson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigurrós Unnur
Sigurbergsdóttir
(Rósa)
Lindargötu 57,
áður Laugarásvegi 60, Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi þann 6. september
síðastliðinn. Alúðarþakkir færum við starfsfólki Vitatorgs,
Múlabæjar og bráðaöldrunarlækningadeildar B4 á
Landspítalanum í Fossvogi, fyrir kærleika, stuðning og
umönnun. Útförin fer fram frá Áskirkju, fimmtudaginn
16. september klukkan 13.00.
Guðmundur Gunnarsson Margrét María Þórðard.
Oddný Sigurborg Gunnarsdóttir
Gunnar Steinn Gunnarsson Berit Solvang
Einar Örn Gunnarsson Margrét Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Dagrún Ósk Jónsdóttir, doktors-
nemi í þjóðfræði, flytur erindi á
Landnámssýningunni í dag sem
ber heitið Kynbundið ofbeldi í
íslensku þjóðsögunum. Viðburð-
urinn er hluti af doktorsverkefni
Dagrúnar þar sem hún rannsakar
birtingarmyndir kvenna í þjóð-
sögunum, en í kvöld mun hún
einblína á hvernig kynbundið
ofbeldi birtist þar.
arnartomas@frettabladid.is
„Þetta er ekkert svo algengt í þjóðsög-
unum því þetta voru mál sem var ekki
mikið talað um á þessum tíma,“ segir
Dagrún. „Þau tilfelli þar sem það birtist
varpa þó mjög góðu ljósi á hvernig var
hugsað um þetta á þessum tíma, og
þau þemu sem birtast þarna sjáum við
ennþá í umræðunni í dag. Að sjá þetta
í þjóðsögunum sýnir kannski hversu
gamlar og rótgrónar sumar þessar hug-
myndir eru.“
Speglun við samtímann
Dagrún, sem rannsakaði þjóðsögur í
útgefnum söfnum frá 19. og 20. öld, segir
að það geti skipt máli hver segi frá.
„Langflestum þjóðsögum er safnað og
þær gefnar út af körlum, en við erum svo
heppin að eiga eitt þjóðsagnasafn sem
er safnað af konu, en það er safn Torf-
hildar Þ. Hólm,“ segir Dagrún og bætir
við að safn Torfhildar sé aðeins öðruvísi.
„Þar fáum við fleiri sögur af heimilisof-
beldi en í hinum söfnunum. Þar birtast
líka aðeins önnur sjónarhorn, til dæmis
eina dæmið um konu að tala við konu.“
Aðspurð segir Dagrún að eitt og annað
hafi komið sér á óvart við rannsóknina.
„Það sem kom mér kannski leiðinlega
á óvart var hve sterk þessi speglun við
samtímann var og raun ber vitni.“
Þá segir hún að einnig hafi komið
á óvart að skoða niðurstöðurnar ekki
einvörðungu út frá kyni heldur einnig
stétt. „Við gætum vel ímyndað okkur að
þá eins og alltaf hafi of beldi gagnvart
konum sem tilheyra jaðarhópum verið
algengara en ekki, en það er ekki raunin
í þjóðsögunum,“ segir hún. „Það eru iðu-
lega konur af efri stéttum, bændadætur
eða prestsdætur sem lenda í ofbeldi. En
það segir okkur kannski líka að það hafi
þótt frásagnarverðara en hitt.“
Óvæntur kynjavinkill
Dagrún hefur lengi haft áhuga á dökk-
um hliðum menningararfsins en hún
skrifaði BA-ritgerð sína um mannát
í þjóðsögunum. „Þaðan spratt upp
áhugi minn á birtingarmynd kvenna í
þjóðsögunum, því þar er mjög óvæntur
kynjavinkill,“ útskýrir hún. „Þar eru
yfirleitt konur, tröllskessur, sem borða
saklausa karlmenn. Svo skrifaði ég
meistaraverkefnið mitt um andaglas
í samtímanum og unglinga sem fara í
andaglas.“
Viðburðurinn hefst klukkan 17 í kvöld
og er gjaldfrjáls. Dagrún hvetur öll þau
sem hafa áhuga á þjóðsögunum og
kynjajafnrétti til að koma við. ■
Varpar ljósi á kynbundið
ofbeldi í þjóðsögunum
Að sjá þetta í þjóðsög-
unum sýnir kannski
hversu gamlar og rót-
grónar sumar þessar
hugmyndir eru.
Dagrún segir speglun þjóðsagnanna við samtímann oft sterka. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 9. september 2021 FIMMTUDAGUR