Fréttablaðið - 09.09.2021, Page 20
Mörgum þykir Shai Gil-
geous-Alexander, leikmaður
körfuboltaliðsins Okla-
homa City Thunder í NBA-
deildinni í Bandaríkjunum,
vera best klæddi leikmaður
deildarinnar.
starri@frettabladid.is
Litríkur
og skemmtilegur
karakter
Grátt og hvítt tónar vel við glæsi-
kerruna sem hann keyrir á.
Þessi 23 ára bakvörður byrjaði með
stæl í nýliðavalinu sumarið 2018,
en þar mætti hann í ljósgrænum
jakkafötum skreyttum grænum
blómum. Hann heldur úti vinsælli
Instagram-síðu, @shai, þar sem
hann birtir meðal annars myndir
úr fataskápnum og er óhætt að
segja að hann hafi bæði litríkan og
skemmtilegan stíl. Kíkjum aðeins
á úrvalið hjá þessum skemmtilega
leikmanni. n
Skærlituð peysan passar við appelsínugulu gleraugun.
2Pac bolur og litfagrar gallabuxur.
Stórkostlegur jakki í nokkrum litum.
Skrautlegar reimarnar breyta öllu.
Ekkert að því að klæðast Lakers-
jakka þótt maður spili með öðru liði.
Lillablái liturinn spilar stórt hlutverk hér.
Hver væri ekki
til í að eiga eitt
svona par?
Grænar og bros-
andi buxur sem
vekja örugglega
athygli hvert
sem hann fer.
SKJÁSKOT/
INSTAGRAM
4 kynningarblað A L LT 9. september 2021 FIMMTUDAGUR