Fréttablaðið - 25.08.2021, Qupperneq 1
Afganir leggja
samfélaginu lið
Bæta verkferla
vegna myglu
Fréttir ➤ 4 Skoðun ➤ 8
1 6 6 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s M I Ð V I K U D A G U R 2 5 . Á G Ú S T 2 0 2 1
SKANNAÐU KÓÐANN
OG SKOÐAÐU
ÓTAL FRÁBÆR
TILBOÐ ÚR
BÆKLINGNUM
OKKAR!
Ný könnun fyrir Fréttablaðið
sýnir að meirihluti vill að
mun meira fé sé varið til
reksturs Landspítalans en nú.
Stuðningsmenn Sjálfstæðis-
flokksins eru líklegastir til
að vilja að fjárveitingar til
spítalans haldist óbreyttar.
arib@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Meirihluti lands-
manna vill að miklu meira fé verði
veitt til reksturs Landspítalans en
nú er. Samkvæmt niðurstöðum
könnunar sem Prósent gerði fyrir
Fréttablaðið vilja 57 prósent þeirra
sem taka afstöðu að veitt verði
miklu meira fé til reksturs Landspít-
ala, 28 prósent vilja að aðeins meira
fé verði veitt til rekstursins og 13
prósent vilja að það haldist óbreytt.
Tvö prósent vilja veita aðeins minna
fé að miklu minna fé til rekstursins.
Konur eru almennt hlynntari
auknum fjárveitingum en karlar,
64 prósent kvenna vilja veita miklu
meira fé í reksturinn á móti 50 pró-
sentum karla. Lítill sem enginn
munur er á milli höfuðborgarsvæðis-
ins og landsbyggðarinnar.
Fólk með 800 þúsund krónur eða
meira í mánaðarlaun er líklegra
til að vilja halda fjárveitingum til
Landspítalans óbreyttum en fólk
með lægri tekjur, um 25 prósent
þeirra vilja að fjárveitingar haldist
óbreyttar eða lækki. Lítill munur er á
afstöðu þegar litið er til menntunar.
Töluverður munur er á afstöðu
fólks eftir stjórnmálaskoðunum,
meirihluti stuðningsmanna allra
flokka vill þó að meira fé verði veitt
til rekstursins. Stuðningsmenn
Sjálfstæðisflokksins skera sig úr að
því leyti að 42 prósent þeirra vilja
að Landspítalinn fái óbreytt fé, 6
prósent þeirra vilja að fjárveitingar
lækki, 20 prósent vilja að miklu
meira fé verði varið í reksturinn og
32 prósent að aðeins meira fé verði
veitt í reksturinn.
Könnunin var gerð dagana 17. til
23. ágúst í könnunarvagni Prósents,
svarhlutfall var 52 prósent og 1.251
tók afstöðu til spurningarinnar.
SJÁ SÍÐU 6
Meirihluti vill meira fé til spítalans
57%28%
13%
1%1%
n Miklu meira fé
n Aðeins meira fé
n Óbreytt fé
n Aðeins minna fé
n Miklu minna fé
✿ Hversu mikið fé á ríkið
að veita Landspítala?
thorsteinn@frettabladid.is
FJARSKIPTI Enn er óljóst hvernig
ljúka eigi ljósleiðaravæðingu þétt-
býlissvæða. Síminn segir að eftirlits-
stofnanir hafi ekki komið fram með
neinar tillögur, forstjóri Fjarskipta-
stofu segir stjórnvöld ekki hafa stigið
til jarðar með það hvort um sé að
ræða markaðssvæði eða ekki. Ráð-
herra fjarskiptamála segir nokkrar
leiðir standa til boða.
„Hvað varðar þéttbýli úti á landi
hefur ekki verið tekin afstaða til
þess hvort það séu markaðslegar
forsendur fyrir uppbyggingu,“ segir
Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjar-
skiptastofu. SJÁ MARKAÐINN
Enn óvissa um
þéttbýlissvæðin
Frönsku hjónin Valerie Viel og Francois Dupuis seldu húsið sitt fyrir níu árum og lögðu af stað í ævintýraferð, á bátnum sínum Cybelle 17, sem ætlar engan endi að taka. Þau hafa ferðast um Norður-
löndin og segja frábært að búa í bátnum. Þau lögðu af stað í nýjustu ferðina í júlí og komu hingað frá Írlandi. Ætla þau að hafa vetursetu í Hafnarfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR