Fréttablaðið - 25.08.2021, Blaðsíða 35
- merkt framleiðsla
Sveigjanlegar lausnir og fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga.
IÐNAÐAR- OG BÍLSKÚRSHURÐIR
idex.is - sími: 412 1700
Byggðu til framtíðar
með hurðum frá Idex
yfir 30 ára reynsla á Íslandi •
hurðir úr áli — engin ryðmyndun•
hámarks einangrun •
styrkur, gæði og ending — langur líftími •
háþróuð tækni og meira öryggi•
möguleiki á ryðfríri útfærslu •
lægri kostnaður þegar fram líða stundir•
Iðnaðar- og bílskúrshurðir úr áli
Verðmat Jakobsson Capital
á Icelandair er 39 prósentum
yfir markaðsvirði. Horfur í
flugrekstri dekkri en fyrir
fáeinum mánuðum síðan.
helgivifill@frettabladid.is
Icelandair mun ekki þurfa að draga
á 120 milljóna Bandaríkjadala lána
línu með ríkisábyrgð í ár en gæti
þurft á henni að halda næsta vor
ef rekstraráætlun Jakobsson Capi
tal gengur eftir. Þetta kemur fram í
nýrri greiningu á f lugfélaginu þar
sem verðmatið er 39 prósentum yfir
markaðsvirði, eða 2,0 krónur á hlut.
Uppgjör Icelandair fyrir annan
fjórðung var í takt við væntingar
Jakobsson Capital. Í verðmatinu,
sem Markaðurinn hefur undir
höndum, segir að af koman beri
með sér að sumarvertíðin hafi verið
góð, eldsneytiskostnaður varpi ljósi
á að nýju Boeing MAXþoturnar séu
mun sparneytnari en eldri f lug
vélar sem verið hafa í f lotanum og
reksturinn sé skilvirkari en gert
hafi verið ráð fyrir. Að því sögðu
séu horfurnar nokkuð dekkri í f lug
rekstri en fyrir tveimur til þremur
mánuðum þegar margir töldu að
Covid19 væri á bak og burt.
„Væntanlega hefur farið um
marga vegna tillagna sóttvarna
læknis um takmarkanir á komur
ferðamanna ef ekki næst að skima
alla farþega. Það er þó lán í óláni að
mesta ferðamannatímabilinu fer nú
að ljúka. Einnig er líklegt að áhugi
fólks til að ferðast dragist saman er
Covid fer vaxandi í heiminum og
það dragi eitthvað úr áhuga þegar
að Covid er mikið á áfangastað,“
segir í verðmatinu.
Jakobsson Capital deilir af þeim
sökum ekki bjartsýni stjórnenda
Icelandair hvað varðar haustið
og veturinn þótt rekstraráætlun
sem verðmatið byggir á geri ráð
fyrir örlítið meiri tekjum nú en
áður. Reksturinn í vetur gæti orðið
þungur samhliða fjölgun Covid
smita hér á landi sem erlendis.
Samkvæmt verðmatinu munu
tekjur Icelandair aukast um 15 pró
sent á milli áranna 2020 og 2021.
Gert er ráð fyrir að flugmarkaður
inn verði kominn í eðlilegra horf
eftir um ár og að tekjurnar vaxi um
um 55 prósent á árinu 2022 í 775
milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði
99 milljarða króna. Það ár verður
lítils háttar rekstrartap, eða 27
milljónir Bandaríkjadala, ef spá Jak
obsson Capital nær fram að ganga.
Reiknað er með að Icelandair hagn
ist um 39 milljónir dala, jafnvirði
fimm milljarða króna, árið 2023. ■
Icelandair þurfi ekki að
draga lánalínuna í ár
Reksturinn í vetur gæti orðið þungur, segir í verðmati. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
hordur@frettabladid.is
Sjóður í rekstri breska eignastýr
ingarrisans Schroders hefur nýlega
bæst við hluthafahóp Arion banka.
Samkvæmt lista yfir alla hluthafa
bankans í gær, sem Markaðurinn
hefur séð, nemur eignarhlutur
Schroders rúmlega 1,8 milljónum
hluta að nafnverði en miðað við
gengi bréfa Arion er markaðsvirði
hans um 300 milljónir króna. Það
jafngildir um 0,11 prósenta hlut í
bankanum.
Schroders var einnig á meðal
þeirra fjölmörgu erlendu sjóða sem
tóku þátt í hlutafjárútboði Íslands
banka í júní á þessu ári. Keypti
sjóðurinn þá fyrir tæplega 500
milljónir króna miðað við útboðs
gengið og var með 0,3 prósenta hlut
við skráningu bankans á markað.
Talsverður fjöldi erlendra vísi
tölusjóða, sem fjárfesta einkum í
hlutabréfum félaga á vaxtamörk
uðum (e. frontier markets), hafa
komið nýir inn í eigendahóp Arion
banka eftir að Ísland var formlega
tekið inn í vaxtamarkaðsvísitölu
MSCI undir lok maímánaðar.
Á meðal þeirra eru sjóðir Acadian
Asset Management sem hefur á síð
ustu vikum verið að bæta við hlut
sinn í bankanum og fer núna með
6 milljónir hluta að nafnvirði, sem
jafngildir 0,36 prósenta eignarhlut.
Aðrir erlendir fjárfestingasjóðir sem
hafa bæst við hluthafahóp Arion í
sumar eru meðal annars, svo dæmi
sé tekið, í stýringu hjá Franklin
Templeton, Northern Trust, Hand
elsbanken, Legal & General, Fund
Partner Solutions og Van Biema
Value Partners. Þá fjárfesti þjóðar
sjóður Kúveit, einn stærsti fjárfest
ingasjóður í ríkiseigu í heiminum,
í bankanum, eins og Markaðurinn
hefur áður upplýst um en hlutur
hans er í dag metinn á tæplega
hálfan milljarð króna.
Eignarhaldsfélagið Stormtré,
sem er í eigu Hreggviðs Jónssonar,
stjórnarformanns Veritas, er einnig
nýr fjárfestir í hluthafahópi Arion
banka en félagið keypti í liðnum
mánuði samanlagt meira en 5,8
milljónir hluta að nafnverði. Mark
aðsvirði þess eignarhlutar er tæp
lega einn milljarður króna. Þá fer
Bílabúð Benna nú einnig fyrir hlut
í bankanum sem er í dag metinn á
liðlega 450 milljónir króna.
Hlutabréfaverð Arion, sem stóð í
167 krónum á hlut við lok markaða í
gær, hefur hækkað um 76 prósent frá
áramótum og nemur markaðsvirði
bankans um 277 milljörðum. ■
Eignastýringarrisinn Schroders
kaupir í Arion fyrir um 300 milljónir
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion.
7MIÐVIKUDAGUR 25. ágúst 2021 MARKAÐURINN