Fréttablaðið - 25.08.2021, Blaðsíða 46
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Allir sem ég hef tekið
viðtöl við í hlaðvarp-
inu mínu, þar á meðal
Helen Hunt, tala um
mikilvægi þess að
tengjast öðrum lista-
mönnum.
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
TILBOÐS-
DAGARAMERÍSK
ÞÆGINDI
LARKINHURST
Fallegt sófasett í ekta
amerískum stíl. Úr
jarðarlitu, þykku efni
sem minnir á vintage
leður, bólstraðir armar
og útskornir fætur.
Hannaður til að láta þér
líða vel. Fæst sem 1-3ja
sæta sófar en einnig
sem (3ja sæta) svefn-
sófi. Skrautpúðar fylgja.
2ja sæta sófi: 99 x 168 x 96 cm
159.990 kr. 179.990 kr.
3ja sæta sófi: 99 x 226 x 96 cm
179.990 kr. 199.990 kr.
Hægindastóll: 101 x 109 x 101 cm
79.990 kr. 99.990 kr.
3ja sæta svefnsófi: 99 x 226 x 96 cm
249.990 kr. 269.990 kr.
PINNANCLE
LZB hægindastóll. Svart eða brúnt
leður. Stærð: 97 x 86 x 109 cm
161.492 kr.
189.990 kr.
ALLIR LA-Z-BOY STÓLAR
OG SÓFAR Á TILBOÐI
LÍFIÐ ER Á
FRETTABLADID.IS
Líð á frettabladid.is allar um
fólk, menningu, tísku, heilsu
og margt eira.
Ekki missa af neinu, fylgdu
Fréttablaðinu á Facebook
Anna Rósa nýtti tímann í
Covid til að hrinda af stað
verkefni þar sem hún fær
listafólk til að tengjast og
miðla þekkingu sinni. Í
kringum verkefnið stofnaði
hún hlaðvarp en í það kom
engin önnur en Óskarsverð-
launaleikkonan Helen Hunt.
steingerdur@frettabladid.is
Leikkonan Anna Rósa Parker er
búsett í New York ásamt dóttur
sinni og eiginmanni. Hún starfar
einnig sem frumkvöðull, höfundur
og er mikill mannréttindasinni.
Hún hefur hrundið af stað verkefni
sem aðstoðar fólk innan listageirans
við að tengjast sín á milli og koma sé
á framfæri.
„Í dag vinn ég fyrir sjálfa mig með
kúnnum víða úti um heim sem
auglýsingatextahöfundur og vöru-
merkjaráðgjafi.“
Hafðir þú alltaf haft áhuga á leik-
list?
„Já, það má segja það. Ég held að ég
hafi verið 7 ára þegar ég lék í fyrsta
skólaleikritinu. En ég hafði alltaf
áhuga á að skrifa líka. Ég var hel-
tekin af Guðrúnu Helgadóttur og ég
reyndi sjálf að skrifa fyndnar sögur.
Sem leikkonu voru mér stundum
boðin verkefni sem ég hafði engan
áhuga á, en fékk svo oft ekki þau
verkefni sem mig langaði í. Þannig
byrjaði ég að skrifa mitt eigið efni.
Ég skrifaði einleik og nokkur leikrit
sem öll hafa verið framleidd á ein-
hvern hátt. Mér finnst þetta „game“
sem tilheyrir þessu starfi sérstak-
lega í Bandaríkjunum mjög erfitt
og leiðinlegt. Hurðir læstar og þú
verður að spila ákveðinn leik til að
komast inn,“ útskýrir Anna Rósa.
Mikilvægt að fá stuðning
Anna Rósa lærði leiklist í University
of Washington í Seattle.
„Sem var einn af bestu leiklistar-
skólum innan háskóla í Bandaríkj-
unum þegar ég var þar. Mér þótti
áhugavert að ná mér í háskólagráðu á
sama tíma og ég var í leiklistarnámi.
Það er vitað að það er mjög sam-
keppnishæft og erfitt að lifa af leik-
list,“ segir Anna Rósa.
„Ég hefði viljað tilheyra einhvers
konar hópi eða samfélagi eins og
Artist Inclusive er.
Artist Inclusive er alþjóðlegt
öruggt samfélag fyrir listamenn til
að tengjast, deila hugarfari lista-
mannsins og vinna saman. Ég fann
mig bara oft eina án stuðnings. Ég
held að það hafi hjálpað mér með
því að vera með alls kyns lista-
mönnum og leikstjórum í samfélagi
sem er að hluta til þess vegna sem ég
er að búa þetta til fyrir aðra.“
Viss endurspeglun
Hvernig gengur þetta fyrir sig?
„Þetta er net-rými fyrir lista-
menn til að koma saman. Það er viss
endurspeglun og nálgun. Listamenn
geta búið til verkefni saman, sem
getur síðan orðið að raunverulegri
vinnu. Allir sem ég hef tekið viðtöl
við í hlaðvarpinu mínu, þar á meðal
Helen Hunt, tala um mikilvægi þess
að tengjast öðrum listamönnum.“
Hver er kosturinn við að mynda
sterkt tengslanet og fá aðstoð frá
öðrum sem hafa verið í sömu stöðu?
„Það er mjög mikilvægt að um-
kringja sjálfan sig ólíku fólki með
sama hugarfar. Samfélagið snýst líka
um ábyrgð á hugsunum þínum og
gjörðum þínum. Artist Inclusive er
samfélag sem hjálpar listamönnum
að bera ábyrgð, skýrleika og þannig
skapa sér árangur.“
Hún segir það eitt og sér mjög
gefandi að geta hjálpað öðrum lista-
mönnum að tengjast og búa til sín
eigin vörumerki.
„Í lok dagsins er það um það sama
og það kemur niður á hugarfar lista-
mannsins. Það snýst um hvernig þú
finnur þig í faginu og hver þú ert
án starfsgreinarinnar. Þetta snýst
um hvernig þú lítur á sjálfan þig.
Hvernig þér líður þegar þú ert ekki
með vinnu,“ segir Anna Rósa.
Hún segist hafa mikinn áhuga á
að fá íslenskt listafólk með í verk-
efnið.
„Ég myndi elska að hafa íslenska
listamenn í samfélaginu og ég
myndi taka viðtal við íslenska lista-
menn fyrir hlaðvarpið Artist Inclu-
sive. Það eru margir New York-búar
í samfélaginu og ég veit að það gæti
verið mjög skemmtilegt að búa til
samstarf yfir Atlantshafið.“
Alltaf með eitthvað í gangi
Segðu mér frá hlaðvarpinu ykkar.
„Hlaðvarpið er annað form til að
tengja við listamenn. Við ræðum
við alls konar listamenn um lífs-
hætti þeirra og hvernig þeir stunda
listina.“
Hefur verið auðvelt að fá stjörnur
til að deila sinni reynslu af brans-
anum?
„Hlaðvarpið snýst ekki aðeins um
að fá stjörnur, þó að Helen Hunt hafi
haft næga trú á samfélaginu okkar
til þess að koma í viðtal. Við tölum
við alls konar listamenn, höfunda,
dansara, tónlistarfólk, sjónvarps- og
kvikmyndaleikara. Það er gefandi
að hlusta á söguna um feril þeirra og
hvernig þeir þrífast í listinni,“ segir
Anna Rósa.
Anna Rósa vinnur nú að því að
endurreisa eigið fyrirtæki eftir að
haf misst meginþorra viðskiptavina
sinna vegna heimsfaraldursins.
„Ég var að vinna með viðskipta-
vinum að skrifa texta í hótel- og
ferðageiranum. Núna er ég að vinna
með alls kyns frumkvöðlum úti um
allan heim í ýmsum atvinnugrein-
um. Mér finnst það mjög spennandi.
Ég skrifaði einnig heimildamynd
um Ellen Kristjánsdóttur í heims-
faraldrinum.,“ segir hún glaðlega
að lokum. n
Alþjóðlegt samfélag fyrir
listamenn til að tengjast
Anna fékk meðal annars stórleikkonuna Helen Hunt í hlaðvarpið til sín. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
22 Lífið 25. ágúst 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ