Fréttablaðið - 24.07.2021, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 24.07.2021, Blaðsíða 6
Verkin í kringum dýrin eru þau sömu þó að engir gestir séu, kannski helst að starfs- fólk hafi fengið meiri tíma til að kynnast þeim í gestaleysinu. Unnur Sigþórsdóttir. Persía mottur Parki býður upp á sérvaldar handhnýttar mottur og vandaðar vélofnar mottur úr hæsta gæðaflokki. Yfir 300 mottur til á lager og sérpantanir í boði. Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi | 595 0570Finndu okkur á Facebook!facebook.com/Parki.interiors Gestum í Húsdýragarðinum í Reykjavík hefur ekki fækkað þrátt fyrir að margir hafi elt veðrið á Norður- og Austur- land. Það sem af er júlí hafa yfir 33 þúsund gestir komið í garðinn. birnadrofn@frettabladid.is REYKJAVÍK „Þegar gestatölur eru skoðaðar er ekki að sjá að gestir okkar séu allir farnir út á land. Greinilegt er að margir kjósa að dvelja í höfuðborginni hvort heldur sem íbúar hennar eða gestir,“ segir Unnur Sigurþórsdóttir, verkefna- stýra fræðsludeildar Húsdýragarðs- ins, spurð um aðsóknina í garðinn í sumar. Mikill fjöldi fólks úr höfuðborg- inni hefur lagt leið sína á Norður- og Austurland þar sem mikill hiti og sól hefur verið í sumar. Meira hefur verið um súld, rigningu og þoku í borginni en líkt og Unnur segir hefur það ekki haft áhrif á fjölda gesta í Húsdýragarðinum. Það sem af er júlí hefur 33.551 gestur komið í Húsdýragarðinn og segir Dagný Hrund Valgeirsdóttir, verkefnastjóri hjá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, tölurnar benda til þess að júlí verði „mjög nálægt meðaltali síðustu ára“, en að meðal- tali hafa rúmlega 43 þúsund gestir komið í garðinn í júlí síðustu sex ár. „Gestafjöldinn okkar er rétt yfir meðaltali ef skoðuð eru seinustu ár. Hins vegar þurftum við að loka garðinum nokkuð í fyrra og því eru gestatölur í fyrra aðeins minni en venjulega,“ segir Dagný. Vegna Covid-19 faraldursins var garðurinn lokaður 24. mars til 27. maí 2020, 5. október til 9. desember 2020 og 25. mars til 14. apríl 2021. Unnur segir að vel hafi tekist til í garðinum undanfarið þrátt fyrir að nauðsynlegt hafi verið að loka í ströngustu samkomutakmörkun- unum. „Fólk sýnir hvers kyns takmörk- unum skilning og þrátt fyrir að hér hafi myndast langar raðir þegar mest var að gera í vor meðan tak- markanir voru enn við lýði gekk allt upp.“ Spurð hvort lokanirnar og farald- urinn hafi haft áhrif á líf dýranna í garðinum segir Unnur svo ekki vera. Þegar ströngustu takmarkanir hafi verið við lýði hafi verið tryggt að alltaf væri einhver á vakt til að sinna dýrunum. Starfsfólki var skipt á vaktir sem aldrei hittust þannig að ef ein vakt færi í sóttkví gætu aðrar tekið við. „Verkin í kringum dýrin eru þau sömu þó svo engir gestir séu, kannski helst að starfsfólk hafi fengið meiri tíma til að kynnast þeim í gestaleysinu,“ segir Unnur. Í maí og júní fjölgaði gestum í Húsdýragarðinum miðað við meðalfjölda síðustu sex ára. Í maí á þessu ári heimsóttu garðinn yfir 24 þúsund manns sem er fjölgun um sex þúsund gesti. Í júní er sömu sögu að segja en á þessu ári voru gestir þann mánuðinn rúmlega 35 þúsund talsins, en meðaltal síðustu sex ára er tæplega 28 þúsund gestir. n Gestum fækkar ekkert í kuldanum Miðað við undanfarin ár er gestafjöldi í Húsdýragarðinum rétt yfir meðallagi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR thg@frettabladid.is FISKVEIÐAR Alls hefur rúmlega 31 þúsund tonni af makríl verið landað á yfirstandandi vertíð. Það er tæp- lega 14 prósentum minna en á sama tíma í fyrra, þegar ríflega 36 þúsund tonnum var landað. Íslenski uppsjávarflotinn sækir nú nánast allan makríl í Síldar- smugunni austur af landinu, en um kvöldmatarleytið í gær voru á annan tug íslenskra skipa þar við veiðar. n Mun minna af makríl landað urduryrr@frettabladid.is HELLISSANDUR Guðrún Lára Pálma- dóttir, íbúi á Hellissandi, segir kríum sem verpa við Rif og Hellis- sand stafa mikil hætta af bílaumferð á svæðinu. Varfærið mat hennar er að um 25 kríur falli í valinn hvern dag, en hún telur reglulega hræin á svæðinu, en Vegagerðin gerir sér ferð einu sinni eða tvisvar á dag til að fjarlægja þau. Hún telur þó forvarnargildi í að láta kríuhræin liggja áfram á veg- inum þannig að bílstjórar geri sér grein fyrir vandamálinu. „Þetta er rosalegt ástand hérna, hreinasti hryllingur. Ár eftir ár er þetta sama uppi á teningnum og okkur íbúum mörgum misbýður aðgerðaleysið hjá bæði Snæfellsbæ og Vegagerðinni,“ segir Guðrún. Árið 2019 hóf Guðrún að vekja athygli á vandamálinu undir merki Kríuvarnarbandalagsins. Í kjölfarið var hámarkshraði lækkaður um varptímann og í fyrra voru sett upp viðvörunarskilti með blikkljósum. Hún segir þær aðgerðir hafa gert gagn og dregið úr drápinu en að í ár séu engar aðgerðir sjáan- legar. Hámarkshraði hafi ekki verið lækkaður og er nú 90 kílómetrar á klukkustund almennt en 70 við þéttasta varpið. „Ungarnir eiga engan séns,“ segir Guðrún og bendir á að það fólk sem þekki til keyri flest varlega í gegnum svæðið. Aðrir vita ekki að þeir séu að keyra beint inn í kríuvarp. „Þetta er svo mikil óvirðing við náttúruna því kríustofninn, eins og aðrir sjófuglar, er í gríðarlegum vanda vegna loftslagsbreytinga af mannavöldum,“ segir Guðrún. „Þetta er gríðarleg blóðtaka fyrir stofn sem er í hraðri hnignun og jafnvel í útrýmingarhættu. Það er líka algjör skömm að þessu hér rétt við þjóðgarðsmörk Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls.“ Guðjón H. Björnsson, verkstjóri Vegagerðarinnar í Ólafsvík, sagði í samtali við RÚV í gær að mikið eftir- lit væri með svæðinu og til skoðunar að lækka hámarkshraða. „Við lækkuðum hámarkshrað- ann á síðasta ári varanlega niður í 70 kílómetra á klukkustund en það stendur til að lækka það enn frekar, niður í 50 kílómetra á klukkustund á ákveðnum kafla,“ segir hann. Guðjón segir dagamun á því hve margir ungar eru drepnir. „Suma daga erum við að hreinsa upp 20 unga en aðra daga enga,“ segir hann. Svæðið sé vel merkt en ökumenn greinilega ekki nógu varkárir. n Á þriðja tug kríuunga í drepnir á hverjum degi við Rif Vegagerðin fjarlægir kríuhræin. birnadrofn@frettabladid.is AUSTURLAND Tjaldsvæðið á Egils- stöðum var fullt í gær líkt og það hefur verið í næstum allt sumar. Mikil veðurblíða hefur verið á Aust- urlandi í sumar og enn er góð spá. Ríkey Dröfn Ágústsdóttir, starfs- maður tjaldsvæðisins, segir að komið hafi fyrir að þurft hafi að vísa fólki frá þegar tjaldsvæðið er orðið fullt. n Þurfa að vísa fólki frá á tjaldsvæðinu Ekkert lát er á góðviðrinu á Austur- landi og flykkjast Íslendingar austur. 6 Fréttir 24. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.