Fréttablaðið - 24.07.2021, Blaðsíða 49

Fréttablaðið - 24.07.2021, Blaðsíða 49
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Sigurborgar Bragadóttur Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hjartadeildar Landspítalans v/Hringbraut. Sigurþór Ellertsson Sólveig Ragna Sigurþórsdóttir Sigþrúður Sigurþórsdóttir Páll Þórir Ólafsson Ellert Bragi Sigurþórsson Eva Arna Ragnarsdóttir barnabörn og barnabarnabarn. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Atla Benediktssonar Brekatúni 2, Akureyri. Steinþóra Vilhelmsdóttir Álfheiður Atladóttir Sigtryggur Sigtryggsson Kristveig Atladóttir Heimir Finnsson Þóra Atladóttir Klara Ósk Bjartmarz og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Bryndís Ólafsdóttir Sléttuvegi 25, Reykjavík, lést 18 júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Kristján Gunnlaugsson Einar Kristjánsson Katrín Ásgrímsdóttir Gunnlaugur F. Kristjánsson Katrín Björnsdóttir og ömmubörn. Ástkær eiginmaður minn, Eyþór Björgvinsson læknir, Kópavogstúni 9, Kópavogi, lést á blóðlækningadeild Landspítala, fimmtudaginn 22. júlí. Útförin verður auglýst síðar. Ágústa Benný Herbertsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, stjúpmóðir, amma og langamma, Katrín Jónsdóttir Árskógum 6, Reykjavík, lést þann 17. júlí á Hjúkrunarheimilinu Grund. Útför hennar fer fram frá Seljakirkju þriðjudaginn 27. júlí klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á Seljakirkja.is. Eyrún Magnúsdóttir Andrés Magnússon Áslaug Gunnarsdóttir Jón Magnússon Guðrún Bergþórsdóttir Ásmundur Magnússon Ásdís Þrá Höskuldsdóttir Steinunn S. Magnúsdóttir Jesper Madsen Sæmundur Þ. Magnússon barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sonur okkar, faðir, bróðir, barnabarn og unnusti, Jón Ágúst Berg Jónsson lést á Landspítalanum í Fossvogi eftir erfið veikindi þann 15. júlí í faðmi fjölskyldu sinnar. Jarðað verður í kyrrþey að ósk hins látna. Guðrún Dröfn Birgisdóttir Jón Berg Reynisson Jenný Klara Jónsdóttir Reynir Gestur Jonni Jónsson Belinda Berg Jónsdóttir Reynir Berg Jónsson Jenný Klara Jónsdóttir Reynir Jóhannsson Hrefna Axelsdóttir Birgir Gunnarsson Sandra Einarsdóttir Ástrík eiginkona, móðir og amma, Ragnheiður Þórarinsdóttir sjúkraliði, lést sunnudaginn 18. júlí á Landspítalanum. Útför hennar verður gerð frá Selfoss- kirkju miðvikudaginn 28. júlí kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en bent á líknarsjóði Oddfellowreglunnar. Þórarinn Th. Ólafsson Ágústa M. Þórarinsdóttir Andrew Brydon Kristín Th. Þórarinsdóttir Egill Harðarson Ólöf H. Þórarinsdóttir Einar Espólín Storo og barnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Björn Sigurðsson frá Möðruvöllum í Hörgárdal, fv. lögregluvarðstjóri í Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi mánudaginn 5. júlí. Útförin verður frá Bústaðakirkju í Reykjavík mánudaginn 26. júlí klukkan 13. Ágústa Björnsdóttir Sigurður Björnsson Hanne Margit Hansen Kristján Björnsson Guðrún Helga Bjarnadóttir Björn Ágúst Björnsson Elísa Nielsen Eiríksdóttir María Kristín Björnsdóttir Robert Lacy Shivers barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir minn, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, Finnbogi Jóhannsson fyrrverandi skólastjóri, lést á Vífilsstöðum fimmtudaginn 15. júlí. Hann verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju í Reykjavík mánudaginn 26. júlí kl. 13.00. Jarðsett verður á Djúpavogi miðvikudaginn 28. júlí. Fyrir hönd aðstandenda, Sveinn Finnbogason Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Laufey Þorleifsdóttir Gullsmára 7, Kópavogi, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sólvangi 14. júlí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju, mánudaginn 26. júlí kl. 13. Hreiðar S. Albertsson Sigurlaug Albertsdóttir Eyþór Þórarinsson Guðrún A. Farestveit Hákon Farestveit Elín Albertsdóttir Ásgeir Tómasson Þorbjörg Albertsdóttir Leópold Sveinsson barnabörn og langömmubörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurður Björnsson Stóra-Lambhaga 3, Hvalfjarðarsveit, lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða, sunnudaginn 18. júlí. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 27. júlí kl. 13. Streymt verður frá útförinni á vef Akraneskirkju. www.akraneskirkja.is Sólveig Sigurðardóttir Sigurður Sigurðsson Hrefna Guðjónsdóttir Björn Sigurðsson Áslaug Ásmundsdóttir afabörnin. Merkisatburðir 1567 María Skotadrottning er neydd til að afsala sér völdum í hendur sonar síns, Jakobs 6. 1783 Fæddur Símon Bólívar, frelsishetja Suður- Ameríku (d. 1830). 1847 Mormónar undir for- ystu Brighams Young nema land í Utah. 1896 Nunnur koma til Ís- lands í fyrsta sinn eftir siðaskipti. Þær eru fjórar og setjast hér að til að annast hjúkrun og vitja sjúkra. Þetta er upphaf starfs St. Jósefs- systra í Reykjavík og Hafnarfirði. 1902 Fæddur Sigurður S. Thoroddsen, íslenskur verk- fræðingur, stjórnmálamaður og knattspyrnumaður (d. 1983). 1924 Alþjóðaskáksambandið stofnað í París. 1956 Vinstri stjórnin, ríkisstjórn Framsóknar, Alþýðu- bandalags og Alþýðuflokks undir stjórn Hermanns Jónassonar, tekur við völdum og situr í tvö ár. n Sovéski geimfarinn Júrí Gagarín steig niður fæti á Keflavíkurflugvelli sunnu- daginn 24. júlí 1961. Vél hans hafði þá millilent á Íslandi á leið geimfarans til Kúbu eftir boð frá Fídel Kastró. Gag- arín hafði nýlokið geimferð sinni með farinu Vostok 1 og þar með orðið fyrsti maðurinn til að fara út í geim. Á Keflavíkurflugvelli tók hópur fólks á móti Gagarín sem sat síðar fyrir svörum á blaðamannafundi á flugvallarhótel- inu. Gagarín líkt og venjulega glaðlegur og lék á als oddi. Hann útskýrði fyrir gestum að hann hefði komið sér upp stæðilegu frímerkjasafni af öllum þeim bréfum og kortum sem hann fékk eftir förina. Fyrsta spurningin sem Gagarín svaraði var hvort flugferðin til Íslands hefði verið jafnerfið og geimferðin, sem hann svaraði neitandi. Þá sagðist hann ekki getað svarað því af hverju hann hefði verið valinn í geimförina þar sem hann hefði ekki valið í geimferðina, en ef hann hefði átt kost á að velja þá hefði hann að sjálfsögðu valið sjálfan sig. Hann þorði ekki að segja til um hvort honum hefði líkað betur geim- skipið Vostok eða ítalska leikkonan Gina Lollobrigida þar sem ekki væri hægt að gera samanburð á lifandi fólki og dauðum hlutum. Á fundinum hrósaði Gagarín komm- únismanum og Sovétskipulaginu og sagði að það væri því að þakka að geim- för sín hefði verið möguleg. Hann bætti við að ef eitthvað hefði komið fyrir sig þá hefði geimfarið lent sjálfkrafa, en að enginn annar hefði getað stjórnað skipinu. Að lokum neitaði Gagarín að hafa beðið til guðs fyrir geimferðina þar sem „sannur kommúnisti biður ekki til guðs“. Með því var fundinum lokið. Hann ferðaðist til fjölda landa en sökum vinsælda hans bannaði John F. Kennedy Bandaríkjaforseti honum að heimsækja Bandaríkin. Á árunum sem eftir fylgdu sinnti hann ýmsum störfum við þróun geimfara fyrir Sovétríkin, en sovéskir embættismenn vildu halda honum frá öllu flugi svo þeir ættu ekki á hættu að missa þjóðarhetjuna. Árið 1964 sótti hann um að verða orrustu- þotuflugmaður líkt og hann hafði starfað við á árum áður, en honum var synjað um það þar sem hann hefði þyngst og hæfileikum hans hrakað. 27. mars 1968 lést Gagarín þar sem hann var í þjálfunarflugi frá flugstöðinni í Chkalovsky þegar þotan brotlenti. Ösku Gagaríns var komið fyrir í veggjum Kremlínar. Margar samsæriskenningar spruttu upp í kjölfar brotlendingarinnar um ótímabært andlát Gagaríns. n Þetta gerðist: 24. júlí 1961 Júrí Gagarín millilendir í Keflavík FRÉTTABLAÐIÐLAUGARDAGUR 24. júlí 2021 Tímamót 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.