Fréttablaðið - 24.07.2021, Page 8
En úr því
þessi mál
komu upp
á síðari
hluta fyrsta
áratugarins
sætir furðu
að enn séu
að dúkka
upp mál
eins þau
sem tengj-
ast vöggu-
stofunum
illræmdu.
Hvort
vegur
þyngra:
Óhindrað
streymi
ferða-
manna um
landamæri
eða hindr-
unarlaust
skólastarf í
haust?
Jón
Þórisson
jon@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is
Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Sif
Sigmarsdóttir
n Mín skoðun
n Gunnar
Mannvonskunni virðast engin takmörk sett. Ítrekað í gegnum söguna má finna kafla því til sönnunar. Sumir eru vondir og vita af því – aðrir villast í vonsku án þess að ætla sér það.
Vonskan birtist í ýmsum myndum en sárast svíður
undan þegar börn og þeir sem ekki geta borið hönd
fyrir höfuð sér eiga í hlut.
Nýlega komst í hámæli aðbúnaður barna á vöggu-
stofum Reykjavíkur þar sem börn voru vistuð um
langan eða skamman tíma, fjarri ást og umhyggju á
árunum 1949 til 1973. Fyrir umræðunni nú fara þeir
Fjölnir Geir Bragason, Hrafn Jökulsson, Tómas V.
Albertsson, Viðar Eggertsson og Árni H. Kristjánsson.
Í Fréttablaðinu um liðna helgi lýsir Árni reynslu
sinni af vistinni á vöggustofu á liðinni öld. Það er
átakanleg frásögn af grimmd sem virðist leiða af
fáfræði og kreddum. Þar segir meðal annars: „Það
sem enginn skilur er, hvernig gátu yfirvöld rekið
skaðlega starfsemi sem stríðir gegn mannlegu eðli,
heilbrigðri skynsemi og fyrirliggjandi rannsóknum.
Það er gjörsamlega óskiljanlegt hvernig hægt var að
hunsa grátandi börnin. Á endanum hættu börnin
að gráta. Það eru til heimildir um að börn hafi hætt,
ómeðvitað auðvitað, að nærast, því þau gáfust upp.
Þau fengu aldrei örvun, sem er grundvallaratriði fyrir
þroska ungbarna. Það var beinlínis forboðið að sinna
öðru en líkamlegum þörfum barnanna. Mörg urðu
rang- eða tileygð vegna þess að þau sáu bara loftið úr
rimlarúmunum og fengu enga skynörvun.“
Hann lýsir því jafnframt að þegar börnin sluppu úr
prísundinni hafi mörg þeirra verið ótalandi og bjuggu
við málhelti fram eftir aldri. Sum þróuðu með sér sitt
eigið tungumál því enginn talaði við þau.
Saga vöggustofanna er svartur blettur. Og því miður
er þetta ekki dæmalaust. Áður hafa komið upp mál
sem tengjast niðurlægjandi og vanvirðandi meðferð
á börnum og ungmennum, meðal annars í Breiðavík,
Heyrnleysingjaskólanum, Kumbaravogi og víðar.
Sérstök rannsókn fór fram í kjölfar þess að dökk for-
tíð þessarar starfsemi komst í dagsljósið og á grund-
velli hennar bauð ríkið fram bætur. Þeim málum er
nú lokið þó aldrei verði bætt fyrir líf sem tapast eða
gleði sem aldrei kviknaði í brjósti þeirra sem lentu í
höndum fólks sem beitti harðræðinu.
En úr því þessi mál komu upp á síðari hluta fyrsta
áratugarins sætir furðu að enn séu að dúkka upp mál
eins og þau sem tengjast vöggustofunum illræmdu.
Það er ekki vegna þess að ekki var reynt að koma
frásögnum á framfæri. Það var vegna þess að ekki var
hlustað.
Viðar Eggertsson, einn fimmmenninganna, reyndi
hvað hann gat að segja þessa sögu fyrir nærri tveimur
áratugum með þáttunum Eins og dýr í búri sem fluttir
voru í útvarpi. Þó þættirnir hafi vakið einhverja
athygli hljóðnaði umræðan fljótt.
Af hverju? Er mögulegt að sögurnar séu of óþægi-
legar til að menn leggi við hlustir? Getur verið að enn
séu einhverjir að burðast með fortíð af sambærilegu
tagi sem ekki hafa stigið fram í dagsljósið?
Samhliða því að rannsaka starfsemi vöggustofanna
nú, þarf að tryggja að farvegur fyrir sambærileg mál sé
greiður og hlustað sé á hinum endanum. n
Mannvonskan
Ný bylgja Covid varpar skugga yfir íslenskt samfélag. Vissir ráðherrar innan ríkisstjórnarinnar hafa þó látið
í ljós efasemdir um að rök séu fyrir sótt-
varnaaðgerðum.
Óvissan er sannarlega mikil. Hvaða
áhrif hafa bólusetningar á sjúkdóminn og
útbreiðslu hans? Er raunveruleg hætta á að
heilbrigðiskerfið kikni undan álagi? Eitt er
þó engum vafa undirorpið: Þeir sem láta í
veðri vaka að valið standi milli fangelsis sótt-
varnaaðgerða annars vegar og almenns frelsis
hins vegar fara með fleipur.
Síðastliðinn mánudagur var svo kallaður
„frelsisdagur“ hér á Englandi þar sem ég bý.
Þann dag var þeim fáu sóttvarnareglum sem
enn voru við lýði aflétt. Boris Johnson for-
sætisráðherra hafði búið sig undir að marka
tímamótin með ræðu í anda ræðu Churchill
við sigur í heimsstyrjöldinni síðari. Háleit
áformin féllu hins vegar um sjálf sig þegar í
ljós kom að frelsið leit öðruvísi út en hann
hafði ímyndað sér.
Þótt bólusetningarátak Bretlands sé með
þeim best heppnuðu í heimi hefur nýgengi
Covid-smita aukist á ógnarhraða síðustu
vikur. Í aðdraganda „frelsisdagsins“ hvöttu
1.200 vísindamenn stjórnvöld til að fresta
afnámi sóttvarna sem þeir sögðu „siðlausa til-
raun“. Skoðanakönnun sýndi að almenningur
var sammála. En Boris sat við sinn keip.
Þegar „frelsisdagurinn“ rann upp var for-
sætisráðherrann kominn í sóttkví. Sama
gilti um fjármálaráðherrann. Heilbrigðisráð-
herrann var veikur af Covid-19. Keir Starmer,
leiðtogi stjórnarandstöðunnar, sagði aflétt-
ingu sóttvarna í miðri bylgju „glapræði“ og að
„hætta væri á að grípa þyrfti til enn harðari
aðgerða síðar meir.“ Tveim dögum síðar var
Keir kominn í sóttkví ásamt einu barna sinna
sem greinst hafði með kórónaveiruna.
Sama dag voru milljón börn frá skóla vegna
Covid-smita sem komið höfðu upp í sótt-
varnarhólfum. Starfsfólk á almennum vinnu-
markaði var í auknum mæli veikt eða hafði
verið skikkað í sóttkví. Fyrirtæki lokuðu
vegna skorts á vinnuafli; verksmiðjur, veit-
ingastaðir. Hillur stórmarkaða stóðu tómar.
Spítalar þurftu að aflýsa skurðaðgerðum.
Leikhúsfrömuðurinn Andrew Lloyd
Webber barðist hart gegn sóttvörnum í
faraldrinum og hótaði að fara í mál við stjórn-
völd fengi hann ekki að setja á svið nýjasta
söngleik sinn, Öskubusku, fyrir fullu húsi.
Draumur Lloyd Webber um frelsi undan
höftum hafði ekki fyrr ræst en draumurinn
breyttist í martröð. Einn leikaranna í Ösku-
busku veiktist af Covid svo að fresta þurfti
langþráðri frumsýningunni sem fara átti
fram á „frelsisdaginn“.
Það eru ekki aðeins sóttvarnaaðgerðir sem
skerða frelsi á tímum Covid. Frelsi Andrew
Lloyd Webber til að fylla leikhús af fólki
skerðir frelsi barna til órofinnar skólagöngu.
Frelsi mitt til að fljúga til Íslands frá London,
helstu gróðrarstíu Delta-afbrigðisins í
Evrópu, skerðir frelsi barnshafandi kvenna
á Íslandi, sem flestar eru óbólusettar, til að
fara í Krónuna að kaupa í matinn. Útbreidd
kórónaveirusmit valda veikindum og skerða
þannig frelsi fólks til að afla sér lífsviðurværis.
Tómar hillur verslana skerða frelsi okkar til
að kaupa humar og hvítvín á sunnudögum
sem og á öðrum dögum.
Englendingar endurheimtu frelsi sitt í
vikunni. Engu að síður búa margir við meiri
höft nú en fyrir „frelsisdaginn“.
Fátt er mikilvægara en að vera á varðbergi
gagnvart stjórnvöldum er þau skerða frelsi
borgaranna. Staðreyndin er hins vegar sú að á
tímum heimsfaraldurs er frelsið jafnvægislist.
Hvort vegur þyngra: Óhindrað streymi ferða-
manna um landamæri eða hindrunarlaust
skólastarf í haust? Grímulaus verslunarleið-
angur eða gestagangur á öldrunarheimilum?
Þeir sem láta eins og hægt sé að komast hjá
því að forgangsraða frelsi fólks á tímum Covid
eru að blekkja sjálfa sig – eða aðra. n
Frelsi og fleipur
HITAVEITA SELTJARNARNESS TILKYNNIR
LOKUN Á HEITU VATNI Á ÖLLU
SELTJARNARNESI MÁNUDAGINN 26. JÚLÍ
Vegna viðgerða verður lokað fyrir heita vatnið á
Seltjarnarnesi mánudaginn 26. júlí frá kl. 19:00 og
fram að morgni. Lokunin nær yfir allt Seltjarnarnes.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum
sem þetta kann að valda.
Hitaveita Seltjarnarness
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 24. júlí 2021 LAUGARDAGUR