Fréttablaðið - 24.07.2021, Side 12
Tíunda Druslugangan fer frá
Hallgrímskirkju klukkan 14
í dag, laugardag. Inga Hrönn
Jónsdóttir, einn forsvars-
manna göngunnar, segir fólk
þyrst í að fá hana aftur enda
var henni aflýst í fyrra.
Druslugangan verður gengin í tíunda skiptið í dag, laugardaginn 24 júlí. Druslugangan er gengin til að sýna
samstöðu með þolendum kyn-
ferðisof beldis. Lagt verður af stað
klukkan 14 frá Hallgrímskirkju
niður á Austurvöll þar sem haldnar
verða ræður og flutt tónlistaratriði.
Þema göngunnar í ár er valdaójafn-
vægi. Inga Hrönn Jónsdóttir, einn af
forsvarsmönnum göngunnar, ræddi
við Fréttablaðið um gönguna.
„Fólk er orðið svolítið þyrst í að
fá gönguna aftur, það var engin
ganga í fyrra vegna faraldursins,“
segir Inga Hrönn. Áhuginn er ekki
síst vegna annarrar bylgju #MeToo,
ef svo má að orði komast, sem hófst
fyrr á þessu ári. „Fólk er mjög reitt
vegna allrar umfjöllunarinnar sem
er búin að vera. Gangan er á mjög
góðum tíma miðað við umræðuna
í þjóðfélaginu.“
Einblínt á jaðarsetta hópa
Búist er við að um þúsund manns
taki þátt. Þemað í ár er valdaójafn-
vægi. „Það er í samræmi við allt sem
er búið að vera í gangi í umræðunni.
Við ætlum að einblína á jaðarsetta
hópa í ár,“ segir Inga Hrönn. Hún
segir margar birtingarmyndir af
valdaójafnvægi. „Þetta getur verið
fatlaður einstaklingur á móti ófötl-
uðum einstaklingi. Þetta getur
verið yfirmaður eða einhver frægur.
Einstaklingur sem er hátt settur
í þjóðfélaginu sem brýtur á ein-
hverjum sem er lægra settur.“ Jað-
arsettir hópar eru einnig af mörgu
tagi. „Þetta eru til dæmis innflytj-
endur, heyrnarlausir eða fatlaðir,
þetta er svo margslungið.“
Druslugangan á rætur sínar að
rekja til Toronto í Kanada. „Lög-
reglan þar fór að tala um að konur
þyrftu ekki að klæða sig eins og
druslur til að verða ekki fyrir kyn-
ferðislegu ofbeldi og áreitni. Druslu-
gangan var haldin fyrst þar árið
2011. Upphaflega var þetta þannig
að konur mættu saman í „drusluleg-
um“ fötum til að skila skömminni,“
segir Inga Hrönn. „Síðan þróaðist
þetta yfir í að við tökum sérstaka
málaflokka fyrir.“
Eigum langt í land
Inga Hrönn segir að Ísland sé komið
mjög langt í þessari baráttu á þeim
áratug sem er liðinn frá fyrstu göng-
unni. „Við erum komin mjög langt
að mörgu leyti en það er samt líka
mjög langt í land, við sjáum það
bara á umræðunni síðustu vikur.“
Í kjölfar göngunnar munu for-
svarsmenn Druslugöngunnar fara í
herferð til að vekja athygli á úrræð-
um fyrir jarðarsetta hópa. „Við
erum að hanna plaköt
núna sem sýna hvar
er hjólastólað-
gengi í höfuð-
borginni fyrir
fatlaða. Hvar
er hæg t að
nálgast túlka-
þ j ó n u s t u .
Ýmislegt þannig,“
segir Inga Hrönn.
Þá hyggst hópurinn
fara með fræðslu í
skóla og félagsmið-
stöðvar. „Við ætlum
að fara með fyrir-
lestra í skóla og í félags-
miðstöðvar þar sem við bendum
á úrræði fyrir jaðarsetta hópa. Til
dæmis, ef þú ert í vímuefnaneyslu
þá getur þú leitað á tiltekna staði.
Þessir hlutir eiga það til að gleym-
ast í umræðunni því hún á ekki við
alla.“
Einblína á jaðarsetta hópa
Ari
Brynjólfsson
arib
@frettabladid.is
Ætla má að
mætingin í
Druslugönguna
verði góð í ár.
Búist er við að um þúsund manns mæti í gönguna í ár.
Skilaboðin sem sjást eru margvísleg. Þemað nú er valdaójafnvægi í ýmsum birtingarmyndum.
Gangan hefst við Hallgrímskirkju.
Margir bókað í flúr
Húðf lúrstofan Dragonf ly Ink í
Kringlunni hefur síðustu daga
boðið upp á sérstakt Druslugöngu-
tattú. Stofan var opnuð í maí síð-
astliðnum og er rekin af Sólveigu
Hlynsdóttur og bróður hennar Páli
Heiðari. „Ég held að við séum búin
að bóka í 45 húðflúr í heildina. Við
erum að rúlla um átta til tíu á dag,“
segir Sólveig. Einn skipuleggjandi
göngunnar fékk sér svona húðflúr
fyrir nokkrum árum, sá f lúrari er
nú látinn. „Við hönnuðum f lúrið
upp úr hennar.“
Druslugönguf lúrið er um níu
sentimetrar á lengdina og sex senti-
metrar á breidd. Húðflúrið kostar
tíu þúsund krónur sem telst ódýrt
þegar kemur að húðflúrum. „Þetta
er ekkert sem við erum að græða á,
við erum að þessu til að skila okkar
til samfélagsins.“
Slegið í gegn
Sólveig segir að f lestir fái sér húð-
flúrið til að sýna málstaðnum sam-
stöðu. „Árið er 2021, það er alveg í
lagi að konur gangi í stuttu pilsi
niður í bæ án þess að eiga von á ein-
hverju. Það mega allir vera eins og
þeir vilja án þess að eiga skilið að
lenda í einhverju. Þetta er samstaða
um að það er ekki í lagi að brjóta á
öðrum og að það sé ekkert til að
skammast sín fyrir.“
Sólveig segir að stærsti hluti
þeirra sem fái sér f lúrið séu konur.
„Það eru um 80 prósent konur. En
það eru alveg að detta karlar inn til
okkar líka.“
Flúrið verður á tilboði alveg
fram að göngunni. „Síðasta f lúrið
er bókað rétt fyrir göngu,“ segir
Sólveig. Hún segir að stefnt verði
á að bjóða upp á svipað tilboð að
ári. „Þetta er fyrsta skiptið sem við
prufum þetta og viljum sjá hvaða
viðtökur þetta fengi, það gjörsam-
lega sló í gegn þannig að við munum
halda þessu ár.“ n
Inga Hrönn Jónsdóttir, einn forsvarsmanna Druslugöngunnar, segir áhugann á göngunni mikinn í ár, ekki síst vegna annarrar bylgju #MeToo. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
HELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 24. júlí 2021 LAUGARDAGUR