Fréttablaðið - 24.07.2021, Side 24
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@
frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Í Súðavík er Raggagarður,
sem býður upp á alls kyns
afþreyingu og þægindi fyrir
alla fjölskylduna. Vilborg
Arnarsdóttir setti garðinn á
laggirnar og þrotlaus sjálf-
boðavinna hefur gert garð-
inn að eftirsóknarverðum
áfangastað.
Raggagarður er skemmtigarður
fyrir alla fjölskylduna í Súðavík.
Vilborg Arnarsdóttir (einnig þekkt
sem Bogga í Súðavík) er frumkvöð-
ull að uppsetningu hans og fram-
kvæmdastjóri Raggagarðs. Nafn
garðsins kemur frá syni Vilborgar,
Ragnari Frey Vestfjörð, sem lést í
bílslysi í Súðavík 17 ára gamall árið
2001, en Vilborg setti garðinn upp
til minningar um hann.
Súðavíkurhreppur lagði til
lóðina og garðurinn var fyrst
opnaður árið 2005, en frá stofnun
hefur garðurinn tekið miklum
breytingum þökk sé þrotlausri
sjálfboðavinnu heimamanna og
annarra velunnara garðsins. Þar
eru nú leiktæki fyrir yngri og eldri
börn, sæti og borð fyrir 130 manns,
grill sem hægt er að er fá afnot af
og ýmislegt fleira.
Hefur öðlast sjálfstætt líf
„Raggagarður hefur í raun öðlast
sjálfstætt líf og er nú farinn að
þróast sjálfur,“ segir Vilborg. „Þetta
byrjaði þannig að ég ætlaði að
kaupa leiktæki svo ég fór af stað
með fjáröflun. Fyrsti styrkurinn
kom frá Pokasjóði og þannig fór
þetta allt af stað.
Nú er þetta orðið miklu stærra
en ég ætlaði mér í upphafi. Fólk
kemur með alls kyns hugmyndir
og hefur gefið garðinum ýmis lista-
verk, svo að nú eru sjö listaverk til
sýnis í honum, þar á meðal verkið
Blóm í glugga eftir Jón Gunnar
Árnason,“ segir Vilborg. „Fjöl-
skylda Finns Jónssonar ákvað að
gefa Raggagarði verkið, sem var
mikill heiður. Við erum líka með
sex gríðarlega falleg verk eftir
Gerði Gunnarsdóttur.“
Rukkuð um þakkir og knús
„Það er gríðarlega mikið hjarta í
garðinum og ég hefði aldrei getað
gert þetta án þess að fá svona
mikla hjálp frá Vestfirðingum og
öðrum landsmönnum,“ segir Vil-
borg. „Ég fer aldrei í framkvæmdir
sem ég á ekki fyrir og tek aldrei lán
en ég hef fengið stórar gjafir sem
hafa munað miklu.
Þegar ég bað um torf á túnið
sem er hérna, sem er kallað Bog-
gutún, vildi ég fá einhverja verð-
hugmynd, en fékk frekar óskýr
svör. Svo kom maður með svaka-
legt magn af torfi og þegar ég
ætlaði að fara að borga sagði hann
bara „segðu bara takk“,“ segir Vil-
borg. „Svipað gerðist þegar mig
vantaði sand fyrir bílaplanið. Ég
bað um farm af sandi og svo mætti
maður með svakalegt magn af
sandi og spurði hvar ætti að sturta
þessu niður. Þetta var svo mikið
að ég vissi ekki hvaðan á mig stóð
veðrið en svo var ég bara rukkuð
um eitt knús.
Eitt sinn vantaði mig líka hjálp
við að mála og þá kom elsti maður
í Bolungarvík hingað með 100
þúsund króna framlag og spurði
hvað þyrfti að mála og svo málaði
hann, þessi elska,“ segir Vilborg.
Það eru ótal dæmi um svona,
fólk kemur bara og hjálpar. Þetta
munar öllu, því allur garðurinn er
afrakstur sjálfboðavinnu. Vest-
firðingar og landsmenn allir hafa
lagt mikið í þennan garð,“ útskýrir
Vilborg.
Margt að sjá og gera
„Það hefur svo spurst út hvað
þetta er fallegur garður og fólk er
að uppgötva að þetta er ekki bara
leiksvæði fyrir börn heldur eru hér
líka skemmtileg útivistarsvæði
fyrir alla,“ segir Vilborg. „Hér er
líka svið og áhorfendasvæði þann-
ig að það er hægt að halda útihátíð,
ættarmót og alls kyns skemmt-
anir fyrir börn og fullorðna. Svo
er tjaldsvæði bara hérna rétt hjá.
Þetta svæði býður upp á gríðarlega
möguleika.
Það er líka ýmislegt að sjá hér og
gert ráð fyrir að fólk njóti umhverf-
isins. Hér er hægt að skoða hval-
sporð, sögu fyrstu hrefnuveiðanna,
dvergasteina, álfasteina og setjast
niður í rekaviðarskóginum,“ segir
Vilborg. „Við byrjuðum ekki á
þeim hluta garðsins fyrr en eftir
2008, en þá var hér eingöngu leik-
svæði, sem garðurinn hefur verið
þekktur fyrir. Svæðið hefur tekið
stakkaskiptum síðan þá.
Margir segja að Raggagarður sé
falin perla, en við auglýsum aldrei
því að við pössum rosalega vel
upp á hverja krónu,“ segir Vilborg.
„Við seljum ekki aðgang í garðinn
en frjáls framlög eru vel þegin í
baukinn.“
Vilborg setti upp teljara til að
telja gesti Raggagarðs fyrir þremur
árum síðan.
„Fyrsta árið fengum við 7.000
gesti og það sem af er á þessu ári
höfum við tekið á móti um 9.000
gestum,“ segir Vilborg. „Bílaplanið
er líka búið að vera sneisafullt og
margir koma til Súðavíkur sérstak-
lega til að heimsækja Raggagarð og
Melrakkasetrið.“
Miklar framkvæmdir í sumar
„Það hafa verið miklar fram-
kvæmdir í Raggagarði í sumar og
núna er búið að gera alla göngu-
stíga aðgengilega fyrir hjólastóla,
göngugrindur og annað slíkt. Það
er líka kominn betri rampur og
aðgengi að klósettinu og þar inni
eru líka höldur,“ segir Vilborg.
„Við erum bara á rosa góðum stað
miðað við að vera bara í litlu Súða-
vík og vera bara áhugamannafélag.
Það er kraftaverk að garðurinn sé
orðinn svona fínn.
Ég hef ekki hugsað mér að bæta
miklu við, en ungmennafélagið
Geisli í Súðavík vill setja upp frisbí-
golfvöll í samstarfi við garðinn og
það á eftir að bæta við nokkrum
upplýsingaskiltum á Boggutún.
Það eru einu framkvæmdirnar sem
eru fyrirhugaðar,“ segir Vilborg.
„En það er enn nóg pláss fyrir fleiri
listaverk ef einhverjir vilja setja
upp listaverkin sín.
Það er margt að skoða hérna í
Raggagarði og það verður enginn
fyrir vonbrigðum við að kíkja til
Vestfjarða, stoppa í Súðavík og
njóta garðsins. Við hvetjum alla
til að koma í heimsókn, koma sér
fyrir á flotta tjaldsvæðinu og njóta
lífsins með okkur,“ segir Vilborg að
lokum. n
Hægt er að fá nánari upplýsingar
um Raggagarð á heimasíðu garðs-
ins og það er hægt að fylgjast með
garðinum með því að gerast vinur
hans á Facebook, þar sem Vilborg
er dugleg að setja inn stöðuupp-
færslur.
Falin perla fyrir alla fjölskylduna
Hér sést Vilborg í Raggagarði með eiginmanni sínum, Halldóri Má Þórissyni.
Þarna eru þau nýbúin að helluleggja við salernishúsið. MYND/AÐSEND
„Gönguhátíðin í Súðavík fer fram
dagana 31. júlí–2. ágúst næstkom-
andi. Hátíðin hófst sem samstarfs-
verkefni hjá gönguhópi Einars
Skúlasonar, Veseni og vergangi,
Súðavíkurhreppi og Göngufélagi
Súðavíkur og hefur farið fram í
nokkur ár og verið í vexti,“ segir
Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri
Súðavíkurhrepps.
„Á hátíðinni verður boðið upp
á göngur fyrir bæði lengra og
skemmra komna og alla fjölskyld-
una. Þetta er fyrst og fremst fjöl-
skylduskemmtun og hún hentar
vel göngufólki, en er alls ekki bara
fyrir vana göngugarpa,“ segir Bragi.
„Mest krefjandi göngurnar eru
frekar fyrir vana en auðveldasta
gangan er bara leiðsögn um bæinn,
þannig að allir ættu að finna eitt-
hvað við sitt hæfi.
Árið 2019 var hátíðin gríðar-
lega vel sótt og heppnuð, enda var
veðrið alveg frábært, en í fyrra setti
veðrið strik í reikninginn þannig
að það komu færri. Það er yfirleitt
þannig með svona útivistarferðir
að fólk er með plan B ef það er
vont veður,“ segir Bragi. „En það
er búið að vera gott veður á Vest-
fjörðum í sumar og spáin er góð,
svo við sjáum fram á líflega hátíð
og hlökkum til, en að sjálfsögðu
klæðum við okkur eftir veðri.“
Öflug dagskrá alla helgina
„Það sem gefur hátíðinni sérstöðu
er náttúrufegurðin sem er hér í
kring, það er einstaklega gaman
að fara í göngur hér á svæðinu,“
segir Bragi. „Ég held líka að þetta
sé eina hátíðin á landinu sem er
með skipulagða dagskrá í kringum
göngur. Svo er þetta líka hentug
hátíð núna þegar staðan er eins og
hún er vegna Covid, því hún kallar
Hátíðin hefst
með pub-quiz á
Melrakkasetrinu
á fimmtu-
dagskvöld.
Fyrsta gangan
hefst svo strax
morguninn eftir
og síðan verður
þétt dagskrá
alla helgina.
MYNDIR/AÐSENDAR
Í kringum Súðavík er einstök náttúrufegurð. Það er til
dæmis mögnuð upplifun að ganga upp á Kofra.
Auðveld-
asta gang-
an er bara
leiðsögn
um bæinn,
þannig að
allir ættu
að finna
eitthvað
við sitt
hæfi.
Bragi Þór.
ekki á meiri nálægð en fólk treystir
sér til.
Það verður þétt dagskrá yfir
hátíðina sem hefst með pub-quiz
með búlgörsku þema á Melrakka-
setrinu á fimmtudagskvöld, en
þar verður einnig boðið upp á
búlgarsk an mat. Við erum mjög
fjölþjóðleg hér í Súðavík og
rekstraraðili Melrakkasetursins
í sumar hefur búlgarskan bak-
grunn,“ segir Bragi. „Svo hefst
fyrsta gangan strax klukkan hálf
níu á föstudagsmorgun, en það er
svona passlega krefjandi ganga.
Síðan verður hátíðin formlega sett
klukkan hálf átta um kvöldið. Þá
verður stutt skrúðganga að brennu
og svo tekur setningarathöfn við.
Göngurnar halda svo áfram yfir
helgina og sunnudagur verður
þéttasti göngudagurinn, en þá
verða göngur klukkan 9, 11 og 12.
Þá þarf fólk að velja á milli, það
gefst áreiðanlega ekki tími til að
fara í þær allar.“
Nóg að gera fyrir þau yngstu
„Fyrir utan göngur verður ýmislegt
annað um að vera. Við viljum ekki
binda dagskrána alfarið við göngu-
fólk, heldur leggjum við áherslu
á að bjóða alla velkomna og hafa
afþreyingu fyrir alla fjölskylduna.
Það verður náttúrulega nóg að gera
fyrir yngstu kynslóðina í Ragga-
garði, en þar hefur verið gríðarleg
uppbygging, ekki síst í sumar og
það er mikil aðsókn í garðinn,“
segir Bragi. „Við verðum líka með
hoppukastala og fleira fyrir krakk-
ana. Svo verður einhvers konar
matarþema í gangi alla dagana
sem tengist fjölmenningunni hér
og við ætlum að bjóða upp á kjöt-
súpu með ýmsu sniði í tengslum
við það.
Við ætlum líka að leggja áherslu
á heimatilbúið. Við erum með
súkkulaðiverksmiðju hér í Súða-
vík, Sætt og salt ehf., sem fram-
leiðir mjög vinsælt súkkulaði sem
inniheldur sjávarsalt héðan úr
héraðinu. Melrakkasetur Íslands
verður líka opið alla dagana og það
sama gildir um kaupfélagið, þar
sem þýski kaupmaðurinn okkar
ætlar að taka á móti fólki og bjóða
upp á mat,“ útskýrir Bragi.
„Við erum með frábært tjald-
svæði hérna í Súðavík sem allir
eru mjög ánægðir með og getur
hýst þó nokkurn fjölda gesta,“
segir Bragi. „Þeir sem vilja síður
gista á tjaldsvæðinu geta nýtt sér
gistiheimilið og það er líka hægt
að taka hús á leigu í bænum í
gegnum Airbnb.“ n
2 kynningarblað A L LT 24. júlí 2021 LAUGARDAGUR