Fréttablaðið - 24.07.2021, Page 26
en að breyta nafninu á kaffihúsinu
úr Gamla Rif kaffistofa í Gilbakki
kaffihús,“ segir Anna Þóra og er að
vonum hæstánægð með eigin-
mann sinn að hafa byggt fyrir hana
kaffihús.
„Flest á kaffihúsinu, tól og tæki, er
endurnýtt þar sem ég fékk ýmislegt
frá vinkonu minni sem var í kaffi-
húsarekstri og var að endurnýja
hjá sér. Ég keypti ýmislegt fallegt á
„genbrugs“-mörkuðum í Danmörku
og veggskrautið eru gamlir klukku-
strengir og plattar sem ég hef fengið
frá vinum og vandamönnum. Með
þessu vonast ég til að skapa nota-
lega stemningu og gestum líði eins
og í huggulegu gestaboði í heima-
húsi.“
Fiskisúpan og marengsterturnar
renna út hjá ferðamönnum
Á kaffihúsinu er allt gert frá grunni,
bakað af ást og natni og svo er hægt
að fá hina frægu og margrómuðu
fiskisúpu að hætti Önnu Þóru
sem þykir ein sú besta og heillar
kaffihúsagestina upp úr skónum.
„Við leggjum áherslu á að allar
kökur séu bakaðar í eldhúsinu
okkar og svo getur fólk fengið sér
hina rómuðu fiskisúpu og horft á
Snæfellsjökulinn fagra. Á Hellis-
sandi hefur reksturinn blómstrað
og ég hef verið einstaklega heppin
með starfsstúlkur sem allar eru
ungar heimakonur og ég verð að
segja að við höfum selt fiskisúpu
og marengs tertur í tonnatali sem
virðist vera hið klassíska kombó á
Gilbakka.“
Í erlendum ferðahandbókum er
gulrótarkakan á Gilbakka mikið
lofuð. „Þetta er uppskrift sem ég
fékk hjá vinkonu minni fyrir margt
löngu og gaman væri að deila henni
með ykkur,“ segir Anna Þóra og
nýtur sín til fulls í hlutverki sínu
sem húsmóðirin á Gilbakka kaffi-
húsinu á Hellissandi. n
Gulrótakakan á Gilbakka
2 bollar sykur
4 egg
½ bolli olía
2 bollar hveiti
2 tsk. kanill
2 tsk. matarsódi
Smá salt
2 bollar rifnar gulrætur
2 msk. ananaskurl
Hitið ofninn í 190°C. Byrjið á því
að setja egg og sykur í skál, þeytið
saman þar til blandan verður létt
og ljós. Bætið þá við matarolíu,
rifnum gulrótum og ananaskurli.
Því næst er matarsóda, kanil, örlitlu
salti og hveiti bætt út í og hrært
þar til deigið er slétt og fislétt. Þá er
deiginu hellt í smurt form (ca. 30 cm
x 25 cm eða hringlaga form), klætt
bökunarpappír. Form eftir smekk
sem ykkur finnst passa. Kakan er
bökuð við 190°C gráður neðarlega í
ofninum í um 55 mínútur. Kakan er
kæld áður en kremið er sett á.
Rjómaostakremið
250 g rjómaostur
1½ bolli flórsykur
172 bolli kókosmjöl
Setjið allt hráefnið saman í skál og
hrærið þar til kremið verður létt og
ljóst. Kremið er sett á kalda kökuna.
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Gilbakki er einstaklega
hlýlegt og fallegt kaffihús á
Hellissandi þar sem hús-
móðirin Anna Þóra Böðvars-
dóttir tekur á móti gestum
ásamt starfsstúlkum sínum
með hlýleika og ást.
Þegar gestirnir koma inn líður þeim
eins og þeir séu komnir inn í stofu í
heimahúsi en Anna Þóra er eigand-
inn að Gilbakka og húsmóðirin eins
og hún segir sjálf. Húsið stendur
eitt og sér, við þjóðveginn, reisulegt
og fangar augað frá götunni. Anna
Þóra er borin og barnfæddur Kefl-
víkingur en eiginmaður hennar,
Lúðvík Smárason, er frá Rifi. Anna
Þóra er menntaður grunnskóla-
kennari frá Kennaraháskólanum og
eftir námið 1985 flutti hún vestur
á Rif með manni sínum á vit ævin-
týranna.
„Við hófum bæði kennslu við
Grunnskólann á Hellissandi. Ég
ætlaði nú bara að gefa þessu eitt ár
en hér er ég enn. Hér er gott að vera,
öflugt og lifandi samfélag og allir
geta blómstrað. Eftir að hafa kennt
í rúm tuttugu ár og einkasonurinn
á grænni grein ákváðum við
hjónin að prófa að búa í útlöndum
tímabundið. Danmörk varð fyrir
valinu og Lúðvík skellti sér í nám í
byggingarfræði og ég fór að vinna á
leikskóla, þetta voru dásemdarár.“
En í millitíðinni fer Anna Þóra inn á
nýtt svið og stofnar kaffihús.
Hugmyndin kom upp á götugrilli
„Ég lét fyrst drauminn rætast um að
eignast og reka kaffihús á Rifi eftir
hugmynd sem upp kom í götugrilli
eftir 1-2 rauðvínsglös með vinkonu
minni, Siggu Möggu frá Rifi. Við
fórum af stað og framkvæmdum
hugmyndina og komum upp kaffi-
húsi sem bar heitið Gamla Rif kaffi-
stofa,“ segir Anna Þóra en þær ráku
kaffihúsið saman til ársins 2016 en
þá keypti Anna Þóra reksturinn.
Byggði fyrir hana hús
„Eftir námið í byggingarfræðinni
átti Lúðvík, eiginmaður minn, sér
draum um að teikna hús og byggja
það. Hann ásamt pabba sínum
Smára Lúðvíkssyni byrjaði svo að
byggja herlegheitin 2012. Þetta
dásemdarhús er byggt í gömlum
stíl og reynt að fara sem nákvæmast
eftir húsum í norskum stíl. Í upp-
hafi var ekkert ákveðið hver notin
ættu að vera fyrir húsið en svo kom
hugmyndin um að færa kaffihúsið
frá Rifi í þetta fallega hús. Ekki
skemmdi fyrir að við fengum lóð á
besta stað í bænum. Á lóðinni stóð
áður hús sem hét Gilbakki og þótti
okkur ekki koma annað til greina
Gulrótakaka sem gleður hjarta og sál
Anna Þóra
tekur vel á móti
gestum á Gil-
bakka á Hellis-
sandi.
„Á Hellissandi hefur reksturinn blómstrað og ég hef verið einstaklega heppin
með starfsstúlkur sem allar eru ungar heimakonur og ég verð að segja að við
höfum selt fiskisúpu og marengstertur í tonnatali,“ segir Anna Þóra.
Eiginmaðurinn
byggði húsið í
gömlum stíl og
reyndi að fara
sem nákvæmast
eftir húsum í
norskum stíl.
Notalegt and-
rúmsloft er á
veitingahúsinu
og gott að
setjast niður og
fá sér kaffi og
með því.
Gulrótakakan vinsæla á Gilbakka.
4 kynningarblað A L LT 24. júlí 2021 LAUGARDAGUR