Fréttablaðið - 24.07.2021, Page 27
Eðalfiskur er ábyrgur framleiðandi á hágæða laxaafurðum sem seldar eru bæði á innanlandsmarkaði og til útflutnings á erlenda
markaði. Félagið leggur áherslu á langtímaviðskiptasambönd við sína viðskiptavini, bæði ytri sem innri og er starfsemin vottuð
með hinum alþjóðlega BRC staðli og starfar samkvæmt honum.
EÐALFISKUR · VALLARÁS 7-9 · 310 BORGARNES · SÍMI 437-1680 · EDALFISKUR@EDALFISKUR.IS
Eðalfiskur ehf. óskar eftir að ráða framleiðslustjóra yfir vinnslu félagsins í Borgarnesi.
Framleiðslustjóri mun starfa náið með framkvæmdastjóra að spennandi verkefnum
sem framundan eru hjá félaginu.
Framleiðslustjóri
Áhugasamir sendi ferilskrá á sigurjon@edalfiskur.is. Umsóknarfrestur er til 9. ágúst 2021
Ábyrgðar og starfssvið
• Yfirumsjón framleiðsludeilda
félagsins og umsjón með mannauð
• Heildarskipulagning vinnslu í samræmi
við sölustarfsemi
• Innkaup á hráefni og aðföngum
• Kemur að samningagerð við innlenda
og erlenda viðskiptavini
• Umsjón með starfsháttum og vörugæðum
skv. BRC staðli í samstarfi við gæðastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun og/eða reynsla í fiskvinnslu,
helst í laxavinnslu og áframvinnslu á laxi
• Reynsla af stjórnun
• Þekking á gæðakerfum svo sem BRC,
IFS, HACCP eða sambærilegu
• Góð tölvukunnátta
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Færni í tungumálum (íslensku og ensku)
Sviðsstjóri sölu- og
markaðssviðs
dk hugbúnaður var stofnað árið 1998
og er í dag leiðandi fyrirtæki á sviði
viðskiptahugbúnaðar hér á landi með
rúmlega 6.000 fyrirtæki í viðskiptum.
dk býður upp á mikið af sérlausnum
sem henta fyrirtækjum í ólíkum
atvinnugreinum hvort sem þau eru stór
eða smá.
Hjá fyrirtækinu starfar um 65 manna
sterk liðsheild og um árabil hefur
dk fengið viðurkenningar sem
Framúrskarandi fyrirtæki hjá Creditinfo
og sem Fyrirmyndarfyrirtæki VR.
Leiðarljós dk er að vera skemmtilegur
og lifandi vinnustaður þar sem
metnaðarfullir einstaklingar fá að njóta
sín og þróast í starfi.
Nánari upplýsingar um dk má finna á
www.dk.is.
Menntunar- og hæfniskröfur:
dk hugbúnaður leitar að öflugum og árangursdrifnum einstaklingi til að leiða sölu- og markaðssvið
fyrirtækisins. Sviðsstjóri ber ábyrgð á að hámarka möguleika söluteymis, stýra gerð söluáætlana og
fylgja eftir markmiðum og framkvæmd þeirra auk þess að taka þátt í stefnumótun fyrirtækisins og
áætlanagerð um frekari sókn og vöxt með öðrum stjórnendum.
Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Helga Birna Jónsdóttir
(helga@intellecta.is) í síma 511 1225.
• Mótun og innleiðing á sölustefnu
• Þátttaka í áætlanagerð ásamt eftirfylgni og framkvæmd
• Ábyrgð á markmiðasetningu söluteymis
• Byggja upp og efla langtíma sambönd við viðskiptavini
• Framsetning og kynning á sölu- og kostnaðarskýrslum
til stjórnenda
• Koma auga á markaðstækifæri og fylgja þeim eftir
Helstu verkefni og ábyrgð:
Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is. Með umsókn skal fylgja
starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í
starfi. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
• Háskólapróf sem nýtist í starfi, s.s. viðskiptafræði,
markaðsfræði eða sambærilegt nám
• Að minnsta kosti 5 ára reynsla af sölustörfum
• Reynsla af stjórnun teyma og framúrskarandi
leiðtogahæfni
• Reynsla af framsetningu sölumarkmiða
• Greiningarhæfni og metnaður til að ná árangri
• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Birta starfsendurhæfing Suðurlands leitar eftir metnaðar-
fullum einstaklingi í starf ráðgjafa í starfsendurhæfingu.
Um er að ræða fullt starf. Æskilegt er að viðkomandi geti
hafið störf sem fyrst, eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Ráðgjöf, stuðningur og málastjórn
• Kortleggja og skipuleggja þörf á úrræðum
• Skráning og samantekt á gögnum.
• Þátttaka í að efla og innleiða nýjungar í starfi
• Halda utan um hópastarf
Menntunar og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. félagsráðgjöf,
iðjuþjálfun eða önnur menntun á sviði heilbrigðis- og
félagsvísinda
• Starfsleyfi frá Landlækni
• Hagnýt starfsreynsla
• Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Vera sveigjanlegur, hugmyndaríkur og tilbúinn að takast á
við áskoranir
• Góð samskiptahæfni, félagslyndi, jákvætt viðmót og frum-
kvæði
• Góð þekking og áhugi á starfsendurhæfingu
• Mjög gott tölvulæsi
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst 2021.
Viðtöl verða dagana 4. – 6. ágúst. Upplýsingar um starfið veitir
Sandra Guðmundsdóttir forstöðumaður Birtu í s. 860-3390 eða
á sandra@birtastarfs.is. Umsóknir berist á netfangið
sandra@birtastarfs.is. Frekari upplýsingar um starfsemi Birtu
má finna á www.birtastarfs.is.
Ráðgjafi á sviði
starfsendurhæfingar
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára