Fréttablaðið - 24.07.2021, Síða 39
Nauðsynlegt er að gefa
börnum valin bætiefni til
að tryggja upptöku á mikil-
vægum vítamínum sem
stuðla að eðlilegum vexti og
þroska fyrir komandi ár og
framtíð barna.
Vítamín tilheyra þeim hópi nauð-
synlegra næringarefna sem líkam-
inn þarfnast í litlu magni fyrir
eðlilega líkamsstarfsemi. Víta-
mín gegna ýmsum mikilvægum
hlutverkum fyrir líkamann, svo
sem við framleiðslu orku og losun
úrgangsefna. Fyrsta ár í lífi barna
einkennist af örum vexti og þroska
og því er næringin fyrsta aldurs-
árið gríðarlega mikilvæg og leggur
grunn að fæðuvenjum barnsins og
heilbrigði allt lífið.
Næring fyrstu mánuði barna
Fyrstu sex mánuði barna er ráðlagt
að nærast eingöngu á móður-
mjólk svo lengi sem að barnið
vex og dafnar vel. Móðurmjólkin
inniheldur öll þau næringarefni
sem barnið þarfnast fyrstu sex
mánuðina, en auk næringarefna
inniheldur móðurmjólkin ýmis
efni sem hafa áhrif á þroska melt-
ingarfæranna og starfsemi þeirra,
svo sem vaxtarþætti og hormóna.
Börn þurfa þó líkt og aðrir að fá
D-vítamín viðbót frá unga aldri,
ásamt öðrum mikilvægum víta-
mínum eftir sex mánaða aldur.
Nauðsynlegt að gefa börnum
D-vítamín viðbót fyrstu árin
D-vítamín er fituleysanlegt víta-
mín sem hefur mörgum mikil-
vægum hlutverkum að gegna í
líkamanum. Móðurmjólk inni-
heldur ekki nægjanlegt magn
D-vítamíns til að uppfylla þarfir
barna og er því mikilvægt að gefa
viðbót frá 1-2 vikna aldri. Fyrstu
ár ævinnar eru beinin að vaxa og
þéttast og skiptir því miklu máli að
börn fái viðbót til að stuðla að við-
haldi eðlilegra beina. D-vítamín er
að auki nauðsynlegt fyrir upptöku
og nýtingu á kalki, sem og mikil-
vægt fyrir tennur og eðlilega starf-
semi ónæmiskerfisins. Til eins árs
aldur er ráðlagður dagskammtur af
D-vítamíni 10 míkrógrömm.
Vítamín eru mikilvæg fyrir
börnin og framtíð þeirra
Fram að sex mánaða aldri duga
m.a. járnbirgðir, E-, B6-, og C-víta-
mín ásamt sinki frá móðurmjólk
en eftir það þarf að huga að viðbót.
Jafnframt fá börn að jafnaði nægi-
legt magn A-vítamíns úr móður-
mjólk og síðar meir úr fæðunni eða
viðbót. A-vítamín er meðal annars
Vítamín mikilvæg fyrir vöxt og þroska barna
Vítamín í formi munnúða er einföld og áhrifarík leið til að tryggja að börn fái öll helstu vítamín sem uppfylla daglega
þörf og styðja við eðlilegan vöxt og þroska. Börn þurfa D-vítamín jafnt sem fullorðnir. MYND/AÐSEND
mikilvægt fyrir þroska ungbarna
og fyrir flestar frumur líkamans
fyrir komandi ár og framtíð barna.
A-vítamín stuðlar jafnframt að
viðhaldi eðlilegrar sjónar og húðar,
ásamt eðlilegri starfsemi hjartans.
Mikilvægt er að huga að víta-
míninntöku barna frá unga aldri
en vítamínbúskapur getur jafnvel
haft áhrif á framtíð barna.
Munnúðar eru sérstaklega hent-
ugur valkostur fyrir börn
Better You-munnúðarnir njóta
aukinna vinsælda og ekki að
ástæðulausu því mikið er lagt upp
úr gæðum og að upptaka á víta-
mínum sé tryggð. Vítamín í formi
munnúða er einföld og áhrifarík leið
til að tryggja að börn fái öll helstu
vítamín til þess að uppfylla daglega
þörf til að styðja við eðlilegan vöxt
og þroska. Úðarnir frá Better You
eru sérstaklega hannaðir þannig að
þeir frásogist beint inn í blóðrásina
og fari fram hjá meltingarveginum
en þannig tryggir það hámarks
upptöku í gegnum slímhúð. Víta-
mínúðarnir eru að auki einstaklega
bragðgóðir ásamt því að vera lausir
við öll gervi- og litarefni.
Dlux infant er hugsað fyrir börn
yngri en 3 ára en hver munnúði
inniheldur ráðlagðan dagskammt af
D-vítamíni fyrir börn sem jafngildir
10 míkrógrömmum/400 alþjóða-
einingum á dag. Munnúðinn er
bragðlaus og einstaklega þægilegur
í notkun.
Dlux junior er bragðgóður
munnúði með piparmyntubragði
sem hentar börnum eldri en 3 ára.
Dlux junior er hentugur valkostur
fyrir börn sem eiga erfitt með að
innbyrða töflur eða hylki.
MultiVit junior er fjölvítamín í
úðaformi ætlað börnum frá 1 árs
aldri. Vítamínið er með hindberja-
bragði og inniheldur öll þau 14
nauðsynlegu næringarefni sem
líkaminn þarf á að halda. Inniheldur
A-, D-, C-, K- og B-vítamín ásamt
fólínsýru, joði og selen.
Children’s health með hindberja-
bragði er áhrifarík leið til að tryggja
að börn frá 1 árs aldri fái helstu
vítamín sem þörf er á til að styðja
við vöxt og þroska. Inniheldur A-,
B12-, C-, D- og K2-vítamín, ásamt
fólínsýru og joð.n
ALLT kynningarblað 5LAUGARDAGUR 24. júlí 2021