Fréttablaðið - 24.07.2021, Síða 44
Sigmundur afi var með þetta nokk-
urn veginn á hreinu, en lífsgæfan
væri á að giska þríþætt; að vera
bjartsýnn, ná sér í góða eiginkonu
og að kjósa Framsóknarflokkinn.
Þar með gengi lífið upp.
Ævina á enda.
Hér er aldeilis engu logið – og er þar
nokkuð langur vegur frá, því lífið
var svona, akkúrat jafn ferkantað
og það var klórað niður á klöpp.
Flokkurinn fæddi menn. Og
flokkurinn ól upp fólk.
Hér áður fyrr.
Fjórflokkurinn frá því á síðustu öld
var ólseigt kvikindi. Það ætlaði ekk-
ert hann að drepa. Þjóðfélagið var
enda haganlega beislað að hætti
íhaldsamrar vanafestu og feðra-
veldis af stöðnuðustu sort. Það lá á
að koma karlmönnum í embætti. Og
flokkarnir höfðu einmitt það hlut-
verk, að sjá sínum bestu mönnum
farborða. Dúsan vissi á dágott
djobb – og ekkert endilega við hæfi,
eða að verðleikum, enda aukaatriði
að menn réðu við þau. Bara að rétti
rassinn passaði í stólinn. Til fram-
búðar. Ævilangt. Eins og dæmin
sanna. Átakanlega mörg.
Og afi fékk starfa á lagernum í
kjallaranum hjá KEA þegar hann
gafst upp á búskapnum í afskekktri
sveit. Hann átti það inni.
Og amma skipti aldrei við aðra
verslun eftir það. Ef það fékkst ekki
í kaupfélaginu þurftu þau hjónin
ekki á því að halda.
Þannig var það bara. Einfalt og
klárt.
Fjórflokkurinn réði ríkjum á Íslandi
frá því snemma á síðustu öld fram
undir þá nýju, enda virtist hann
duga í litrófi stjórnmálanna – og
spanna raunar allt það skoðana-
spjald. Menn voru ýmist hægri-
menn eða vinstrimenn, miðjumenn
eða kratar. Og ekkert þar sem út af
bar.
Nei, það var engin ástæða til að
ráfa út fyrir þær girðingar.
Enda gat það verið hættulegt.
Tangarhald f lokkanna á fólki er
horfið. Þökk sé upplýsingu, fjöl-
miðlun og tjáningarfrelsi. Það er
stærsta breytingin í síðari tíma
stjórnmálasögu Íslands.
Gott ef það er ekki einmitt svo að
fólki er núna slétt sama hvað það
kýs. Nú til dags. Og það er bylting,
fremur en breyting. Af því að eignar-
hald f lokkanna á fólki var svo til
algert í árdaga.
Annað er í dag. Í pólitískum skiln-
ingi er fólkið frjálst.
Meginverkefni íslenskra stjórn-
málaflokka er að máta sig við þessa
mynd. Að laga sig að síbreytilegum
veruleika sem snýst eins og vetrar-
vindurinn, alla daga, allan ársins
hring.
Fólk kýs ekki lengur flokka, held-
ur hugmyndir.
Og akkúrat þess vegna hafa
áheyrilegu og þægilegu vinsælda-
stjórnmálin tekið við af gamal-
dags staðfestu og stífni í megin-
markmiðum f lokkanna. Þeir eru
fyrir vikið eftirgefanlegri en áður,
sveif lukenndari og ófyrirséðari.
Ellegar þeir fara í felur, loka að sér,
verða fælnir og fúlir.
Flestir flokkar eru á flótta undan
sjálfum sér. Nú til dags. Þeir eru í
ákafri leit að aðlaðandi hugmynd-
um, nýrri ímynd, galsa og glimmeri,
töff fólki.
Tökum stöðuna.
Nú er svo komið að Sjálfstæðis-
f lokkurinn, gamla meginstoðin í
íslenskri pólitík, treður marvaðann
á milli Miðflokksins og Viðreisnar,
fastur í fjórðungsfylgi þjóðarinnar
– og ætlar sér neðar en það, einarð-
lega, af því að fjöldafylgisstefnan
virðist vera fyrir bí. Flokkur allra er
að verða flokkur fárra.
Miðf lokkurinn er að einangr-
ast sem afturhald, einnar stefnu
úthrópun af tagi allrahandaredd-
ingar, en líður fyrir karllæga ásýnd
sína, á meðan Viðreisn hefur fest sig
í fari frjálslyndis og alþjóðahyggju
á þeim tímum þegar enginn horfir
lengra en nef sér. En þetta eru ein-
mitt öfgarnar í íslenskri pólitík um
þessar mundir.
Samfylkingin er að éta sig innan
frá, þekkir ekki lengur uppruna
sinn, breiðfylkinguna, en heldur
þess í stað í villta vinstrið, yfirgefur
miðjuna, langar að vera vægari
útgáfa af VG en fer ekki vel að vera
eftirlíking.
Og VG er auðvitað líka í sínum til-
vistarvanda, stjórnmálaaflið atarna
sem bjargaði Flokknum gamla frá
áhrifaleysi fyrir tæpu kjörtímabili
eða svo – og á erfitt með að meta
hvort hann dafni betur í faðmi
íhaldsins eða frjálslyndari f lokka.
En aldrei hefur vinstriflokkur verið
jafn áttavilltur.
Píratar sigla sinn sjó. En reyna
að breyta röstum. Vilja ekki vera
hægri. Þó þeir séu það. Vilja ekki
vera vinstri. Þó þeir séu það. Og eru
sjálfsagt kratar. Eins og flestir flokk-
arnir á þingi eru í dag.
Flokkur fólksins auglýsir. Það er
það sem hann gerir. Kemur fram
í útvarpsauglýsingum. Og á fyrir
því. Hann vill meina að engin fátækt
verði á Íslandi eftir að hann tekur
við. Og mælist í fjórum prósentum.
Sósíalístar. Jæja, sjáum til.
En Framsókn er ef til vill límið.
Eftir allt saman hafði kannski Sig-
mundur afi rétt fyrir sér. Að þar væri
komin lífsgæfan sjálf.
Líklega hefur enginn f lokkur
staðið betur af sér klofninginn á
síðustu árum í stjórnmálasögu
Íslands. Og hann er ekkert að reyna
að vera annar en hann er. Kannski
er það galdurinn. Að vera eins og
maður á að sér.
Hann er hefðbundinn f lokkur.
Það er beinlínis eins og hann nenni
ekki að breyta sér. Hann virðist
trúa ennþá á gildi sín. Þau eru sum
hver, vel að merkja, eldri en fullveldi
þjóðarinnar. Og duga honum.
Fjórflokkurinn lifir í sárum sínum.
Framsókn og íhaldið, kommarnir og
kratarnir. Og svo einhverjar útgáfur
af þeim flokkum öllum, en síbreyti-
legar flækjast þær hverjar innan um
aðrar svo eftir stendur kjósandinn
sem sér varla muninn. Átta flokkar,
níu f lokkar. Tíu? Aldrei f leiri. Lík-
lega býttar það ekki öllu.
En mestu varðar að fólkið ræður.
Ekki f lokkarnir. Ekki lengur. Og
mikið óskaplega skiptir það miklu
máli fyrir heilsufar samfélagsins. n
Vandi stjórnmálaflokkanna
Tangarhald flokkanna
á fólki er horfið. Þökk
sé upplýsingu, fjöl-
miðlun og tjáningar-
frelsi. Það er stærsta
breytingin í síðari tíma
stjórnmálasögu
Íslands.
Höfundur er
sjónvarpsstjóri
Hringbrautar,
sem rekin er af
Torgi, sem jafn-
framt gefur út
Fréttablaðið.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser@hringbraut.is
24 Helgin 24. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ