Fréttablaðið - 24.07.2021, Side 60
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
n Lífið í
vikunni
18.07.21
24.07.21
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
ALLT AÐ 60%
AFSLÁTTUR
SUMAR-
ÚTSALA
BETRA BAKS
STILLANLEG RÚM | HEILSURÚM OG -DÝNUR | GAFLAR | SÆNGUR | KODDAR | SVEFNSÓFAR | STÓLAR | SÆNGURFÖT, O.FL.
EKKI MISSA AF ÞESSU
ÚTSALA BETRA BAKS
ER Í FULLU FJÖRI!
Vefmyndasagan um reiða
bangsahommann Bruce hefur
átt sitt varnarþing á forsíðu
fréttasíðunnar GayIceland í
fimm ár. Bruce er hugarfóstur
grínistans Jono Duffy og
myndlistarmannsins Einars
V. Mássonar sem stefnir á að
fagna tímamótunum með
sýningu á römmum úr lífi
Bruce á Hinsegin dögum.
toti@frettabladid.is
„Bruce the Angry Bear er hugar-
fóstur mitt og ástralska uppistands-
grínarans Jono Duffy. Myndasagan
fjallar um stóran, reiðan, loðinn
samkynhneigðan mann sem heitir
Bruce sem lendir í hversdagslegum
ævintýrum ásamt unnusta sínum,
honum Spencer, í borginni Gaygja-
vík sem er Reykjavík bara aðeins
meira gay,“ segir Einar V. Másson
sem teiknar söguna.
Jono er samkynhneigður en kann
ekki að teikna en Einar kann að
teikna en er gagnkynhneigður.
Hinsegin afmæli
Vef my ndasagan er
fyrsta og langlífasta
LGBT-myndasögu-
syrpa sem gefin er
út á Ísland og fagnar
fimm árum um þess-
ar mundir en Bruce
hefur frá upphafi átt
sitt heimili og varnar-
þing á forsíðu vefritsins
GayIceland.is.
Sóttvarnaaðgerðir munu sjálf-
sagt ráða miklu um hversu fjörug
fyrirhuguð afmælissýning á völdum
sögum úr ævintýrum bjarnarins
verður en þar til annað kemur í
ljós stendur til að opna í bókasafni
Hafnarfjarðar þriðjudaginn 3. ágúst
í tengslum við Hinsegin daga.
Ef Covid og góðar vættir leyfa
ætlar Einar einnig að vera með
vinnustofu í bókasafninu klukkan
17 á miðvikudeginum þar sem hann
fer yfir vinnubrögð sín og hug-
myndafræði við myndasögugerð.
Þetta er gæinn!
Einar og Jono hittust fyrst í Reykja-
vík 2016. „Okkur kom strax vel
saman og ákváðum að athuga
hvort við gætum unnið að einhverju
saman. Við hittumst svo á kaffihúsi
og á meðan hann sagði mér frá hug-
myndinni sinni að honum Bruce var
ég að teikna.
Þannig að honum fannst ég ekk-
ert vera að hlusta en ég var að skissa
upp Bruce og eftir einhverjar þrjár
mínútur sýndi ég honum blað-
síðuna og spurði hvort þetta væri
gæinn.
Og hann sagði bara: „Já, þetta er
nákvæmlega hann!“ Þannig að það
var bara strax mjög gott samstarf
okkar á milli,“ segir Einar.
„Við funduðum svo með strák-
unum sem reka GayIceland.is og
sýndum þeim fyrstu fimm
ræmurnar sem við höfðum
samið. Þeir voru bara mjög hrifnir
og svo höfum við bara verið að gefa
út vikulega.“
Öðruvísi skápur
Einar er varaformaður Íslenska
myndasögusamfélagsins og segist
hafa byrjað ungur að teikna. „Á
unglingsárunum var ég búinn að
sannfæra mig um það að þetta væri
bara vitleysa og það væri ekki hægt
að lifa á þessu. Þannig að ég sagði
lengi vel skilið við myndasögur og
myndlistina.
Seinna meir fékk ég bara ákveðna
hugljómun og fattaði að ég er mynd-
listarmaður og verð bara að gera
eitthvað í því. Við Jono djókum ein-
mitt stundum með það að ég hafi
átt svona samkynhneigða upplifun
án þess að vera samkynhneigður
sjálfur.
Vegna þess að ég var í mikilli
afneitun. Fór svo til San Francisco
að læra myndlist og kynnast sjálf-
um mér og kom svo heim aftur sem
alveg bullandi myndlistarmaður en
einhvern veginn tókst mér að halda
gagnkynhneigðinni allan tímann,“
segir Einar og hlær.
En Bruce, er hann alltaf reiður?
„Já, hann er afskaplega reiður,“
segir Einar og reifar söguna af því
hvernig Bruce birtist Jono fyrst.
„Þegar hann var yngri í Ástralíu gaf
hann út heimildarmynd sem var
oft sýnd á undan mynd sem fjallaði
mikið um svona samkynhneigða
birni.“ Eitthvað átti mynd Jonos
til að ganga á auglýstan sýningar-
tíma síðari myndarinnar. „Þá voru
stundum komnir einhverjir mjög
reiðir, loðnir, samkynhneigðir
menn að bíða fyrir utan og voru
orðnir frekar pirraðir. Þeir veittu
honum innblástur og hann skapaði
þennan gæja,“ segir Einar.
„Jono hefur átt ansi áhrifaríka ævi
og hefur gengið í gegnum margt.
Hann beislar reiðina svona og beinir
henni í gegnum Bruce.“ n
Afmælisbangsinn Bruce
Bruce tók strax á sig mynd þegar Einar skissaði hann á kaffi-
húsi eftir lýsingu Jonos á honum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Spencer og Bruce lifa og hrærast í
Gaygjavík og á GayIceland.is.
Jono Duffy.
Júlía kýlir til baka
Salka Valsdóttir gefur hinni heitt-
elskuðu Júlíu rödd og færi á að kýla
á móti umhverfinu með tónlist
sinni fyrir Rómeó og Júlíu. Fyrsta
lagið úr fyrirhugaðri uppfærslu
Þjóðleikhússins kom út í gær.
Poppaður ballett
Tónlistarmaðurinn Benedikt sendi
frá sér sitt fyrsta lag, Diamond.
Meiðsli urðu til þess að hann varð
að gefa ballettferli sínum frí og þá
sneri hann sér að tónlistinni og
stefnir á EP-plötu seinna á árinu.
Les nótur með eyrunum
Heilatengd sjónskerðing veldur
því að sópransöngkonan Dagbjört
Andrésdóttir þarf að lesa nótur
með eyrunum. Hún er ein aðal-
söngkonan á Sönghátíð Möggu
Pálma á Húsavík á sunnudaginn.
Ho-óvissa
Bassi Maraj var rétt byrjaður að
fagna því að hann myndi skemmta
á Þjóðhátíð með því sem hann
kallaði „a ho experience“ þegar
Covid-bylgja reis og öll áform í
Eyjum eru í uppnámi og óvissu.
40 Lífið 24. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ