Fréttablaðið - 21.07.2021, Blaðsíða 32
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Láru G.
Sigurðardóttur
n Bakþankar
Straumurinn
er í Öskju!
Askja • Krókhálsi 11-13, 110 Reykjavík • 590 2100 • askja.is
Einföld og örugg hleðsla frá Innogy
Með heimahleðslustöð frá Innogy getur þú hlaðið bílinn með einföldum og öruggum hætti.
Við erum sérfræðingar í rafbílum og svörum öllum þínum spurningum um allt sem þeim tengist.
Kynntu þér málið á askja.is/hledslulausnir
Innogy eBox Smart 22kW - Verð 189.000 kr.
Virðisaukaskattur fæst endurgreiddur af hleðslustöð og uppsetningu.
„Ég þarf greinilega að knúsa þig
meira,“ sagði maðurinn minn eftir
að ég hélt ræðu um rannsóknar-
greinar sem ég hafði lesið. Þar kom
fram að konur sem fá fleiri faðmlög
frá maka sínum eru við betri heilsu.
Þær eru ólíklegri til að veikjast af
veirupest, hafa lægri blóðþrýsting,
léttari lund, meiri orku og sofa
betur.
Þarna stóð ég andspænis því að
eftir tuttugu ára samband man
ég ekki eftir að hafa beðið ástina
mína um knús þegar ég þurfti mest
á því að halda. Það var einfaldara
að skríða inn í skel eymdarinnar.
Að biðja um faðmlag var ekki hluti
af minni lífsleikni. Allra heilla er
vakning um mikilvægi faðmlaga
smám saman að aukast.
Ástralinn Juan Mann er upphafs-
maður herferðarinnar „Ókeypis
faðmlag“. Hugmyndina fékk hann
á flugvelli í Sydney þegar hann var
að flytja heim frá London. Hann
horfði á samferðamenn hlaupa í
opinn faðm vina og ættingja og
rann þá upp fyrir honum hve hann
saknaði innilegs faðmlags, en hans
fólk var allt brottflutt. Juan útbjó
skilti með orðunum „Free Hugs“
sem hann tók með sér á fjölfarna
göngugötu, sem markaði upphaf
að alþjóðlegum mánuði ókeypis
faðmlaga sem er einmitt haldinn í
þessum mánuði.
Knús ætti að vera jafn sjálfsagt og
að drekka vatn því innileg snerting
nærir lífsandann. Þegar við föðm-
umst framleiðir heilinn róandi efni
sem senda líkamanum skilaboð um
að við séum örugg. Sagt hefur verið
að fjögur faðmlög á dag sé leyndar-
dómurinn á bak við hamingjusamt
hjónaband, en sálmeðferðarfræð-
ingurinn Virginia Satir segir að við
þurfum helst fleiri. Kona veit nú að
hún getur verið óhrædd við að segja
við maka sinn „kona þarf knús“,
því stundum er knús það sem hún
sannarlega þarf. n
Kona þarf knús
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut