Fréttablaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 18
Fólk var oft með ansi einhæfar aðferðir hérna áður fyrr en það hefur breyst mikið. Grillhátíðin Kótelettan fer fram á Selfossi um helgina. Einar Björnsson, fram- kvæmdastjóri hátíðarinnar, segir að grillmenning hafi vaxið og dafnað á undan- förnum árum. „Eins og svo oft áður þá verður þetta algjör veisla fyrir augu, eyru og munn,“ segir Einar Björnsson, framkvæmdastjóri Kótelettunnar, sem stendur yfir á Selfossi um helg- ina, rúmum tveimur árum eftir að hún var síðast haldin. Búast má við ærlegu fjöri þar sem hátíðinni var frestað í fyrra vegna faraldursins og hefur nú legið í maríneringu í tvö ár. „Hugmyndin var að gera fjöl- skylduvænan viðburð með lifandi músík og mat með sterka tengingu við landbúnaðinn og íslenska fram- leiðslu,“ segir Einar, sem hélt hátíð- ina fyrst árið 2010. „Í dag hefur þetta vaxið og dafnað í fjölbreytt festival þar sem við viljum bjóða fólki upp á bestu grillrétti sumarsins sem og það besta sem íslensk tónlistar- menning hefur upp á að bjóða. Í ár virðist veðrið ætla að vera milt og hæglátt sem væri auðvitað mjög þakklátt.“ Einar, sem er sjálfur frá Selfossi, vinnur í og með skemmtanabrans- anum sem hann segir að hafi verið kveikjan að hátíðinni. „Mig langaði að halda ærlega skemmtun í heima- bænum mínum þar sem ég gæti heimfært allt það góða sem ég hef verið að vinna með,“ segir hann og bendir á að það hafi virkilega tekist vel til á síðustu Kótelettu. „Árið 2019 fylltum við bæinn, og ég vona að það takist aftur í ár.“ Fjör með litlum fyrirvara Einar segir að ein helsta áskorunin við hátíðina sé að hún sé alla jafna haldin með mjög stuttum fyrirvara. „Ef það er ekki ég sem er að guggna á því, þá er það náttúran. Við héld- um að við gætum loksins haldið þetta með góðum fyrirvara í fyrra en þá skall auðvitað faraldurinn á. Það er enn fullt af hugmyndum sem setið hafa á hakanum en við viljum hrinda í framkvæmd á næsta ári.“ Einar segir að grillmenning á Íslandi hafi vaxið og dafnað gríðar- lega á undanförnum árum. „Fólk var oft með ansi einhæfar aðferðir hérna áður fyrr en það hefur breyst Hátíð maríneruð til tveggja ára Einar stefnir á að stappfylla Selfoss á nýjan leik í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ ÓTTAR Forseti Íslands mundaði grillspaðann á Styrktarlettunni 2019. MYND/AÐSEND Grillarar etja kappi í baráttunni um Flottustu grillveisluna. MYND/AÐSEND Samkvæmt Einari hefur grillmenning á Íslandi tekið stakkaskiptum og aðferðir í dag eru mun fjölbreyttari en áður. MYND/AÐSEND mikið. Það hefur orðið mikil gróska í grillun á kjöti, menn eru margir hverjir að dunda sér við þetta í marga tíma, í alls kyns hægeldun meðal annars,“ segir hann. „Það hefur líka verið skemmtilegt að sjá fólk orðið grilla fjölbreyttari hluti og nú síðast skelltum við meira að segja gúrku á grillið. Fólk var vitlaust í að koma að smakka alls konar grænmeti og það hefur mögulega víkkað sjóndeildarhring margra um hvað eigi heima á grill- inu.“ Fjölbreytt hátíð Dagskrárliðir hátíðarinnar í ár eru margir og kennir ýmissa grasa. Þar má nefna keppnina Flottustu grill- veisluna sem leggst nákvæmlega til eins og nafnið gefur til kynna. Bæjarbúar og nærliggjandi grillarar keppast um að halda sem flottasta grillveislu með tilheyrandi myllu- merki á Instagram. Allt er það gert í þeirri von að dómnefnd Kótelett- unnar drepi á dyr og leysi þau út með veglegum vinningum. „Þetta er aðallega spurning um heildarstemninguna,“ segir Einar aðspurður um hvað einkenni flotta grillveislu. „Maturinn og gestirnir spila auðvitað stóra rullu og svo skemma f lottar skreytingar ekki fyrir. Ég veit til þess að margir eru búnir að leggja gríðarlegan metnað í þetta.“ Þá er Styrktarlettur SKB árleg- ur viðburður sem haldinn er í samstarfi við SS, Kjarnafæði og Mömmu mat. Þar eru seldar kóte- lettur til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. „Allur ágóði rennur óskiptur til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna,“ segir Einar. „Það hafa alltaf komið góðir gestir til að aðstoða á grillinu og í ár verða það meðal annars ráðherrarnir Bjarni Bene- diktsson og Sigurður Ingi Jóhanns- son, ásamt Þorgerði Katrínu Gunn- arsdóttur, formanni Viðreisnar, og fleiri góðum.“ Tónlistardagskráin fer svo fram að kvöldi hvers dags þar sem Einar segir að landslið tónlistarmanna mæti ár hvert. „Við fórum reyndar lengra í þeim efnum í ár en venju- lega því nú er spilað á tveimur svið- um,“ segir hann. Miðasölu og dagskrána í heild má finna á heimasíðu hátíðarinnar, kotelettan.is. ■ Arnar Tómas Valgeirsson arnartomas @frettabladid.is 18 Helgin 10. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 10. júlí 2021 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.