Fréttablaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 20
Fram að þessu hafa allir dagar farið í þetta, virkir og helgir dagar. Það er bara þannig. Ég hef lítið getað hugsað um annað. Mikið hefur mætt á Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni þó mjög sé farið að hægjast á gangi Covid-19 faraldursins hér á landi. Hann segir áhrifin hafa verið mikil á fjölskyld- una, sem hafi staðið sem klettur að baki honum. Þórólfur segir okkur komin á þann stað sem stefnt var að, búið sé að bólusetja þorra þjóðarinnar og nú sé tekinn við nýr kaf li. „Baráttan við þennan faraldur hefur verið kaflaskipt og það er alltaf eitt- hvað nýtt sem kemur upp á. Við erum komin á þann stað að við þurfum að sjá hverju þetta skilar okkur,“ segir hann. Mikill gangur hefur verið í bólu- setningarherferð stjórnvalda. Nú er búið að fullbólusetja rúmlega 238 þúsund manns og bólusetning hafin hjá tæplega 26 þúsundum til viðbótar. Bólusetning er þó ekki ávísun á að sleppa við veiruna og Þórólfur segir það liggja ljóst fyrir að bólusetning veiti ekki hundrað prósenta vörn. „Það eru alltaf að koma meiri upp- lýsingar um það að bólusetningin er ekki alveg hundrað prósent, hún skilar ekki fullum árangri í að koma í veg fyrir smit. Full bólusetning er um það bil 80 prósenta virk til að koma í veg fyrir smit en hins vegar um 95 prósenta virk í að koma í veg fyrir alvarlegar sýkingar. Bólusettir geta enn fengið í sig veiruna og þeir geta smitað aðra, við erum að sjá það svolítið núna.“ Þurfum áfram að vera vakandi Engar samkomutakmarkanir eru í gildi lengur en Þórólfur segir mikil- vægt að fylgjast vel með landamær- unum. „Til að ná algjörum tökum á far- aldrinum innanlands þurfum við að ná tökum á landamærunum því smitin koma inn í gegnum þau. Við vitum að það er fólk sem er að koma frá útlöndum, er fullbólusett en er að bera með sér smit. Þetta eru fáir einstaklingar en þeir geta smitað sitt nærumhverfi. Það verður fróðlegt að sjá hvort þessi útbreidda bólusetn- ing núna muni koma í veg fyrir að við fáum stórar hópsýkingar,“ segir hann. Frá því faraldurinn hófst í byrjun síðasta árs hafa verið settar á strang- ar samkomutakmarkanir innan- lands, þeim síðan aflétt á meðan ástandið var gott og þeim komið aftur á er harðna tók á dalnum. Aðgerðir stjórnvalda hafa sætt gagn- rýni, bæði þegar þær voru hertar og er slakað var á þeim. Þórólfur segir baráttuna við Covid vera þess eðlis að erfitt sé að vita hverju aðgerðir skili þegar ráðist er í þær. „Það er háð svo mörgum hlutum, sérstaklega hvernig almenningur tekur við sér, hvernig almenningur fer eftir því sem hann er beðinn um að gera, sem hefur skilað mestum árangri. Við höfum aldrei vitað nákvæmlega hvað gerist, hvort sem við vorum að herða aðgerðir eða slaka. Við höfum alltaf þurft að renna svolítið blint í sjóinn,“ segir Þórólfur. Snemma augljóst í hvað stefndi Aðspurður hvenær það hafi verið ljóst í hvað stefndi varðandi far- aldur Covid-19, segir Þórólfur það hafa legið fyrir áður en faraldurinn byrjaði hér. Hann var þá kominn á f lug víða annars staðar og segir Þórólfur enga ástæðu hafa verið til þess að ætla að faraldurinn hegðaði sér öðruvísi hér en í öðrum ríkjum. Yfirvöld hafi staðið frammi fyrir einfaldri spurningu, hvernig ætti að eiga við þetta og hversu langan tíma þetta myndi taka. „Það vissi náttúr- lega enginn,“ segir hann. „Það var þó vitað að þetta myndi taka allan þann tíma sem þyrfti til þess að koma hér upp góðu ónæmi í samfélaginu. Gott ónæmi í samfélag- inu fæst ekki nema með því að láta sýkinguna ganga yfir alla og smita Hef lítið getað hugsað um annað Þórólfur viðurkennir að starf hans hafi komið niður á fjölskyldulífinu undanfarið, enda hafi hann þurft að kasta öllu frá sér í baráttunni við faraldurinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR ÁRNASON stærstan hluta þjóðarinnar eða þá að við myndum ná að byggja upp ónæmi með bólusetningum,“ segir hann. Hefði haft skelfilegar afleiðingar Í upphafi faraldursins var mikið rætt um þann möguleika að láta veiruna ganga hér yfir alla og ná þann- ig hjarðónæmi. Þórólfur segir að hefði það verið gert hefði það verið skelfilegt. Alls hafa 30 manns látist af völdum Covid-19 á Íslandi og um tvö prósent þjóðarinnar hafa greinst með veiruna. Álagið á heilbrigðis- kerfið hafi verið mikið, einkum í fyrstu og þriðju bylgju faraldursins. „Maður getur rétt ímyndað sér ef tíu prósent þjóðarinnar hefðu smitast á sama tíma. Það hefði ekki bara haft áhrif á heilsufar þeirra sem fengu Covid, þetta hefði einnig komið niður á heilbrigðisþjónustu við aðra sjúklingahópa sem hefði getað haft skelfilegar afleiðingar,“ segir Þórólfur. Til að fá gott ónæmi þurfi að öllum líkindum milli 60 og 70 pró- senta smit í samfélaginu og ef ekkert hefði verið að gert, líkt og einhverjir hafi lagt til, hefði ástandið að hans mati getað orðið mjög alvarlegt. Í Svíþjóð ákváðu heilbrigðisyfirvöld að grípa ekki til róttækra aðgerða og stefna að hjarðónæmi með því að leyfa faraldrinum að ganga yfir þjóðina. Í ritrýndri grein í vís- indaritinu Lancet segja sænskir og bandarískir vísindamenn að sú aðferð hafi gert það að verkum að mjög margir smituðust og fjöldi lést, mun f leiri en í nágrannalöndum sem réðust í víðtækar aðgerðir. Sænska leiðin ekki rædd Þórólfur segir þann möguleika að fara sænsku leiðina, eins og hún hefur verið nefnd, aldrei verið ræddan af alvöru hér. „Ekki hjá ábyrgum aðilum, ekki hjá okkur. Það kom ekki til greina. Það var augljóst að það myndi valda gríðarlegu vandamáli. Enda höfum við séð það í þeim löndum sem það hefur gerst að dánartalan er kannski tíu til tuttugu sinnum hærri. Ef við hefðum lent í svipuðum sporum og Svíar til dæmis, þá hefðu kannski 500 til 600 manns látist af völdum Covid. Ég held að menn hefðu ekki verið ánægðir með það,“ segir Þór- ólfur. Byrjaði í barnalækningum Þórólfur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Laugarvatni árið 1973 og árið 1981 lauk hann em- bættisprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands. Í framhaldi stundaði hann nám í almennum barnalækningum í Bandaríkjunum og svo nám í smit- sjúkdómum barna í Bandaríkjunum. Hann segist ekki geta sagt til um það hvernig áhuginn fyrir smitsjúk- dómafræðum kviknaði. „Maður er auðvitað búinn að lifa og hrærast í þessu læknisstarfi frá því að maður útskrifaðist. Það var tiltölulega snemma sem ég ákvað að fara í læknisfræði. Læknisfræði er auðvitað mjög víðtækt fag sem kemur inn á mjög margt. Ég ákvað snemma að sérhæfa mig í barna- lækningum og ætlaði upphaflega að fara í nýrnasjúkdóma barna þegar ég fór til Ameríku.“ Þegar til Bandaríkjanna var Þorvarður Pálsson thorvardur @frettabladid.is 20 Helgin 10. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.