Fréttablaðið - 10.07.2021, Page 24

Fréttablaðið - 10.07.2021, Page 24
Uppbygging á innan- hússlausnum er almennt okkar mark- mið. Myrkur Games ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur heldur taka slaginn við stærstu tölvuleikjafram- leiðendur heims, með vænt- anlegum leik sínum Echoes of the End. Innanhússlausnir hafa verið allt í öllu hjá fyrir- tækinu, sem tilkynnti nýlega um samstarf við stóran, alþjóðlegan útgefanda. „Við hittumst fyrst í þriggja vikna áfanga sem snerist um að búa til tölvuleik á þremur vikum,“ segir Halldór Snær Kristjánsson, forstjóri Myrkur Games, um tilurð fyrir- tækisins. Hann stofnaði Myrkur árið 2016 ásamt þeim Daníel Arnari Sigurðssyni og Friðriki Aðalsteini Friðrikssyni sem kynntust í tölv- unarfræði í Háskólanum í Reykja- vík, með áherslu á tölvuleikjaþróun. Eldskírn Flokkunarhattsins „Á þessum tíma þekktumst við ekki neitt en vorum settir saman í hóp eins og með Flokkunarhatti Hogwartskóla,“ segir Halldór. „Ég var nýlega byrjaður að leigja skrif- stofu svo ég stakk upp á því að við færum þangað og gerðum eitthvað geggjað.“ Við tóku svefnlausar nætur þar sem félagarnir fóru í gegnum eld- skírn í tölvuleikjagerð. „Við hopp- uðum beint í djúpu laugina og bjuggum til leik sem var allt of stór og metnaðarfullur fyrir nýgræðinga eins og okkur, en þrátt fyrir það tókst býsna vel til. Það mikilvægasta sem við lærðum þar var að okkur þótti frábært að vinna saman og að við vorum allir með brennandi áhuga á tölvuleikjagerð.“ Í kjölfarið fór þríeykið að vinna að sýndarveruleikatækni sem var heitasta heitt í tölvuleikjaheim- inum á þeim tíma, og stofnuðu Myrkur Games í kringum verk- efnið. Þrátt fyrir að hafa klárað það til fullnustu áttuðu félagarnir sig á að ástríða þeirra lægi annars staðar. „Okkur langaði að búa til umfangs- mikinn og metnaðarfullan tölvu- leik saman, rétt eins og við gerðum þegar við kynntumst í tölvunar- fræðinni.“ Áður en Myrkur hófst handa lögðu þeir í mikla markaðs- og tæknigreiningu. „Við komumst að þeirri niðurstöðu að markaðurinn lægi vel við því að gera það sem við vildum gera. Við tók nokkurra ára vinna við að byggja upp gott kjarna- teymi, og þá þekkingu og verkferla sem verkefnið krafðist.“ Fyrirtækið hlaut um þetta leyti styrk frá Tækni- þróunarsjóði, sem Halldór segir að hafi stutt enn frekar við uppbygg- inguna. Myrkur var ekki að ráðast á markaðinn þar sem hann er lægstur, en umrætt verkefni er sögudrifinn ævintýraleikur á engum smá- skala. Samkeppnisaðilar á þeim markaði eru einhverjir stærstu tölvuleikjaframleiðendur heims en Halldór segir að það hafi ekki aftrað ástríðunni. „Myrkur í heild er byggt á þeirri hugmynd að með því að nýta mikla tæknifram- þróun í tölvuleikjaiðnaðinum geti minna fyrirtæki eins og Myrkur gert sömu hluti og þessir risastóru framleiðendur,“ segir Halldór. „Það sem gengur okkur í hag er að hver einasti leikur á þessum markaði er svo stór og umfangsmikill að það tekur mörg ár fyrir jafnvel stærstu fyrirtækin að gefa út hvern leik, sem tekur svo kannski bara nokkra tíma fyrir leikmenn að klára. Þarna sáum við gullið tækifæri til að anna hluta af þeirri gríðarlegu eftirspurn sem er eftir svona leikjum.“ Tvífarar og hreyfirakning Til að leikur Myrkurs gæti orðið að veruleika voru ýmsar tækni- legar áskoranir sem þurfti að leysa. Ein þeirra var hreyfirakningar- tækni (e. motion capture) sem var nauðsynleg til að glæða persónur leiksins lífi. „Við ákváðum strax að reisa okkar eigið upptökuver,“ segir Ljóst yfir Myrkur Games Halldór segir að mikil tækniframþróun í iðnaðinum hafi gert litlum tölvu- leikjaframleiðendum kleift að gera sömu hluti og risarnir á markaðnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Andrúmsloftið er temmilega afslappað í höfuðstöðvunum á Fiskislóð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Leikararnir Aldís Amah Hamilton og Karl Ágúst Úlfsson fara með aðalhlut- verkin í Echoes of the End. Hér eru þau útbúin hreyfirakningar- tækni ... MYND/MYRKUR GAMES Halldór. „Það var hvorki einfalt né ódýrt, en það hefur reynst algjör- lega rétt ákvörðun, og veitir okkur vissa sérstöðu í samanburði við önnur fyrirtæki af svipaðri stærð. Uppbygging á innanhússlausnum er almennt okkar markmið. Auk versins smíðuðum við líka hátækni skönnunarver, samansett af tugum myndavéla og öðrum búnaði, sem leyfir okkur nokkuð einfaldlega að „skanna“ leikara og skapa nákvæma eftirlíkingu af leikurum innan leiks- ins – eins konar tölvugerða tvífara. Það er ljóst að þessar lausnir hafa skilað Myrkri miklum árangri, en nýlega tilkynnti Myrkur um sam- starf sitt við framleiðandann Prime Matter, sem hefur höfuðstöðvar í Þýskalandi. „Þetta var algjör draumaniður- staða fyrir okkur,“ segir Halldór. „Við erum komin í samstarf við alþjóðlegan útgefanda sem deilir metnaði okkar fyrir því að þróa framúrskarandi leikjaupplifun. Prime Matter kemur inn með fjár- magn í verkefnið fyrir umtalsverða stækkun teymisins og tryggir þróun fram að útgáfu. Þetta er langstærsta skref Myrkur Games frá upphafi, og stórt skref fyrir leikjaiðnaðinn á Íslandi.“ Endalokin bergmála Í stiklu sem Prime Matter gaf út á dögunum má sjá brot úr leiknum sem Myrkur hefur verið að vinna að frá upphafi. Leikurinn ber heitið Echoes of the End og á sér stað í fantasíuheimi með ívafi af vísinda- skáldskap. Leikmenn bregða sér í hlutverk söguhetjunnar Ryn, sem er leikin af Aldísi Ömuh Hamilton, og takast á við erfiðar ákvarðanir sem hún stendur frammi fyrir. Aðspurður um hvenær áhuga- samir geti fengið að sjá meira af leiknum og jafnvel hvenær hann sé væntanlegur í hillur verður Hall- dór dulur. „Við viljum ekki tala um útgáfudag fyrr en við erum komin aðeins nær honum en það er nóg í höfn,“ segir hann. Í dag er Myrkur nýf lutt í nýtt skrifstofuhúsnæði á Fiskislóð og segir Halldór að markmiðið sé að tvöfalda starfsmannahópinn sem telur í dag átján manns. „Við erum að ráða inn nokkuð hratt og erum að leita að fólki í öll hlutverk fyrir- tækisins, allt frá listamönnum yfir í forritara,“ segir hann. „Við erum loksins komin á fullt skrið og erum spennt fyrir að fá meira frábært liðsafl til að hjálpa okkur að gera leikinn að veruleika.“ ■ Arnar Tómas Valgeirsson arnartomas @frettabladid.is Rýmin á skrifstofunni heita eftir stöðum úr leiknum. Halldór grátbað blaða- mann að nota ekki mynd af skrifstofu sinni, Lord’s Peak. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR ... sem kemur þeim inn í leikinn sem persónunum Ryn og Abram. 24 Helgin 10. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.