Fréttablaðið - 10.07.2021, Side 28
Heiðra minningu frumkvöðuls
Húsið er sögulegt og fangar augað.
Það stendur nærri höfninni og er
elsta íbúðarhúsið á Höfn. Margir
hafa velt fyrir sér sögunni á bak við
nafnið á staðnum. Húsið var reist
af Otto Tulinius kaupmanni en
hann bjó í húsinu með fjölskyldu
sinni og rak verslun í næsta húsi.
Húsið hefur verið gert upp að mestu
leyti á upprunalegan máta og í því
ríkir einstakur andi. Vinir okkar og
fjölskylda segjast hvergi sofa betur
og flest allir okkar viðskiptavinir
nefna andrúmsloftið um leið og
matinn og umhverfið. Auðvitað er
það eitthvað sem skapast af því sem
við setjum í það og líka frá gestun-
um sjálfum en einnig finnst okkur
húsið gefa af sér. Í aðdragandanum
veltum við ýmsum nöfnum fyrir
okkur en Otto er einfalt, auðvelt
og grípandi og heiðrar minningu
frumkvöðuls sem reisti húsið af
miklum myndarbrag fyrir rúmri
öld,“ segir Auður.
Húsið fullkomin umgjörð
Þegar við fundum húsið sáum við
möguleika á því að skapa lítinn
en metnaðarfullan veitingastað
eftir okkar höfði. Húsið var full-
komin umgjörð fyrir okkur, þar
sem á efstu hæðinni er íbúð sem
við höfum gert upp eftir okkar
þörfum, á miðhæðinni nota-
legur veitingasalur og eldhús og í
kjallaranum er eiginlega tilrauna-
svæði þar sem nú starfrækjum
við konseptverslun. Við lögðum
upp með ákveðnar hugmyndir en
ferlið hefur einnig verið lífrænt og
staðurinn þróast og þroskast. Við
erum í mikilli nánd við gestina og
skynjum strax hvað fellur í kramið
og hvað hentar á hverjum tíma.
Við erum líka óhrædd við að prófa
nýja hluti en það er kannski það
góða við að vera svona lítill að það
er auðvelt að aðlaga sig og breyta
sér,“ segja þau Auður og Andrés.
Fjölbreytt flóra
Það fylgja ýmsar áskoranir því að
vera með veitingarekstur á Höfn.
„Hér er mikil samkeppni og sveiflur
í fjölda ferðamanna. En fjöldi
veitingastaða stuðlar einnig að fjöl-
breyttri flóru matarmenningar og
orkar sem aðdráttarafl fyrir ferða-
mennsku. Það er auðvitað töluvert
ólíkt að stunda veitingarekstur
á Höfn í Hornafirði og í Reykja-
vík. Það er ótrúlega skemmtilegt
að vera gæða veitingahús á svo
afskekktum stað ef svo má kalla,
því að hissa-gleði-faktorinn verður
svo sterkur meðal gesta. Otto er
líka látlaus og gefur sig ekki út fyrir
að vera fínni en hann er. Okkar
grunnhugmynd var að vera lókal
veitingastaður, fyrst og fremst fyrir
heimamenn. Við bökum súrdeigs-
brauð daglega og við bökuðum
kanilsnúða daglega fyrstu árin til
að selja heimamönnum beint. En
þetta er auðvitað lítill kaupstaður,
hér eru margir veitingastaðir og
svo sáum við það fljótt að hér erum
við háð ferðamennsku. Á Höfn er
langt í næstu byggðarlög og fólk er
mikið að keyra í gegn, sem skapar
ákveðna stemningu.“
Hefur margt breyst á þessum
árum?
„Við höfum lært mikið á þessum
tíma og þurft að margaðlaga
okkar rekstur að markaðnum
og umhverfinu. Við höfum verið
með alls konar tilraunastarfsemi,
eins og opinn bar í kjallaranum,
bakstur alla daga, bröns um helgar,
morgunverð, verslun í kjallaranum,
pop-up heimsreisur og fleira og
fleira. Stærsta áskorunin hefur
auðvitað verið heimsfaraldur, en
það hefur verið þungur róður að
komast í gegnum þá mánuði á svo
litlum stað með enga ferðamenn.
Rekstrarumhverfið er auðvitað
síbreytilegt og nú erum við að
koma undan Covid þar sem við
höfum verið starfandi í hálfgerðum
neyðarfasa. Það verður spennandi
að sjá hvernig þróunin verður á
komandi mánuðum en allt horfir
það nú til betri vegar og við finnum
hvernig bærinn er að lifna við og
ferðamenn koma í auknum mæli
og glæða bæinn lífi.“
Handverk í eldhúsinu
Sérstaða staðarins er bæði
umhverfið og maturinn. „Inn-
réttingar eru að skandinavískri
fyrirmynd, einfaldar og fallegar. Í
eldhúsinu er allur matur lagaður
frá grunni og öll matreiðsla og
bakstur er handverk. Við bökum
súrdeigsbrauð í steinofninum alla
daga sem hefur vakið mikla eftir-
tekt. Við stöndum bæði vaktina
alla daga vikunnar og höfum
raunar gert frá byrjun, svo það má
kannski kalla það heimilislegt og
við erum auðvitað í mikilli nánd
við okkar gesti. Við erum eini veit-
ingastaðurinn á Höfn sem hefur
leyfi til þess að taka nema á samn-
ing, svo hjá okkur er hægt að læra
bæði matreiðslu og framreiðslu.
Síðast en ekki síst höfum við verið
með myndlistarsýningar síðan við
opnuðum og sýnt fjölbreytt verk
íslenskra myndlistarmanna. Það
er með miklu stolti sem við sýnum
pappírsþrykk Katrínar Sigurðar-
dóttur í sumar, með styrk frá Sam-
tökum sunnlenskra sveitarfélaga.
Sýningin samanstendur af verkum
frá árunum 2018-–2021 sem aldrei
hafa verið sýnd á Íslandi. Verkin
eiga þó sterka rót hér á landi og
ekki síst undir Vatnajökli.
Okkar áhersla í matargerðinni
hefur verið íslensk og norræn en í
fyrrasumar og í sumar höfum við
verið með franskan brasserie-seðil
sem hefur gefist vel svo þetta er
kannski blanda af því má segja. En
það eru mjög sterk höfundarein-
kenni á öllum réttum enda Andrés
verið að matreiða og þróa sína
eigin rétti og bragð síðan hann var
krakki. Við erum með ótrúlega
góða og vinsæla humarsúpu en
við erum líka með andalæri, eldað
í confit yfir nótt, reyktan þorsk-
hnakka frá Sólskeri og krækling.“
Við, ásamt fleiri veitingahúsum
á svæðinu, erum í samstarfi við
Omnom og Visit Vatnajökull í
sumar og því skemmtilegt að deila
uppskrift að franskri súkkulaði-
köku með Omnom Nicaragua 73%
súkkulaði.
Frönsk súkkulaðikaka með
Omnom ívafi
300 g Omnom Nicaragua 73%
300 g smjör
300 g sykur
30 g sterkt kaffi
20 g koníak
4 egg
Setjið allt nema egg saman í skál og
bræðið yfir vatnsbaði við vægan
hita.
Hrærið og bætið eggjunum út
í og hrærið áfram þar til allt er
komið saman. Hellið svo blönd-
unni í silikonform og komið fyrir í
ofnskúffu. Komið fyrir í ofninum.
Fyllið ofnskúffuna með heitu vatni
upp að miðju formsins. Bakið við
160 °C í 40 mínútur.
Leyfið að standa í opnum
ofninum í um það bil 10 mínútur.
Látið kólna áfram á borðinu og
komið svo í kæli. Þegar kakan er
borin fram er best að hita beittan
hníf til að ná fallegum skurði beint
úr kælinum. Þeyttur rjómi og gott
kaffi gera þetta svo að einni alls-
herjar sælu. ■
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Hjónin Andrés Bragason
matreiðslumeistari og
Auður Mikaelsdóttir fram-
reiðslumeistari eiga og reka
saman Otto veitingahús á
Höfn í Hornafirði. Um er að
ræða lítið fjölskyldufyrir-
tæki þar sem Andrés eldar
öll kvöld og Auður er gest-
gjafi hússins.
Andrés og Auður búa á efstu hæð-
inni ásamt syni sínum, Ara, sem
er 20 mánaða snáði. Veitingahúsið
er margrómað fyrir ljúffengan
mat og hlýlegt umhverfi, þar sem
matarástin blómstrar og ástríða
þeirra hjóna smitar út frá sér.
„Við höfum óbilandi ástríðu
fyrir matargerð og menningu.
Við elskum að búa á Hornafirði í
yndislegu húsi og elda góðan mat
fyrir heimamenn og gesti. Ég er
reyndar listfræðingur og starfa í
Svavarssafni á daginn, en það er
opið hjá okkur á Otto alla daga
fyrir kvöldverð,“ segir Auður og
nýtur sín í störfum sínum.
Ást við fyrstu sýn
Hvað kom til að þið f luttuð úr
borginni og yfir á Höfn í Horna-
firði?
„Stutta útgáfan er húsið, þetta
var ást við fyrstu sýn. En langa
útgáfan er sú að okkur langaði til
þess að koma á fót rekstri á eigin
forsendum og þótti kannski lands-
lagið í Reykjavík ekki hagstætt
á þeim tíma. Við höfum búið í
miðbænum í áratugi og gátum
hvergi hugsað okkur að vera nema
þar. En svo var ég í MBA-námi
og fór í skiptinám til Sjanghæ og
Andrés kom með. Í Kína rann upp
fyrir okkur að það væri hugsan-
lega bara allt í lagi að prófa að búa
annars staðar en í Grjótaþorpinu.
Þá fórum við af stað í hugmynda-
vinnu um hvað við vildum gera
og hvernig. Raunar var grunn-
hugmyndin að opna vegan stað
í Hveragerði, en okkur þótti líka
mjög mikilvægt að komast fljótt
og vel til Reykjavíkur. Við fórum
svo vítt og breitt að skoða mögu-
leika. Að lokum komumst við
yfir þá hugarhindrun að finnast
við þurfa að vera í námunda við
Reykjavík og hér enduðum við
alsæl í 6 klst. fjarlægð frá borginni.
Það er svo skrýtið hvernig staður
fangar hjarta manns en hér á Höfn
er náttúran svo ægifögur með
jöklana allt um kring og birtan
sem skapast er engu lík. Hingað
hafa listamenn sótt og reynt að
fanga sjónarspilið öldum saman.
Það eru sönn lífsforréttindi að búa
við slíkar aðstæður.“
Matarástin blómstrar á Höfn
Brugðið á leik fyrir framan veitingastaðinn Otto á Höfn í Hornafirði. MYND/AÐSEND
Andrés Bragason matreiðslu-
meistari rekur Otto ásamt
konu sinni. MYND/AÐSEND
Mikið er lagt í fallegan borð-
búnað og að gestum líði vel.
MYND/AÐSEND
Frönsk súkkulaðikaka með Omnom
ívafi sem vert er að prófa.
MYND/AÐSEND
Súpa með humri sem gleður
bragðlaukana er vinsæl á
Hornafirði. MYND/AÐSEND
4 kynningarblað A L LT 10. júlí 2021 LAUGARDAGUR