Fréttablaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 28
Heiðra minningu frumkvöðuls Húsið er sögulegt og fangar augað. Það stendur nærri höfninni og er elsta íbúðarhúsið á Höfn. Margir hafa velt fyrir sér sögunni á bak við nafnið á staðnum. Húsið var reist af Otto Tulinius kaupmanni en hann bjó í húsinu með fjölskyldu sinni og rak verslun í næsta húsi. Húsið hefur verið gert upp að mestu leyti á upprunalegan máta og í því ríkir einstakur andi. Vinir okkar og fjölskylda segjast hvergi sofa betur og flest allir okkar viðskiptavinir nefna andrúmsloftið um leið og matinn og umhverfið. Auðvitað er það eitthvað sem skapast af því sem við setjum í það og líka frá gestun- um sjálfum en einnig finnst okkur húsið gefa af sér. Í aðdragandanum veltum við ýmsum nöfnum fyrir okkur en Otto er einfalt, auðvelt og grípandi og heiðrar minningu frumkvöðuls sem reisti húsið af miklum myndarbrag fyrir rúmri öld,“ segir Auður. Húsið fullkomin umgjörð Þegar við fundum húsið sáum við möguleika á því að skapa lítinn en metnaðarfullan veitingastað eftir okkar höfði. Húsið var full- komin umgjörð fyrir okkur, þar sem á efstu hæðinni er íbúð sem við höfum gert upp eftir okkar þörfum, á miðhæðinni nota- legur veitingasalur og eldhús og í kjallaranum er eiginlega tilrauna- svæði þar sem nú starfrækjum við konseptverslun. Við lögðum upp með ákveðnar hugmyndir en ferlið hefur einnig verið lífrænt og staðurinn þróast og þroskast. Við erum í mikilli nánd við gestina og skynjum strax hvað fellur í kramið og hvað hentar á hverjum tíma. Við erum líka óhrædd við að prófa nýja hluti en það er kannski það góða við að vera svona lítill að það er auðvelt að aðlaga sig og breyta sér,“ segja þau Auður og Andrés. Fjölbreytt flóra Það fylgja ýmsar áskoranir því að vera með veitingarekstur á Höfn. „Hér er mikil samkeppni og sveiflur í fjölda ferðamanna. En fjöldi veitingastaða stuðlar einnig að fjöl- breyttri flóru matarmenningar og orkar sem aðdráttarafl fyrir ferða- mennsku. Það er auðvitað töluvert ólíkt að stunda veitingarekstur á Höfn í Hornafirði og í Reykja- vík. Það er ótrúlega skemmtilegt að vera gæða veitingahús á svo afskekktum stað ef svo má kalla, því að hissa-gleði-faktorinn verður svo sterkur meðal gesta. Otto er líka látlaus og gefur sig ekki út fyrir að vera fínni en hann er. Okkar grunnhugmynd var að vera lókal veitingastaður, fyrst og fremst fyrir heimamenn. Við bökum súrdeigs- brauð daglega og við bökuðum kanilsnúða daglega fyrstu árin til að selja heimamönnum beint. En þetta er auðvitað lítill kaupstaður, hér eru margir veitingastaðir og svo sáum við það fljótt að hér erum við háð ferðamennsku. Á Höfn er langt í næstu byggðarlög og fólk er mikið að keyra í gegn, sem skapar ákveðna stemningu.“ Hefur margt breyst á þessum árum? „Við höfum lært mikið á þessum tíma og þurft að margaðlaga okkar rekstur að markaðnum og umhverfinu. Við höfum verið með alls konar tilraunastarfsemi, eins og opinn bar í kjallaranum, bakstur alla daga, bröns um helgar, morgunverð, verslun í kjallaranum, pop-up heimsreisur og fleira og fleira. Stærsta áskorunin hefur auðvitað verið heimsfaraldur, en það hefur verið þungur róður að komast í gegnum þá mánuði á svo litlum stað með enga ferðamenn. Rekstrarumhverfið er auðvitað síbreytilegt og nú erum við að koma undan Covid þar sem við höfum verið starfandi í hálfgerðum neyðarfasa. Það verður spennandi að sjá hvernig þróunin verður á komandi mánuðum en allt horfir það nú til betri vegar og við finnum hvernig bærinn er að lifna við og ferðamenn koma í auknum mæli og glæða bæinn lífi.“ Handverk í eldhúsinu Sérstaða staðarins er bæði umhverfið og maturinn. „Inn- réttingar eru að skandinavískri fyrirmynd, einfaldar og fallegar. Í eldhúsinu er allur matur lagaður frá grunni og öll matreiðsla og bakstur er handverk. Við bökum súrdeigsbrauð í steinofninum alla daga sem hefur vakið mikla eftir- tekt. Við stöndum bæði vaktina alla daga vikunnar og höfum raunar gert frá byrjun, svo það má kannski kalla það heimilislegt og við erum auðvitað í mikilli nánd við okkar gesti. Við erum eini veit- ingastaðurinn á Höfn sem hefur leyfi til þess að taka nema á samn- ing, svo hjá okkur er hægt að læra bæði matreiðslu og framreiðslu. Síðast en ekki síst höfum við verið með myndlistarsýningar síðan við opnuðum og sýnt fjölbreytt verk íslenskra myndlistarmanna. Það er með miklu stolti sem við sýnum pappírsþrykk Katrínar Sigurðar- dóttur í sumar, með styrk frá Sam- tökum sunnlenskra sveitarfélaga. Sýningin samanstendur af verkum frá árunum 2018-–2021 sem aldrei hafa verið sýnd á Íslandi. Verkin eiga þó sterka rót hér á landi og ekki síst undir Vatnajökli. Okkar áhersla í matargerðinni hefur verið íslensk og norræn en í fyrrasumar og í sumar höfum við verið með franskan brasserie-seðil sem hefur gefist vel svo þetta er kannski blanda af því má segja. En það eru mjög sterk höfundarein- kenni á öllum réttum enda Andrés verið að matreiða og þróa sína eigin rétti og bragð síðan hann var krakki. Við erum með ótrúlega góða og vinsæla humarsúpu en við erum líka með andalæri, eldað í confit yfir nótt, reyktan þorsk- hnakka frá Sólskeri og krækling.“ Við, ásamt fleiri veitingahúsum á svæðinu, erum í samstarfi við Omnom og Visit Vatnajökull í sumar og því skemmtilegt að deila uppskrift að franskri súkkulaði- köku með Omnom Nicaragua 73% súkkulaði. Frönsk súkkulaðikaka með Omnom ívafi 300 g Omnom Nicaragua 73% 300 g smjör 300 g sykur 30 g sterkt kaffi 20 g koníak 4 egg Setjið allt nema egg saman í skál og bræðið yfir vatnsbaði við vægan hita. Hrærið og bætið eggjunum út í og hrærið áfram þar til allt er komið saman. Hellið svo blönd- unni í silikonform og komið fyrir í ofnskúffu. Komið fyrir í ofninum. Fyllið ofnskúffuna með heitu vatni upp að miðju formsins. Bakið við 160 °C í 40 mínútur. Leyfið að standa í opnum ofninum í um það bil 10 mínútur. Látið kólna áfram á borðinu og komið svo í kæli. Þegar kakan er borin fram er best að hita beittan hníf til að ná fallegum skurði beint úr kælinum. Þeyttur rjómi og gott kaffi gera þetta svo að einni alls- herjar sælu. ■ Sjöfn Þórðardóttir sjofn @frettabladid.is Hjónin Andrés Bragason matreiðslumeistari og Auður Mikaelsdóttir fram- reiðslumeistari eiga og reka saman Otto veitingahús á Höfn í Hornafirði. Um er að ræða lítið fjölskyldufyrir- tæki þar sem Andrés eldar öll kvöld og Auður er gest- gjafi hússins. Andrés og Auður búa á efstu hæð- inni ásamt syni sínum, Ara, sem er 20 mánaða snáði. Veitingahúsið er margrómað fyrir ljúffengan mat og hlýlegt umhverfi, þar sem matarástin blómstrar og ástríða þeirra hjóna smitar út frá sér. „Við höfum óbilandi ástríðu fyrir matargerð og menningu. Við elskum að búa á Hornafirði í yndislegu húsi og elda góðan mat fyrir heimamenn og gesti. Ég er reyndar listfræðingur og starfa í Svavarssafni á daginn, en það er opið hjá okkur á Otto alla daga fyrir kvöldverð,“ segir Auður og nýtur sín í störfum sínum. Ást við fyrstu sýn Hvað kom til að þið f luttuð úr borginni og yfir á Höfn í Horna- firði? „Stutta útgáfan er húsið, þetta var ást við fyrstu sýn. En langa útgáfan er sú að okkur langaði til þess að koma á fót rekstri á eigin forsendum og þótti kannski lands- lagið í Reykjavík ekki hagstætt á þeim tíma. Við höfum búið í miðbænum í áratugi og gátum hvergi hugsað okkur að vera nema þar. En svo var ég í MBA-námi og fór í skiptinám til Sjanghæ og Andrés kom með. Í Kína rann upp fyrir okkur að það væri hugsan- lega bara allt í lagi að prófa að búa annars staðar en í Grjótaþorpinu. Þá fórum við af stað í hugmynda- vinnu um hvað við vildum gera og hvernig. Raunar var grunn- hugmyndin að opna vegan stað í Hveragerði, en okkur þótti líka mjög mikilvægt að komast fljótt og vel til Reykjavíkur. Við fórum svo vítt og breitt að skoða mögu- leika. Að lokum komumst við yfir þá hugarhindrun að finnast við þurfa að vera í námunda við Reykjavík og hér enduðum við alsæl í 6 klst. fjarlægð frá borginni. Það er svo skrýtið hvernig staður fangar hjarta manns en hér á Höfn er náttúran svo ægifögur með jöklana allt um kring og birtan sem skapast er engu lík. Hingað hafa listamenn sótt og reynt að fanga sjónarspilið öldum saman. Það eru sönn lífsforréttindi að búa við slíkar aðstæður.“ Matarástin blómstrar á Höfn Brugðið á leik fyrir framan veitingastaðinn Otto á Höfn í Hornafirði. MYND/AÐSEND Andrés Bragason matreiðslu- meistari rekur Otto ásamt konu sinni. MYND/AÐSEND Mikið er lagt í fallegan borð- búnað og að gestum líði vel. MYND/AÐSEND Frönsk súkkulaðikaka með Omnom ívafi sem vert er að prófa. MYND/AÐSEND Súpa með humri sem gleður bragðlaukana er vinsæl á Hornafirði. MYND/AÐSEND 4 kynningarblað A L LT 10. júlí 2021 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.