Fréttablaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 32
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@
frettabladid.is
Formaður Félags bókaútgef-
enda segir að sala hljóðbóka
hafi margfaldast síðustu ár
og haft mikil áhrif á bóka-
markaðinn. Hann segir
útgefendur enn vera að finna
bestu leiðirnar til að gefa út
bækur og enginn viti hvern-
ig landslagið verði til lengri
tíma litið.
Auknar vinsældir hljóðbóka hafa
haft mjög mikil áhrif á bókamark-
aðinn og Heiðar Ingi Svansson, for-
maður Félags bókaútgefenda, segir
að nú standi yfir mikið umbreyt-
ingaskeið í bókaútgáfu sem ekki
sér fyrir endann á. Útgefendur eru
að gera tilraunir til að sjá hvers
konar útgáfa virkar best.
„Sala hljóðbóka hefur margfald-
ast á síðustu tveimur árum,“ segir
Heiðar. „Bæði hefur hljóðbókasala
almennt verið að aukast um allan
heim og verið einn helsti vaxtar-
broddurinn í útgáfu almennt og
svo flýtti heimsfaraldurinn fyrir
þróuninni, því fólk fékk næði til
að hlusta á bækur og í mörgum
tilvikum minnkaði aðgengi að
prentuðum bókum þar sem bóka-
búðir og bókasöfn voru lokuð víða
um heim.
Að einhverju leyti fjölgaði ein-
faldlega notendum hljóðbóka, en
mögulega eru hljóðbækur líka að
bæta við nýjum lesendum sem
byrja þar og fara svo að lesa prent-
aðar bækur,“ segir Heiðar. „Svo er
líka spurning hvort þetta sé að ein-
hverju leyti fólk sem er að fara úr
prentuðum bókum yfir í að hlusta
á hljóðbækur.
Það má spyrja sig hvaða áhrif
þetta hefur á sölu á kiljum, en
salan á þeim hafði verið að dragast
saman fyrir Covid og féll svo
dramatískt í fyrra. En Eymundsson
í Leifsstöð er gríðarlega mikil-
vægur sölustaður fyrir kiljur, svo
það er erfitt að segja að hve miklu
leyti faraldurinn hafði áhrif og að
hve miklu leyti salan er almennt að
falla,“ útskýrir Heiðar. „Við vonum
að kiljusalan komi til baka að ein-
hverju leyti þegar Íslendingar fara
að ferðast meira.
Svo má líka velta fyrir sér hvaða
áhrif sala hljóðbóka hefur á aðra
samkeppnisaðila, en þær eru í
samkeppni við hlaðvarpsþætti og
streymisveitur eins og Spotify og
Netflix,“ bætir Heiðar við.
Lesendum vonandi að fjölga
„Það er almennt mjög mikil
gerjun í afþreyingu sem við getum
hlustað á,“ segir Heiðar. „Við erum
stödd í miðju umbreytingaferli og
ég hef lært það í bókaútgáfu að þó
Mikil gerjun í bókaútgáfu
Heiðar Ingi
Svansson,
formaður
Félags bókaút-
gefenda, segir
að bókaútgáfa
sé að breytast
mikið um þessar
mundir.
MYND/KRISTINN
ÞEYR MAGNÚSSON
Heiðar segir að Storytel hafi haft mjög mikil áhrif á bókamarkaðinn á Íslandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTONBRINK
að maður telji sig vita eitthvað veit
maður í rauninni ekki neitt. Það er
svo oft búið að spá dauða bókar-
innar og ýmsu öðru sem hefur ekki
gengið eftir.
En þessi mikli vöxtur í hljóð-
bókaútgáfu getur ekki haldið
svona áfram, þetta nær einhverj-
um hápunkti og svo kemst á jafn-
vægi, en sem stendur er þróunin
svo hröð að við getum ekki áttað
okkur á landslaginu til lengri
tíma,“ segir Heiðar. „Vonandi er
þetta bara jákvætt og lesendum er
bara að fjölga og bækur í almennri
sókn, sama á hvaða formi þær eru.
Lestrarkannanir sýna líka að lestur
jókst í Covid og það var meiri sala á
prentuðum bókum í jólabókaver-
tíðinni í fyrra en árið áður. Ég veit
líka sjálfur um dæmi þess að fólk
fari að lesa og opna augun fyrir
fjölbreyttari leiðum til að njóta
góðra bóka eftir að hafa byrjað í
hljóðbókum.“
Tilraunastarfsemi í útgáfu
Heiðar segir að tilkoma Storytel
árið 2018 hafi haft mjög mikil áhrif
á markaðinn.
„Eftir það hefur orðið marg-
földun á sölu hljóðbóka. Það var
greinilega mikil eftirspurn eftir
hljóðbókum, sem hefur verið
svarað af krafti og hljóðbókaút-
gáfa hefur vaxið gríðarlega,“ segir
Heiðar. „Storytel hefur lagt mikið
í markaðinn, framleitt mikið og
haft mikil áhrif.
Það má líka ekki gleyma því
að það er sérstakt við markaðinn
hér á landi að rafbókasala hefur
ekki náð sömu festu og í kringum
okkur. Við stukkum eiginlega yfir
þær og fórum beint í hljóðbækur,“
segir Heiðar. „Ég veit að margir
útgefendur vona að sá markaður
eigi eftir að taka við sér hér á landi
og sala rafbóka aukist og mér
sýnist útgefendur vera að gera
tilraunir með að gefa út bækur
á ólíkum formum um þessar
mundir.
Sumir gefa út á öllum formum í
einu, sem raf bók, prentaða útgáfu
og hljóðbók, aðrir gefa þetta út á
sitt hvorum tíma og enn aðrir gefa
bækur bara út á hljóðbókarformi.
Storytel tilkynnti líka nýlega
að þau ætli að prófa að gefa út
eina prentaða bók á árinu,“ segir
Heiðar. „Fólk er bara að sjá hvað
virkar og það er rosaleg gerjun.
Best væri ef það væri hægt að
gefa út á öllum formum, í kilju,
innbundna útgáfu, raf bók og
hljóðbók. Þá myndi myndast sam-
spil milli þessara ólíku forma, en
núna erum við að fara í gegnum
ákveðið umbreytingaskeið sem
nær til neyslumynstra almennt.
Það má ekki gleyma því að lang-
flestar hljóðbækur hafa komið
út á prenti fyrst, enn sem komið
er, og verða til vegna þess að það
er til staðar góður og stöðugur
markaður fyrir prentaðar bækur.
En svo hefur maður líka heyrt af
því að bækur sem voru ekki vin-
sælar á prentuðu formi séu vinsælli
sem hljóðbækur,“ segir Heiðar.
„Ég veit það fyrir víst að næstu ár
verða áhugaverð og bransinn mun
ganga í gegnum miklar breytingar,
kannski þær mestu í mörg ár.“
Nóg í boði
Heiðar er sjálfur hrifinn af hljóð-
bókum og segist vera stórnotandi
þegar kemur að bókum.
„Ég hlusta á hljóðbækur, les
rafbækur og prentaðar bækur og
gef prentaðar bækur. Núna er ég á
ferðalagi um landið og þá hlustum
við hjónin á hljóðbækur saman í
bílnum eins og alltaf á ferðalagi,
en mér finnst hljóðbækur frábær
afþreying í akstri, og svo á kvöldin
grípur maður rafbók eða prent-
aða,“ segir hann. „Ég er oft með
margar bækur á náttborðinu og að
hlusta á margar hljóðbækur, einn
og með öðrum.
Íslenski bókamarkaðurinn er
mjög stór og fjölbreyttur miðað
við höfðatölu og ég er stoltur af því
hversu öflug útgáfa er hér og hvað
það eru margar leiðir til að njóta
bóka,“ segir Heiðar. „Ég hvet fólk
bara til að njóta íslenska sumarsins
með bók á sama hvaða formi sem
viðkomandi kýs, nóg er fram-
boðið.“ ■
4 kynningarblað 10. júlí 2021 LAUGARDAGURSUMARKILJUR