Fréttablaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 52
Margir nota sumarið til að lesa eða hlusta á bækur. elin@frettabladid.is Sumarið er góður tími til lesturs góðra bóka. Fólk er í sumarfríi og getur notið þess að slaka á með bók í hönd. Samkvæmt sænskri könnun segir fimmti hver Svíi að hann lesi minnst sjö bækur yfir sumartímann. Nokkur munur var þó á lestri eftir búsetu í landinu. Konur lesa mun meira en karlar, samkvæmt könnuninni, og 20% karla líta aldrei í bók. Þeir sem lesa þó allra minnst er ungt fólk á aldrinum 15–18 ára. Um 37% unga fólksins sagðist aldrei lesa bók né heldur hlusta á upplestur. Þátttakendur voru 2.710 manns í Svíþjóð á aldrinum 15 ára og upp úr. Bæði var spurt um lestur bóka og hlustun á raf/hljóðbækur. Samtals 24% þátttakenda sögðust lesa bækur yfir sumar- tímann, júní, júlí og ágúst. Hins vegar voru aðeins 10% sem sögðust lesa bækur í desember, janúar og febrúar. Þeir sem sögðust lesa bækur hvenær sem væri yfir árið voru 39%. Fólk sem las eina til þrjár bækur yfir árið voru 43% og 22% sögðust lesa 4–6 bækur. Ekki var spurt hvers konar bækur fólk væri að lesa. Það var Nextory í Svíþjóð sem gerði könnunina en fyrirtækið býður upp á fjölda tegunda af raf- bókum og hefur að markmiði að auka lestur/hlustun á hvers kyns bækur. ■ Konur lesa meira en karlar Hægt er að finna öfluga umræðu um bækur á netinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY oddurfreyr@frettabladid.is Íslenska þjóðin er einstaklega dugleg á samfélagsmiðlinum Facebook og ræðir þar og rífst um allt milli himins og jarðar. Það kemur því ekki á óvart að þessi mikla bókmenntaþjóð sé með öflugan umræðuvettvang um bók- menntir á miðlinum, er þar er að finna hópinn „Bókagull - Umræða um góðar bækur“, sem hefur rúm- lega 15 þúsund meðlimi. Hópurinn er öllum opinn og það er ekki nauðsynlegt að ganga í hann til að fylgjast með umræðunni sem fer þar fram. Hann hefur verið til í heil 11 ár og er mjög virkur enn í dag, en þar er fólk duglegt að benda hvert öðru á ýmsar bækur sem hitta í mark og ræða kosti og galla ýmissa bók- menntaverka. Þar er líka algjört bann við auglýsingum á bókum og atburðum, þannig að umræðan sprettur að öllu leyti frá almenn- um lesendum. Þeir sem hafa áhuga á að gera Facebook-síðuna sína örlítið menningarlegri, vantar hvatningu til að lesa meira eða dauðlangar að finna einhvern til að tala við um bækur, ættu ekki að hika við að ganga í hópinn. ■ Bókaumræða á Facebook Að lesa fyrir svefninn er gott. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY sandragudrun@frettabladid.is Streita á það til að hlaðast upp í amstri dagsins. Þegar tími er kominn til að fara í háttinn fer hugurinn oft á fullt og fólk á erfitt með að festa svefn. Fólk er kannski að hugsa um verkefni morgun- dagsins og nær ekki að róa hugann fyrir svefninn. Með því að sökkva sér niður í góða bók er hægt að leiða hugann frá streitu og amstri dagsins og gleyma sér í heimi sögunnar. Rannsókn nokkur leiddi í ljós að aðeins sex mínútna lestur minnkaði streitu um allt að 68%. Innihald bókarinnar skipti ekki máli. Það skipti ekki máli hvort fólk las fræðibækur, skáldskap eða eitthvað sem margir myndu flokka sem algjörar ruslbókmenntir, svo lengi sem lesefnið var áhugavert fyrir lesandann. ■ Lestur róar hugann 8 kynningarblað 10. júlí 2021 LAUGARDAGURSUMARKILJUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.