Fréttablaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 54
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa
@frettabladid.is
Arnbjörg Kristín Konráðs-
dóttir jógakennari tekur þátt
í hugleiðslu og gong-slökun
á skútu úti á Skjálfanda á
morgun. Á mánudaginn
verður hún með gong á
Siglufirði og á þriðjudaginn
leiðir hún jógagöngu um
Viðey.
Arnbjörg Kristín er búsett á Akur-
eyri þar sem hún kennir jóga og
nemur iðjuþjálfun. Hún segir lífið
ósjálfrátt hafa farið í hægari takt
eftir kórónuveirufaraldurinn og
ætlar að reyna að halda því þannig
áfram. Hún kennir jóga heima hjá
sér í litlum hópum og einnig úti í
náttúrunni. „Mér finnst gaman að
vera með rólega og heimilislega
stemningu þegar ég er með jóga-
tíma,“ segir Arnbjörg brosandi.
Að hennar sögn fer áhugi á
jóga og hugleiðslu sífellt vaxandi.
„Eftir Covid er líka gott að hægja
meðvitað á og hugsa meira um
heilsuna og hvernig hægt er að
byggja sig upp eftir þetta erfiða
tímabil.“
Hugleiðsla í hvalaskoðun
Næstu daga verður Arnbjörg með
mismunandi viðburði víða um
land og úti á sjó líka. „Á morgun
ætla ég að leiða hugleiðslu og
gong-slökun í hvalaskoðunarferð
Norðursiglingar á Ópal, hljóð-
látri seglskútu í faðmi einstakrar
náttúru og dýralífs úti á miðjum
Skjálfandaflóa. Huld Hafliða-
dóttir hjá Spirit North verður með
mér og við ætlum báðar að spila á
gong. Þar sem skútan er afar hljóð-
lát truflar hún hvalina lítið sem
ekkert svo vonandi láta þeir sjá
sig,“ segir Arnbjörg, en hún á von á
að þetta verði mikil upplifun fyrir
þátttakendur.
Gong er ásláttarhljóðfæri með
sögu aftur til bronsaldar og hefur
verið notað af fólki meðal annars
í hugleiðslutilgangi í árhundruð. Í
dag auðvelda hljómarnir hlustend-
um að hægja á huganum og upplifa
núvitund meðan á og í kjölfar
hlustunar, að sögn Arnbjargar.
Á mánudaginn ætlar hún svo að
bregða sér til Siglufjarðar þar sem
hún verður með gong og frum-
hljóðshugleiðingu í fjörunni, ef
veður leyfir. „Þetta er hluti af Lista-
hátíðinni Frjó í Alþýðuhúsinu.
Þar verður líka á dagskrá ljóðlist
og fleira áhugavert í boði,“ segir
Arnbjörg.
Hressandi jóga í Viðey
Á þriðjudaginn mun Arnbjörg
leiða hressandi jógagöngu um
Viðey. Gerðar verða jógaæfingar
Hugleiðsla og jóga á sjó og landi
„Eftir Covid er
gott að hægja
meðvitað á og
hugsa meira
um heilsuna og
hvernig hægt
er að byggja sig
upp eftir þetta
erfiða tímabil,“
segir Arnbjörg.
MYND/AÐSEND
Arnbjörg ætlar
að leiða hress-
andi jógagöngu
um Viðey á
þriðjudag.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
undir beru lofti og endað á endur-
nærandi slökun. „Farið verður með
ferjunni frá Skarfabakka klukkan
19.15. Ætlunin er að ganga um
Viðey og tengjast eyjunni vel. Þetta
er í raun jarðtengjandi og náttúru-
vænn viðburður. Við byrjum á að
gera öndunaræfingar og liðkandi
og styrkjandi jógaæfingar. Ég mun
laga æfingarnar að veðrinu, en
ef grasið verður þurrt gerum við
æfingarnar að hluta sitjandi, ann-
ars allar standandi,“ segir Arnbjörg
en farið verður hvernig sem viðrar
og fólk beðið um að klæða sig eftir
veðri.
„Ég enda síðan gönguna við
friðarsúluna þar sem ég ætla að
spila á gong á meðan fólk slakar á,“
segir Arnbjörg.
Þetta er í tíunda sinn sem hún
leiðir jógagöngu um Viðey. „Það
er skemmtilegt að sigla burt frá
borginni og út í eyjuna, þótt stutt
sé, og fá nauðsynlega pásu frá erli
borgarlífsins. Það er gott tækifæri
til að kúpla sig út, endurnæra sig
og fara svo endurnærð/ur til baka.
Í Viðey er svo sérstök orka, mikil
náttúrufegurð og áhugaverð saga.
Það er mér mikill heiður að fá að
leiða jóga um eyjuna. Nokkrir
sem hafa komið í jógagöngur með
mér undanfarin ár eru að koma í
fyrsta sinn til eyjarinnar og hafa
ekki áttað sig á hversu nálæg og
aðgengileg þessi náttúruperla er,“
segir Arnbjörg.
Finnum ræturnar
Arnbjörg ætlar að enda vikuna á
að opna innsetningu sem kall-
ast Molda í hlöðu í Garðhúsum
á Stokkseyri. „Ég var með þessa
innsetningu fyrr í sumar á Djúpa-
vogi í Múlaþingi. Molda fjallar um
að næra ræturnar og varpar ljósi á
jarðtenginguna okkar og hvar við
stöndum í okkar jarðneska lífi og að
við getum eignast rætur hvar sem
við endum á að búa. Eitt af því sem
Covid hefur kennt okkur er að læra
að vera heima hjá okkur og var því
gaman að nota tímann til að tálga
og forma hugmyndina heima. Ég
nota endurunnið efni úr nátt-
úrunni, rætur trjáa sem féllu í vetur
og einnig rekavið. Innsetningin
mun standa frá miðjum júlí og inn í
ágústmánuð,“ segir Arnbjörg.
Hún ætlar síðan að halda áfram
að kenna jóga næstu mánuðina.
„Ég mun leiða HAF jógakennara-
nám á Heilsustofnun í Hveragerði
í vetur. Fólk verður hjá mér í sjö
helgar og ég kenni jógaæfingar í
vatni og mildar og mjúkar æfingar
í sal. Áherslan verður á milda upp-
byggingu og endurnæringu í þessu
prógrammi, auk þess sem ég mun
fjalla um jógaheimspeki,“ segir
Arnbjörg að lokum. ■
Það er skemmti-
legt að sigla burt
frá borginni og út í
eyjuna, þótt stutt sé, og
fá nauðsynlega pásu frá
erli borgarlífsins. Það
er gott tækifæri til að
kúpla sig út og endur-
næra sig.
Arnbjörg Kristín.
OKKUR LÍÐUR EINS OG
FJÖLSKYLDU OG ERUM
TENGD SLÍKUM TRYGGÐA-
BÖNDUM AÐ ÞAÐ VAR ALDREI
VAFAMÁL AÐ VIÐ MYNDUM
TAKA UPP ÞRÁÐINN AÐ NÝJU.
SÖFN Á ÍSLANDI
Laugardaginn 17. júlí gefur Fréttablaðið út sérblaðið Söfn á Íslandi.
Í þessu skemmtilega blaði ætlum við að fræðast um þá fjölbreytilegu
flóru sem Ísland hefur upp á að bjóða í söfnum og sýningum.
Það er sífellt stærri hópur sem hefur áhuga á íslenskri menningu og
sögu og þetta því frábært tækifæri til að kynna ykkar safn og það
sem efst er á baugi hjá ykkur í sumar.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins.
Nánari upplýsingar um blaðið veitir:
Ruth Bergsdóttir sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 694 4103 / ruth@frettabladid.is
Högni segir titil plötunnar tengjast eftirför úlfa en heiti hennar verður opinberað síðar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hljómsveitin Hjalta-lín er að vakna af dvala og gefur úr nýtt lag í dag, en það heitir Love from 99. Högni Egilsson,
annar söngvara sveitarinnar, segir
lagið vera um æskuástir. Hljómsveit-
in stendur einnig fyrir tónleikum
í Hörpu þann 7. september, en þeir
verða stærstu tónleikar sveitarinnar
til þessa og öllu verður tjaldað til.
Síðasta plata sveitarinnar, Enter
4, kom út 2012. Högni segir ferlið
við gerð þeirrar plötu hafa tekið á
tilfinningalega, persónulega og tón-
listarlega. Í kjölfarið lagðist hljóm-
sveitin tímabundið í dvala á meðan
meðlimirnir sinntu öðrum verk-
efnum.
„Við erum smá að púsla bandin
aftur saman. Við höfum þannig
tengingu okkar á milli að það var
alltaf ljóst að við myndum spil
aftur saman. Okkur líður eins og
fjölskyldu og erum tengd slíku
tryggðaböndum að það var aldrei
vafamál að við myndum taka upp
þráðinn að nýju. Ég var fyrst mikið
að spila með GusGus og að gera mitt
sólóverkefni og hinir meðlimirnir
líka með nóg á sinni könnu,“ segir
Högni.
Hann segir að þau séu í raun að
koma með efnið upp á yfirborðið
því nýja platan hefur verið fimm ár í
vinnslu með hléum.
„Þessa plötu unnum við í lotu og
komum saman öðru hvoru. Platan er
nokkuð löng miðað við hvað gengur
og gerist í dag, heil 15 lög. Þetta voru í
heildina margir klukkutímar af upp-
tökum.
Högni segir það algengara í dag að
tónlistarfólk gefi út eitt lag í einu, líkt
og að það haldi að fólki hafi mögu-
lega ekki næga athygli fyrir heila
plötu.
„Það viðhorf finnst mér hálfgerð
Hljómsveitin Hjalta-
lín gefur út nýtt lag
í dag. Hún stendur
einnig fyrir sínum
stærstu tónleikum
til þessa í Hörpu í
september. Von er á
nýrri plötu frá þeim
á næstu misserum.
synd. Að nálgast tónlist á þann
hátt frekar en að geta skapað í það
form sem hún kallar á. Það er ekki
gott fyrir tónlistarmann að þurfa að
upplifa sig sem einhvers konar vöru,
eins og list sé neysla. List er ekki
neysla. Listin er það sem við trúum á,
vísbending að sálinni. Við erum ekki
að búa til vöru, við erum að búa til
sögu,“ segir Högni
Nýja platan kemur út á geisladisk
og vínyl.
„Ég lít einhvern veginn á plötu sem
heila hugsun. Platan spannar ákveð-
ið tímabil hjá okkur sem skapandi
einstaklingum. Eitthvað sem við
búum til í sameiningu og útkoman
sýnir svo dýnamíkina. Tónlistin er
afsprengi okkar sam-
bands sem mann-
eskja. Tónarnir eru
andrúmsloftið okkar.“
Högni segir hljóm-
sveitina ynna til
leiks ákveðinn heim
á nýju plötunni en
mikil leynd hvílir yfir
heiti hennar.
„Titillinn á eftir að
koma. Hann sveimar þarna einhvers
staðar fyrir ofan, en einhverra hluta
vegna finnst okkur eins og það séu
úlfar í eftirför, vitum ekki af hverju
en þeir fylgja okkur.”
Högni segir nýja lagið gleðilegt og
þeirra poppaðasta til þessa.
„Það fjallar um strák sem horfir
til baka til æskuástar og minnist
táningsdrauma. En þetta er fyrst og
fremst lag til að hlusta á og drekka
ódýrt Chardonnay á meðan,“ segir
Högni að lokum.
Nýja lagið, Love from 99, er hægt
að nálgast á öllum helstu streymis-
veitum. Miða á tónleikana í Hörpu
er svo hægt að nálgast á harpa.is/
hjalta lin. steingerdur@frettabladid.is
Lagið Love from 99 emur út á
öllum helstu stey isveitum í dag.
Guðmundur Óskar, Sigríður og Högni í stúdíóinu að vinna að gerð nýju
plötunnar. Hún kemur út á næstu misserum. MYND/EINAR ÓSKAR SIGURÐSSON
MEÐLIMIR HJALTALÍN
Axel Haraldsson
Guðmundur Óskar Guðmundsson
Hjörtur Ing i Jóhannsson
Högni Egilsson
Sigríður Thorlacius
Viktor Orri Árnason
Hjaltalín vaknar af dvala
1 2 . J Ú L Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð6 kynningarblað A L LT 10. júlí 2021 LAUGARDAGUR