Fréttablaðið - 10.07.2021, Síða 76

Fréttablaðið - 10.07.2021, Síða 76
Heather Massie sameinar ást sína á vísindum og listum í einleik um kvikmynda­ stjörnuna Hedy Lamarr, sem þótti á sínum tíma fegursta kona heims, en er að verða þekktari fyrir að hafa þróað tæknina á bak við þráðlausa gagnaflutninga. thorarinn@frettabladid.is Leikkonan Heather Massie er hingað komin frá New York, með stuðningi sendiráðs Bandaríkjanna, og sýnir margverðlaunaðan einleik sinn, HEDY! The Life & Inventions of Hedy Lamarr, á Fringe Festival í Tjarnarbíói í dag. „Ég kom hingað í stutt stopp í febrúar 2017 og sá sýningu á íslensku í Tjarnarbíói,“ segir Heath­ er, sem hefur ferðast með einleikinn víða um lönd. „Það var síðan fyrir hálfgerða tilviljun að ég frétti af Reykjavík Fringe Festival, ákvað að sækja um og hér er ég,“ segir Heather og hlær. Þráðlaus snilld „Ég rek sögu snillingsins, uppfinn­ ingakonunnar og Hollywood­leik­ konunnar Hedy Lamarr, sem hann­ aði stýrikerfi fyrir tundurskeyti í seinni heimsstyrjöldinni sem er nú notað í farsíma, þráðlaust net og GPS,“ segir Heather um Hedy Lamarr og tæknina, sem kennd er við Frequency­Hopping Spread Spectrum. „Tilgangur minn er meðal annars að hvetja ungar konur til þess að reyna fyrir sér í tækni og vísindum og renna um leið stoðum undir Hedy Lamarr sem fyrirmynd, með áherslu á hugvitssemi hennar og uppfinningar.“ Heather segir Lamarr hafa verið sannkallaða glamúrgyðju í Holly­ wood þegar henni var lýst sem fegurstu konu heims, en undir fögru skinni hennar leyndist sjálf­ menntað tækniséní. Beint í mark „Hún var leikkona á kafi í tækni og uppfinningum. Í stríðinu vildi hún styðja bandamenn og nýja landið sitt. Hún hafði öðlast mikla þekk­ ingu á hergögnum á meðan hún var gift austurríska hergagnafram­ leiðandanum Fritz Mandl, og lagði bandaríska f lotanum lið með því að þróa tækni sem gerði eldflauga­ skeyti miklu nákvæmari. Uppfinning hennar komst því miður ekki í gagnið í stríðinu, en þessi tækni er síðan allsráðandi í þráðlausum samskiptum í dag.“ Tæknigyðjan Lamarr föndraði við vísindastörf sín í hjáverkum og fékk ekki viður­ kenningu fyrir þau fyrr en undir lok ævi sinnar. „Það er meira á síðari árum sem fólk hampar henni fyrir snilligáfuna og fleiri og fleiri eru að komast að þessu. Hún er samt átrún­ aðargoð hjá mörgum sem starfa við tölvur og upplýsingatækni.“ Sjálf lagði Heather stund á stjarn­ eðlisfræði og ætlaði að verða geim­ fari, þannig að hún tengir sterkt við Lamarr sem leikkona með brenn­ andi tækniáhuga. „Þetta er mín leið til þess að blanda saman vísindunum og list­ inni. Mig langaði að skrifa verk um konu í vísindum og einhver stakk upp á Hedy Lamarr og hún er full­ komið viðfangsefni.“ Í kvikmyndum er Lamarr þekkt­ ust fyrir að hafa leikið Delílu í biblíusögumynd Cecil B. DeMille, Samson and Delilah, frá 1949. Hún hafnaði aftur á móti hlutverkum í bæði Gaslight og Casablanca, sem telja má afdrifarík mistök á Holly­ wood­mælikvarða. Sýningin um Hedy Lamarr hefst í Tjarnarbíói klukkan 15 í dag og verður streymt beint heimsálfa á milli og gestir hátíðarinnar Natio­ nal Arts Festival í Suður­Afríku geta horft með þeim sem sitja í Tjarnar­ bíói. „Það er spennandi og áhugavert fyrir mig að sýna á Íslandi og í Suð­ ur­Afríku samtímis,“ segir Heather, sem mun svara spurningum áhorf­ enda í báðum álfum að sýningu lokinni. ■ AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is ■ Lífið í vikunni 04.07.21 10.07.21 Heather Massie á það sameigin- legt með Holly- wood-gyðjunni Hedy Lamarr að vera leikkona með sterka vísindataug. MYND/ AL FOOTE Hedy Lamarr í epísku stór- myndinni um Samson og Delílu, þá sem gerði Samson máttlausan með hárskurði. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Snillingur undir fögru skinni Það er meira á síðari árum sem fólk hampar henni fyrir snilligáfuna og fleiri og fleiri eru að komast að þessu. Fyrsta Þjóðhátíð Bríetar Tónlistarkonan Bríet hefur verið bókuð á Þjóðhátíð í Eyjum og ekki nóg með að hún taki þar sviðið í fyrsta sinn heldur hefur hún aldr­ ei áður komið á hátíðina. Þá liggur einnig fyrir að Jóhanna Guðrún muni troða upp, auk þess sem rapp­ ararnir Cell7 og Aron Can munu láta að sér kveða í dalnum. Fullur bar af grjóti Veitingamaðurinn Jón Mýrdal opnaði, ásamt tónlistarmanninum Snorra Helgasyni, djassbúlluna Skuggabaldur við Austurvöll. Hann fór í gagngerar breytingar á húsnæð­ inu við hlið Hótel Borgar, sem fólu meðal annars í sér að hann þakti veggi staðarins með fjórum tonnum af enskum múrsteini. Klara réttir hallann Tónlistarkonan Klara Elias syngur um ást sem brennur á Þjóðhátíð í sumarlaginu Heim sem er komið á Spotify. Hún hugsar lagið öðrum þræði sem innlegg í umræðuna um að á 88 árum hafi aðeins ein kona samið þjóðhátíðarlag og segist mjög tilfinningatengd Þjóðhátíð þaðan sem hún á ljúfar minningar. Óvissa í Brekkunni Árni Johnsen stýrði brekkusöng á Þjóðhátíð í áratugi áður en Ingó veðurguð tók við. Eftir að hann var dæmdur úr leik hafa ýmsir verið nefndir. Bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik Dór, Salka Sól, Birgitta Hauk­ dal og Þórólfur Guðnason, sem gæti mætt með Víði og Ölmu og slegið í gegn sem Þórólfur og veiruguðirnir. Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði LOKA HELGIN LÝKUR MÁN. 12. JÚLÍ | HEILSUDÝNUR OG –RÚM | MJÚK- OG DÚNVÖRUR | SVEFNSÓFAR | SMÁVÖRUR | STÓLAR | SÓFAR | BORÐ SMÁRATORGI OPIN Á SUNNUD. KL. 13–17 ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR www.dorma.is V E F V E R S LU N ALLTAF OPIN LICATA u-sófi Licata u-sófi í Kentucky koníak áklæði. Hægri eða vinstri tunga. Svartir nettir járnfætur. Stærð: 366 x 226 x 82 cm Dormaverð: 369.990 kr. Aðeins 221.940 kr. 40% AFSLÁTTUR SUMAR ÚTSALA AUKINN AFSLÁTTUR AF VÖLDUM VÖRUM EKKI MISSA AF ÞESSU 44 Lífið 10. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.