Fréttablaðið - 11.09.2021, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 11.09.2021, Blaðsíða 10
Kjörskrár í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður Kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður vegna alþingiskosninga 25. september nk. liggur frammi almenningi til sýnis í Ráðhúsi Reykjavíkur fram á kjördag. Á www.reykjavik.is/kosningar má finna upplýsingar um hvar fólk kýs. Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra eru á kjörskrá og hvar þeir eiga að kjósa. Athugasemdum vegna kjörskrár í Reykjavíkurkjördæmum skal beina til skrifstofu borgarstjórnar í síma 411-4915 eða með tölvupósti á kosningar@reykjavik.is. Meðan kosning fer fram, laugardaginn 25. september nk., verður aðsetur yfirkjörstjórnar Reykjavíkur- kjördæmis norður í Ráðhúsi Reykjavíkur og yfirkjörstjórnar Reykjavíkurkjördæmis suður í Hagaskóla. Að kjörfundi loknum færist aðsetur yfirkjörstjórna í Laugardalshöll þar sem talning fer fram fyrir bæði Reykjavíkurkjördæmi. Talning hefst kl. 22:00 og er opin almenningi meðan húsrúm leyfir. Einnig verður streymt beint frá talningu á www.reykjavik.is/kosningar. Nánari upplýsingar má nálgast með því að hafa samband við skrifstofu borgarstjórnar í s. 411-4915 eða með tölvupósti á kosningar@reykjavik.is. Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis norður Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis suður Skrifstofa borgarstjórnar ALÞINGISKOSNINGAR 25. SEPTEMBER 2021 Samkvæmt rannsókn laga- nema við HA skapaði afnám lagaákvæða um uppreista æru óvissu, bæði fyrir þá sem ljúka afplánun í dag og þá sem höfðu áður fengið borgaraleg réttindi sín til baka.  kristinnhaukur@frettabladid.is LÖGFRÆÐI Óvissa ríkir um borg- araleg réttindi brotamanna eftir afplánun og embætti túlka lögin á mismunandi hátt. Þetta kemur fram í lokaritgerð Jóhönnu Óskar Jónas- dóttur við lagadeild Háskólans á Akureyri, um áhrif afnáms laga- ákvæða um uppreista æru. Málþing verður haldið um málefnið þann 17. september í skólanum og streymt á netinu. Uppreist æra var afnumin úr hegningarlögum árið 2017 eftir að mál kynferðisaf brotamannanna Roberts Downey og Hjalta Sigur- jóns Haukssonar komust í hámæli og felldu að lokum ríkisstjórnina. Löggjöfin var aðlöguð að þessu en með misjöfnum árangri, að mati Jóhönnu. „Í sumum lögum segir að menn geti fengið réttindi sín aftur að f imm árum liðnum, en ekki í öðrum, sem þýðir að skerðingin er ævilöng,“ segir hún og nefnir dæmi úr lögreglunni. Lögreglumaður sem fékk þriggja mánaða skilorðs- bundinn dóm fyrir breytinguna hélt sínu starfi, á meðan annar sem framdi brot með sömu refsingu eftir breytinguna missti það. Áður fengu einstaklingar sjálf- krafa óf lekkað mannorð fimm árum eftir afplánun og öll borgara- leg réttindi ef dómur var óskilorðs- bundinn í 4 til 12 mánuði. Ef dómur fór fram úr því þurfti að sækja um uppreista æru. „Það er óvissa um hvernig eigi að túlka lögin. Fyrst það er orðið mats- kennt hjá hverjum og einum hvort skýra eigi refsidóm sem einungis óskilorðsbundinn dóm eða einnig skilorðsbundinn, er verið að skerða réttindi einstaklinga án þess að það sé lagagrundvöllur fyrir því,“ segir Jóhanna. Áhrifin af því að missa sín borg- aralegu réttindi, jafnvel fyrir lífs- tíð, eru margvísleg, samkvæmt rit- gerðinni. Hið augljósasta er líklegast skerðing á atvinnufrelsi sem sé varið í stjórnarskránni. Þá geti það verið vandkvæðum háð að bjóða sig fram í kosningum, eins og Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, komst að í vetur. Ekki megi heldur vanmeta það að fólk upplifi beiskju og að það sé útilokað frá samfélag- inu. „Mér finnst eðlilegt að hvert til- felli sé metið, í stað þess að fólk sé útskúfað það sem eftir er,“ segir Jóhanna. Til dæmis að horft sé til þess hversu langt sé um liðið og hvort viðkomandi hafi snúið lífi sínu við. „Það er eins og ákvæðinu um uppreista æru hafi verið sópað undir borðið og ekkert spáð í framhaldinu, því þessi heild- arendurskoðun laganna í kjölfarið skilur eftir sig bæði skerðingu á rétt- indum og óvissu.“ Þó að Jóhanna telji ákvæðið hafa verið afnumið í f lýti og hugsunar- leysi, telur hún ekki líklegt, í ljósi þess sem á undan er gengið, að það rati aftur inn í löggjöfina. Mikilvægt sé þó að leysa úr óvissunni, meðal annars gagnvart þeim sem áður hafa fengið uppreista æru. „Hópur einstaklinga sem áður hafði öðlast óf lekkað mannorð sjálfkrafa eða hlotið uppreista æru er nú í óvissu,“ segir hún. „Þegar lagaákvæði eru túlkuð sem svo að viðkomandi má ekki hafa hlotið refsidóm, er horft á feril viðkom- andi frá því hann varð 18 ára, óháð því hvort hann hafi öðlast óflekk- að mannorð í eldri tíð laga, því má ætla að verið sé að beita afturvirkni laga.“ ■ Mótmælin haustið 2017 urðu til þess að ríkisstjórnin féll. FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR Mikil óvissa eftir afnám uppreistrar æru Arnar Þór Jónsson, héraðsdómari „Spurningin er hvort við viljum taka aftur við fólki inn í samfélagið eða hvort búið sé að taka upp þá stefnu að þeir sem hafa brotið af sér eigi aldrei afturkvæmt inn í mannlegt samfélag,“ segir Arnar Þór, sem flytur erindi á málþinginu. „Ég er talsmaður þess að við styðjum fólk frekar til að koma aftur.“ Áður fyrr hafi brotamenn verið brennimerktir án möguleika á að verða fullgildir meðlimir samfélags- ins, með tilheyrandi eymd og félagslegum vanda- málum. „Ég tel ekki rétt að útiloka fólk alfarið út frá afbrotunum sjálfum, heldur ætti að horfa á hvar einstaklingurinn er staddur í sinni betrun,“ segir Arnar. Helgi Gunnlaugsson, prófessor í afbrotafræði Helgi, sem meðal annars mun fjalla um ítrekunartíðni, segir hlutverk viðurlaga- kerfisins tvenns konar. Annars vegar að refsa til að fæla fólk frá afbrotum og hins vegar að endurhæfa og betra fólk. „Þetta er að sumu leyti mótsagnakennt og getur grafið hvort undan öðru,“ segir hann. Segir hann umræðuna um uppreista æru mest megnis snúast um kynferðisbrota- menn. Afnám borgaralegra réttinda væri í raun refsiauki, líkt og löggjöf í Bandaríkjunum og fleiri löndum um skrán- ingar kynferðisbrotamanna. „Sumir hafa talað fyrir þessari leið hérna, en rannsóknir erlendis frá sýna að skráningin veitir falskt öryggi og geri við- komandi aðeins útskúfaðri og hættulegri,“ segir Helgi. Nefnir hann að til dæmis í Bretlandi hafi verið komið á sérstökum stuðningsúr- ræðum fyrir slíka brotamenn er kallast Circles. Mér finnst eðlilegt að hvert tilfelli sé metið í stað þess að fólk sé útskúfað það sem eftir er. Jóhanna Ósk Jónasdóttir, laganemi kristinnhaukur@frettabladid.is KOSNINGAR Minnihluti Samfylk- ingarinnar í Hafnarfirði harmar að kjörstöðum hafi ekki verið fjölgað í bænum. Kjörstaðir eru nú tveir, Lækjarskóli og Víðistaðaskóli. Samkvæmt Öddu Maríu Jóhanns- dóttur, oddvita f lokksins, skortir einna helst kjörstað í nýrri hverfum í suðurhluta bæjarins, Völlunum og Skarðshlíð. „Vellirnir eru orðnir svo stórt hverfi og okkur finnst eðlilegt að bæta þar við kjörstað eða að minnsta kosti bjóða upp á strætó- ferðir fyrir kjósendur,“ segir Adda. Bendir hún á að f lokkurinn hafi ljáð máls á þessu frá því í forseta- kosningunum árið 2016. Síðan hafa farið fram tvennar alþingiskosn- ingar, sveitarstjórnarkosningar og aðrar forsetakosningar án fjölgunar kjörstaða. „Í eitt skipti var samþykkt að láta skoða þetta en svo gerist ekki neitt. Þetta er alveg ótækt,“ segir Adda. 5 nýjum kjörstöðum var bætt við í Reykjavík fyrir alþingiskosn- ingarnar og 4 fyrir forsetakosning- arnar í fyrra. Eru þeir því orðnir 23 eða einn á hverja 6 þúsund íbúa. Til samanburðar þá eru kjörstaðir í Hafnarfirði einn á hverja 15 þúsund. Samkvæmt greinargerð yfirkjör- stjórnar frá árinu 2018 hafa kjör- staðirnir tveir þjónað hlutverki sínu vel. Strætisvagnaferðir væru góðar og þeir sem lengst þyrftu að fara á kjörstað myndu þurfa 20 mínútna ferð og 5 mínútna göngu. Þá væru bílastæði næg á stöðunum. Fjölgun kjörstaða myndi fylgja aukinn kostnaður, en ekki þyrfti að greiða leigu fyrir afnot af skólunum tveimur. Adda segist einfaldlega ekki vera sammála höfundum greinar- gerðarinnar, um að tveir kjörstaðir séu nóg. Það séu íbúar Vallahverfis ekki heldur. „Vallabúar hafa rætt þetta og þeim finnst hverfið vera afskipt. Ég hef fullan skilning á því,“ segir hún. ■ Vilja fleiri kjörstaði í Hafnarfirði Enginn kjörstaður er í Vallahverfinu í Hafnarfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR 10 Fréttir 11. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.