Fréttablaðið - 11.09.2021, Blaðsíða 34
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Haustið gleður á marga
vegu, fallegir haustlitir taka
á sig mynd í náttúrunni og
það er ákveðin kyrrð sem
fylgir þessari árstíð. Þá er
upplagt að skapa róman-
tíska stund með ljúffengum
haustrétti og kertaljósi.
Berglind Guðmundsdóttir, lífs-
kúnstner, eigandi vefsíðunnar
Gulur, rauður, grænn og salt,
bókaútgefandi og þáttastjórnandi
hjá Dagmálum á mbl.is, kann svo
sannarlega að njóta góðs matar og
fanga árstíðabundna stemningu
um leið. Hún hefur líka gert sjón-
varpsþætti þar sem matargerð og
að kunna að njóta er í forgrunni.
„Ég gerði nýlega fjóra stórkost-
lega þætti um hina einstöku Sikil-
ey og fólkið sem þar býr en þeir
eru sýndir í Sjónvarpi Símans. Ég
mæli svo mikið með að horfa á þá
því þeir endurspegla hæglætislíf
Sikileyinga og eru svo góðir fyrir
hjartað,“ segir Berglind sem leggur
mikið upp úr því að við kunnum
að njóta.
Þurfti að velja á milli
tveggja rétta
Berglind á sína uppáhalds haust-
rétti og við fengum hana til að
deila með lesendum einum af
sínum uppáhalds.
„Haustréttirnir sem ég held upp
á eru reyndar margir, en að lokum
stóð valið á milli tveggja rétta;
ítölsku kjötsúpunnar og guðdóm-
legs grænmetislasagna. Úr varð að
ég valdi grænmetislasagna og ég
veit að hér verður enginn svikinn.“
Var grænmetisæta á sínum
yngri árum
Að baki mörgum réttum býr saga
og þessi réttur er einn þeirra.
„Ég var grænmetisæta í nokkur
ár, á mínum yngri árum, eða þar til
ég datt í skál af buffalo-vængjum
með gráðaostasósu á Hard Rock
Café, þá rétt rúmlega tvítug. Þrátt
fyrir að vera ekki grænmetisæta í
dag elska ég góða vegan- og græn-
metisrétti. Það er eitthvað við
mat í fallegum litum. Þessi réttur
er kannski ekki sá fljótlegasti, en
þvílík dásemd. Hér smellur allt
saman og punkturinn yfir i-ið er
heimagert pestó, en það jafnast
ekkert á við pestóið sem maður
gerir sjálfur.“
Haustið kallar á þyngri mat
Berglind segir að matargerðin
breytist mikið hjá sér á haustin og
hún fari þá í allt annan gír.
„Ég fer meira í „comfort food“
eins og lambaskanka og kartöflu-
Grænmetislasagna sem engan svíkur
Berglind er mik-
ill ástríðukokkur
og lífskúnstner
sem leggur
mikið upp úr því
að við eigum að
njóta matarins
og gera það af
ást.
VALLI/
FRÉTTABLAÐIÐ
Grænmetislasagna Berglindar er ómótstæðilega girnilegt og hún lofar að
enginn verði svikinn af þessum rétti.
mús, kjötbollur, rótargrænmeti og
súpur. Já, líklega borða ég aðeins
þyngri mat, ef svo má kalla, þegar
haustið gengur í garð. En þetta
fer að sjálfsögðu eftir því hvort
haustið er ljúft eða haustlægðirnar
skelli á okkur af fullum krafti.
Verra veður kallar á „þyngri“ mat.“
Berglind leggur líka mikla
áherslu á að við njótum matarins
og fáum ekki samviskubit yfir því
sem við borðum.
„Mig langar að minnast á að
heilbrigði er ekki bara að borða
hollan mat heldur einnig að borða
hann með réttu hugarfari. Að
borða og njóta hvers bita, í stað
þess að borða kannski eitthvað
óhollt og refsa sér með ljótum
hugsunum. Tölum fallega við
okkur, leyfum okkur alls konar og
gerum það af ást,“ segir Berglind og
brosir sínu fallega og einlæga brosi.
Girnilegt grænmetislasagna
að hætti Berglindar
Ólífuolía
Smjör
3 stk. laukar, skornir í þunnar
sneiðar
1 msk. púðursykur
1 msk. timían + 1 tsk.
3 stk. kúrbítur (zucchini), skorinn í
þunnar sneiðar langsum
6 stk. plómutómatar, skornir
langsum
Lasagnaplötur
Spínat
1 poki rifinn mozzarellaostur
1 stór dós kotasæla, vökvi lítillega
síaður frá og hrært út í 1-2 msk.
rjómaost (ef vill)
½ bolli rifinn parmesanostur
Fínrifinn börkur af einni sítrónu
½ búnt söxuð steinselja
3 msk. smjör
1½ dl brauðmylsna, mæli með
Panko
1 msk. dijonsinnep
8 msk. ólífuolía
Pestó (má kaupa tilbúið)
50 g basil, stilkar fjarlægðir
2 hvítlauksrif
3 msk. ólífuolía
3 msk. furuhnetur
3 msk. parmesanostur
Allt sett í blandara og blandað vel
saman.
Látið tvær matskeiðar af olíu
og eina matskeið af smjöri á stóra
pönnu og hitið við lágan hita þar
til smjörið hefur bráðnað. Bætið þá
út í lauk, púðursykri og einni mat-
skeið af timían og hitið á pönnunni
í 20 mínútur eða þar til laukurinn
er kominn með karmelluáferð.
Hrærið reglulega í lauknum.
Hitið ofninn á 150°C. Blandið
saman í stórri skál zuccini ásamt
fjórum matskeiðum af olíu og
saltið. Raðið á bökunarplötu (gæti
þurft tvær) og eldið í 20 mínútur
eða þar til það er orðið mjúkt.
Aukið þá hitann í 200°C og eldið í
um 10 mínútur eða þar til zucch-
iniið er orðið gyllt.
Blandið kotasælu, parmesan,
sítrónuberki, steinselju (nema 1
msk.) saman í skál og saltið og
piprið.
Hitið pönnu og bræðið tvær
matskeiðar af smjöri við meðal-
hita. Bætið einni teskeið af timían,
einni matskeið af dijonsinnepi og
einni matskeið af steinselju. Takið
af hitanum og hrærið kröftuglega.
Bætið brauðraspinu út í og blandið
vel saman. Takið til hliðar.
Raðið nú hráefnunum saman í
ofnfast mót:
■ helmingur af lauknum í botninn
■ helmingur af zucchinisneiðum
■ helmingur af tómatsneiðum
■ látið pastaplötur yfir allt
■ pestó yfir pastaplöturnar
■ helmingur af kotasælublöndunni
■ spínat
■ helmingur af mozzarellaosti
Endurtakið einu sinni enn í sömu
röð og látið síðan brauðmylsnu yfir
allt.
Hitið í 175°C heitum ofni í 20
mínútur með álpappír yfir forminu.
Takið hann síðan af og eldið í aðrar
40 mínútur. Berið fram á fallegan
hátt og njótið. ■
Hægt er að fylgjast matargerð
Berglindar á vefsíðunni hennar
grgs.is og á Instagram-reikningn-
um @gulurraudurgraennogsalt
4 kynningarblað A L LT 11. september 2021 LAUGARDAGUR