Fréttablaðið - 11.09.2021, Blaðsíða 94
Reykjavík
Ísafjörður
Akureyri
Egilsstaðir
Kirkjubæjarklaustur
Í dag verður yfirleitt hæg vestlæg eða breytileg átt. Léttskýjað á Vestfjörðum
og vestan til þegar kemur fram á daginn, annars yfirleitt skýjað og hætt við
dálítilli vætu af og til. Hiti 7-14 stig. Ört vaxandi suðaustan átt á morgun,
13-20 m/s sunnan og vestan til með talsverðri rigningu. n
Veðurspá Laugardagur
Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Pondus Eftir Frode Øverli
Á móti hverjum
spilið þið í
dag, Kamilla?
Bertha
Berlin!
Pabbi, mig dauðvantar pening
fyrir bensíni.
Sagði gaurinn með þúsund
krónu orkudrykkinn.
Þú myndir ekki vilja að
ég myndi sofna við
dæluna, er það? Guð forði
okkur.
Nau nau!
Hvað er
þetta?
Fjallahjólið hans Trausta.
Ég ætla að kaupa það. 29 tommu hjól... álumgjörð...
hátækni gírskipting...
... og barnastóll sem má festa við.
Þetta síðasta
bjargaði þér.
GHH HNN
Fyrsti heimspekingurinn
var fyrsti veðurfræðingurinn
Í kennslu vestrænnar heimspeki er
litið svo á að fyrsti heimspekingur-
inn hafi verið Þales frá forn-grísku
borginni Míletos á Anatólíuskaga,
en hann á að hafa spáð fyrir um sól-
myrkva árið 585 f.Kr. með vísinda-
legri aðferð og því hafið heimspeki-
söguna fyrir alvöru.
Fræg saga er kennd við Þales, þar
sem segja má að hann hafi orðið
fyrsti veðurfræðingurinn. Í tíð
Þalesar var ólífuolía einstaklega
mikilvæg og nytsamleg afurð. Fyrir
ólífuuppskeruna eitt árið var búist
við því að uppskeran yrði lítil, en
Þales var því ósammála. Eftir að
hafa stundað sína skoðun, spáði
hann fyrir að sumarið yrði gott og
uppskeran ríkuleg. Því leigði hann
allar ólífupressuvélar í nærliggjandi
borgum og þegar spá hans svo rætt-
ist og uppskeran var til, leigði hann
út pressuvélarnar á uppsprengdu
verði.
Þales á að hafa verið fyrsti heim-
spekingurinn, því hann reyndi
með athugun sinni og aðferð að
skýra heiminn og að finna orsakir
í heiminum. Svo nú, tveimur og
hálfu árþúsundi seinna, höfum við
ríka sögu vísindaaðferðar og þar á
meðal veðurfræðina, þó hún sé um
margt annars eðlis en sú sem Þales
beitti fyrir sig. Góða helgi. n
Sigurður Þ.
Ragnarsson
vedur
@frettabladid.is
42 11. september 2021 FRÉTTABLAÐIÐVEÐUR MYNDASÖGUR 11. september 2021 LAUGARDAGUR