Fréttablaðið - 11.09.2021, Blaðsíða 18
18 Íþróttir 11. september 2021 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 11. september 2021 LAUGARDAGUR
581 1281
Í tilefni þess að tvær vikur
eru til kosninga sendi Frétta-
blaðið spurningalista á
stjórnmálaflokkana níu sem
mælast með nægt fylgi til að
koma inn þingmanni í kom-
andi kosningum, um fram-
tíðaráform í íþróttamálum til
næstu ára.
Lögð var áhersla á atriði sem hafa
verið í brennidepli í íþróttalífinu
undanfarið, næstu skref í aðstöðu-
málum og hvernig hægt væri að
koma í veg fyrir ofbeldi innan
íþróttahreyfingarinnar. Þá má lesa
um stefnu flokkanna hvað varðar
afrekssjóði á vef Fréttablaðsins. ■
Nánar á frettabladid.is
Áherslur flokka
í íþróttamálum
Umræða um afrekssjóð náði ekki í gegn fyrir lok þingstarfa í sumar.
Framsóknarflokkurinn
Aðstöðumál: Undirbúningur að byggingu
þjóðarleikvanga hófst á þessu kjörtímabili
undir stjórn Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og
menningarmálaráðherra. Þeir verða fyrir
allar íþróttir hvort sem það er knattspyrna, inni-
íþróttir eða frjálsar. Framsókn stefnir á að ljúka
uppbyggingu á nýjum þjóðarleikvöngum á næsta
kjörtímabili. Að öll óbreyttu, með Framsókn í ríkis-
stjórn, er það raunhæft markmið.
Ofbeldismál: Lilja Alfreðsdóttir bjó til stöðu sam-
skiptaráðgjafa vegna áreitnimála innan íþrótta-
hreyfingarinnar á þessu kjörtímabili. Forvarnir og
fræðsla þurfa ávallt að sæta frekari endurskoðun
og eflingar með tímanum, en hún hefst almennt
í skólunum. Lilja hefur einnig unnið í átt að slíkri
endurskoðun og eflingu. Framsókn vill halda því
góða starfi áfram og sjá til þess að fræðsla barna
í skólum og innan íþróttahreyfingarinnar sé eins
góð og mögulegt er.
Sjálfstæðisflokkurinn
Aðstöðumál: Sjálfstæðisflokkurinn hefur
lagt áherslu á byggingu nýs þjóðarleik-
vangs í Laugardalnum. Til að hægt sé að
hrinda verkefninu í framkvæmd verða borgaryfir-
völd að koma að málinu. Það eru allar forsendur
til að ráðast í framkvæmdir á komandi kjörtíma-
bili.
Ofbeldismál: Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu
á traust, trúnað, gagnkvæma virðingu, uppbyggileg
samskipti og jafnræði á öllum sviðum samfélags-
ins. Líkt og allir aðrir verður íþróttahreyfingin að
vinna skipulega og opið gegn hvers konar ofbeldi.
Forysta íþróttahreyfingarinnar verður að tryggja
að starfsfólk og sjálfboðaliðar á vegum hennar fái
fræðslu um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og
áreitni. Ríki og sveitarfélög þurfa að vinna náið og
skipulega með frjálsum félagasamtökum í baráttu
gegn ofbeldi, ekki síst í gegnum menntakerfið.
Vinstri græn
Aðstöðumál: Það á að stefna að fram-
kvæmdum á þjóðarleikvangi sem fyrst. Ríkis-
stjórnin gaf út tilkynningu þess efnis í vetur að
vonir stæðu til þess á næstu fimm árum. Hins
vegar þarf einnig að líta til þess að aðstaða til
íþróttaiðkunar og útivistar sé sem best. Þannig
hefur VG hvatt sveitarfélögin til áframhaldandi
góðra verka, bæði til stuðnings við íþróttafélög
eða uppbyggingar til ástundunar íþrótta.
Ofbeldismál: Það er mikilvægt að unnið sé að
forvörnum í öllum birtingarmyndum. Sérstaklega
innan íþrótta þar sem börn og ungmenni verja
miklum tíma og eiga margar fyrirmyndir. Um þetta
er fjallað í aðgerðaáætlun um forvarnir gegn kyn-
ferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt
áætlun fyrir árin 2021–2025 sem Katrín Jakobs-
dóttir lagði fram. Þar er sérstakur kafli um forvarnir
í íþrótta- og æskulýðsstarfi og höfuðáhersla lögð á
fræðslu. Sú fræðsla á að vera á ábyrgð stjórnenda
íþróttafélaga, samkvæmt áætluninni. Ljóst er að
þessum breytingum þarf að fylgja eftir af fullum
krafti. Ofbeldi á ekki að líðast.
Viðreisn
Aðstöðumál: Ríkisstjórnin hefur kynnt háleit áform um
nýjan þjóðarleikvang í knattspyrnu án þess að gera ráð fyrir
fjármögnun, en lítið hefur farið fyrir hugmyndum um þjóðarhöll.
Það er ljóst að við stöndum frammi fyrir mikilvægum verkefnum
í innviðauppbyggingu sem nauðsynlegt er að fjármagna. Það þarf
hins vegar ekki að standa í vegi fyrir því að við bregðumst við þeirri
slæmu stöðu sem uppi er. Nýr fjölnota þjóðarleikvangur í Laugar-
dal er vel til þess fallinn að vera unninn í einkaframkvæmd með
stuðningi ríkis og borgar.
Ofbeldismál: Íþróttahreyfingarnar leika lykilhlutverk í forvörnum.
Kynferðislegt ofbeldi og áreitni ásamt kynbundnu ofbeldi hefur á
síðustu misserum komist í hámæli og verður sífellt ljósara að um
djúpstætt og víðfeðmt þjóðfélagsmein er að ræða. Viðreisn hefur lagt
fram tillögu þess efnis að tekin verði upp markviss fræðsla um kynja-
fræði, kynfrelsi, sjálfsákvörðunarrétt og þýðingu samþykkis í kyn-
ferðislegum samskiptum. Þá verði sérstök áhersla lögð á að styrkja
frjáls félagasamtök þ.m.t. íþróttafélög, fjölmiðla og stofnanir til miðl-
unar fræðslu og sérstakra herferða sem beint verði að skilgreindum
markhópum samfélagsins, enda mikilvægt að styðja við þá sem leggja
þessum málefnum lið með mikilvægu starfi og sérþekkingu.
Samfylkingin
Aðstöðumál: Mikilvægt er að stærð nýs vallar endurspegli
bæði alþjóðlegar kröfur en sé jafnframt í samræmi við sætanýtingu.
Þá er mikilvægt að nýr þjóðarleikvangur í innanhússíþróttum sé eins
sveigjanlegur og hægt er, svo hann megi nýta fyrir eins margar innan-
hússíþróttir og hægt er. Fyrst þarf þó að ákveða að reisa nýtt mann-
virki, hanna það, ná samningum um rekstur þess og svo má hefja
framkvæmdir. Ef fólk brettir upp ermar væri hægt að ljúka mörgu af
ofangreindu á næsta kjörtímabili.
Ofbeldismál: Íþróttahreyfingin þarf að vinna heils hugar með jafn-
rétti allra kynja að leiðarljósi og gefa sérstakan gaum að forvörnum
gegn kynbundnu ofbeldi, áreitni eða ómenningu. Fræðsla og skýr
skilaboð þarf til iðkenda, þjálfara og sjálfboðaliða um að þess háttar
leyfist alls ekki innan raða íþróttahreyfingarinnar. Taka þarf á málum
sem upp koma af festu og samkvæmt verkferlum og gera á kröfu um
að slíkt verklag sé til staðar við opinberar styrkveitingar. Þarna eru
landssambönd og stjórnvöld mikilvægir fræðslu- og stuðningsað-
ilar. Þegar kemur að kynferðisbrotum og meðferð þeirra þarf að
tryggja þolendum langtímastuðning, styttri málsmeðferðartíma og
málsaðild, þegar réttað er yfir geranda.
Sósíalistaflokkurinn
Aðstöðumál: Sósíalistaflokkurinn hefur
ekki tekið aðstöðumál fyrir en leggur áherslu á að
slíkar framkvæmdir fái réttláta afgreiðslu.
Ofbeldismál: Sósíalistaflokkur Íslands hefur
á stefnuskrá sinni að sakamál og dómsmál,
sér í lagi kynferðisbrotamál, verði sett í gagn-
gera endurskoðun svo réttarvörslukerfið verði
þolendavænna á allan máta. Einnig er mælst til
að sett verði á laggirnar eftirlit sem rannsaki eftir
ábendingum eða eigin frumkvæði vinnustaði,
skóla og opinbera staði og hafi vald til að bregðast
við, þar sem sýnt er að ofbeldi og áreitni grasserar,
fjarlægja ofbeldismenn, svipta staði starfsleyfi
og beita öðrum leiðum til að tryggja starfsfólki,
nemum og gestum öryggi. Eftirlitinu ber að ein-
beita sér að þeim stöðum þar sem valdaójafnvægi
er mikið vegna tekjumunar, aldursmunar eða ólíks
uppruna, stöðu eða valds. Hvað varðar forvarnir
telja flokksmenn að mikilvægt sé að taka umræðu
um ofbeldi, eitruð samskipti og valdamisnotkun
fyrir í skólum í auknum mæli.
Píratar
Aðstöðumál: Það er auðvitað hálfgerð
þjóðarskömm að við getum ekki haldið landsleiki
með sóma. Hvort uppbyggingin hefjist á næsta
kjörtímabili ræðst af samsetningu ríkisstjórnar-
innar. Síðustu ríkisstjórnir hafa að minnsta kosti
ekki staðið sig í stykkinu. Á sama tíma verður
einnig að huga að aðstöðu annarra íþrótta líka. Þar
verða stjórnvöld að gæta jafnræðis og setja skýra
og forgangsraðaða áætlun um uppbyggingu í mál-
efnum íþrótta á Íslandi.
Ofbeldismál: Íþróttahreyfingin er nánast með öll
börn þjóðarinnar í höndunum og fær til sín mikið
opinbert fé. Það þarf að leggjast rækilega yfir það
hvort það fé sé ekki örugglega að skila sér í heil-
brigðu umhverfi og góðum fyrirmyndum. Við sem
samfélag eigum að gera þá kröfu. Þess vegna hafa
Píratar sett jafnrétti í íþróttum rækilega á dagskrá
innan borgarkerfisins. Við þurfum aukna fræðslu,
forvarnir og samtal – þar sem íþróttasamfélagið
og íþróttafréttamenn eru síst undanskilin. Svo
þurfa fulltrúar KSÍ að hætta að rægja þolendur í
fjölmiðlum.
Miðflokkurinn
Aðstöðumál: Það er raunverulega raun-
hæft að ráðast í slíkar framkvæmdir og á stefnu-
skrá Miðflokksins. Miðflokkurinn styður hugmynd-
ir ÍSÍ og sérsambanda um að byggja yfirbyggðan
fjölnota þjóðarleikvang í Laugardal og byggingu
fjölnota íþróttahallar fyrir handbolta, körfubolta,
fimleika, frjálsar, og fleiri íþróttagreinar. Einnig þarf
að byggja veglegan frjálsíþróttavöll. Það er hneisa
að við Íslendingar getum ekki boðið okkar fremsta
íþróttafólki, aðstandendum og stuðningsaðilum
upp á íþróttaaðstöðu sem uppfyllir kröfur alþjóð-
legra sérsambanda.
Ofbeldismál: Miðflokkurinn hafnar öllu ofbeldi.
Samfélagið allt þarf að taka höndum saman
til að vinna bug á því. Íþróttahreyfingunni og
öðrum þeim félagasamtökum, sem bjóða upp á
þjónustu fyrir börn og unglinga í tómstundastarfi
ásamt öðru starfi, verði boðið upp á leiðbeiningar,
kennslu og almenna fræðslu um heilbrigð mannleg
samskipti og gjörðir. Ríkið komi þar vel að málum,
því við erum öll í þessu saman.