Fréttablaðið - 11.09.2021, Page 18

Fréttablaðið - 11.09.2021, Page 18
18 Íþróttir 11. september 2021 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 11. september 2021 LAUGARDAGUR 581 1281 Í tilefni þess að tvær vikur eru til kosninga sendi Frétta- blaðið spurningalista á stjórnmálaflokkana níu sem mælast með nægt fylgi til að koma inn þingmanni í kom- andi kosningum, um fram- tíðaráform í íþróttamálum til næstu ára. Lögð var áhersla á atriði sem hafa verið í brennidepli í íþróttalífinu undanfarið, næstu skref í aðstöðu- málum og hvernig hægt væri að koma í veg fyrir ofbeldi innan íþróttahreyfingarinnar. Þá má lesa um stefnu flokkanna hvað varðar afrekssjóði á vef Fréttablaðsins. ■ Nánar á frettabladid.is Áherslur flokka í íþróttamálum Umræða um afrekssjóð náði ekki í gegn fyrir lok þingstarfa í sumar. Framsóknarflokkurinn Aðstöðumál: Undirbúningur að byggingu þjóðarleikvanga hófst á þessu kjörtímabili undir stjórn Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra. Þeir verða fyrir allar íþróttir hvort sem það er knattspyrna, inni- íþróttir eða frjálsar. Framsókn stefnir á að ljúka uppbyggingu á nýjum þjóðarleikvöngum á næsta kjörtímabili. Að öll óbreyttu, með Framsókn í ríkis- stjórn, er það raunhæft markmið. Ofbeldismál: Lilja Alfreðsdóttir bjó til stöðu sam- skiptaráðgjafa vegna áreitnimála innan íþrótta- hreyfingarinnar á þessu kjörtímabili. Forvarnir og fræðsla þurfa ávallt að sæta frekari endurskoðun og eflingar með tímanum, en hún hefst almennt í skólunum. Lilja hefur einnig unnið í átt að slíkri endurskoðun og eflingu. Framsókn vill halda því góða starfi áfram og sjá til þess að fræðsla barna í skólum og innan íþróttahreyfingarinnar sé eins góð og mögulegt er. Sjálfstæðisflokkurinn Aðstöðumál: Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt áherslu á byggingu nýs þjóðarleik- vangs í Laugardalnum. Til að hægt sé að hrinda verkefninu í framkvæmd verða borgaryfir- völd að koma að málinu. Það eru allar forsendur til að ráðast í framkvæmdir á komandi kjörtíma- bili. Ofbeldismál: Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á traust, trúnað, gagnkvæma virðingu, uppbyggileg samskipti og jafnræði á öllum sviðum samfélags- ins. Líkt og allir aðrir verður íþróttahreyfingin að vinna skipulega og opið gegn hvers konar ofbeldi. Forysta íþróttahreyfingarinnar verður að tryggja að starfsfólk og sjálfboðaliðar á vegum hennar fái fræðslu um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreitni. Ríki og sveitarfélög þurfa að vinna náið og skipulega með frjálsum félagasamtökum í baráttu gegn ofbeldi, ekki síst í gegnum menntakerfið. Vinstri græn Aðstöðumál: Það á að stefna að fram- kvæmdum á þjóðarleikvangi sem fyrst. Ríkis- stjórnin gaf út tilkynningu þess efnis í vetur að vonir stæðu til þess á næstu fimm árum. Hins vegar þarf einnig að líta til þess að aðstaða til íþróttaiðkunar og útivistar sé sem best. Þannig hefur VG hvatt sveitarfélögin til áframhaldandi góðra verka, bæði til stuðnings við íþróttafélög eða uppbyggingar til ástundunar íþrótta. Ofbeldismál: Það er mikilvægt að unnið sé að forvörnum í öllum birtingarmyndum. Sérstaklega innan íþrótta þar sem börn og ungmenni verja miklum tíma og eiga margar fyrirmyndir. Um þetta er fjallað í aðgerðaáætlun um forvarnir gegn kyn- ferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2021–2025 sem Katrín Jakobs- dóttir lagði fram. Þar er sérstakur kafli um forvarnir í íþrótta- og æskulýðsstarfi og höfuðáhersla lögð á fræðslu. Sú fræðsla á að vera á ábyrgð stjórnenda íþróttafélaga, samkvæmt áætluninni. Ljóst er að þessum breytingum þarf að fylgja eftir af fullum krafti. Ofbeldi á ekki að líðast. Viðreisn Aðstöðumál: Ríkisstjórnin hefur kynnt háleit áform um nýjan þjóðarleikvang í knattspyrnu án þess að gera ráð fyrir fjármögnun, en lítið hefur farið fyrir hugmyndum um þjóðarhöll. Það er ljóst að við stöndum frammi fyrir mikilvægum verkefnum í innviðauppbyggingu sem nauðsynlegt er að fjármagna. Það þarf hins vegar ekki að standa í vegi fyrir því að við bregðumst við þeirri slæmu stöðu sem uppi er. Nýr fjölnota þjóðarleikvangur í Laugar- dal er vel til þess fallinn að vera unninn í einkaframkvæmd með stuðningi ríkis og borgar. Ofbeldismál: Íþróttahreyfingarnar leika lykilhlutverk í forvörnum. Kynferðislegt ofbeldi og áreitni ásamt kynbundnu ofbeldi hefur á síðustu misserum komist í hámæli og verður sífellt ljósara að um djúpstætt og víðfeðmt þjóðfélagsmein er að ræða. Viðreisn hefur lagt fram tillögu þess efnis að tekin verði upp markviss fræðsla um kynja- fræði, kynfrelsi, sjálfsákvörðunarrétt og þýðingu samþykkis í kyn- ferðislegum samskiptum. Þá verði sérstök áhersla lögð á að styrkja frjáls félagasamtök þ.m.t. íþróttafélög, fjölmiðla og stofnanir til miðl- unar fræðslu og sérstakra herferða sem beint verði að skilgreindum markhópum samfélagsins, enda mikilvægt að styðja við þá sem leggja þessum málefnum lið með mikilvægu starfi og sérþekkingu. Samfylkingin Aðstöðumál: Mikilvægt er að stærð nýs vallar endurspegli bæði alþjóðlegar kröfur en sé jafnframt í samræmi við sætanýtingu. Þá er mikilvægt að nýr þjóðarleikvangur í innanhússíþróttum sé eins sveigjanlegur og hægt er, svo hann megi nýta fyrir eins margar innan- hússíþróttir og hægt er. Fyrst þarf þó að ákveða að reisa nýtt mann- virki, hanna það, ná samningum um rekstur þess og svo má hefja framkvæmdir. Ef fólk brettir upp ermar væri hægt að ljúka mörgu af ofangreindu á næsta kjörtímabili. Ofbeldismál: Íþróttahreyfingin þarf að vinna heils hugar með jafn- rétti allra kynja að leiðarljósi og gefa sérstakan gaum að forvörnum gegn kynbundnu ofbeldi, áreitni eða ómenningu. Fræðsla og skýr skilaboð þarf til iðkenda, þjálfara og sjálfboðaliða um að þess háttar leyfist alls ekki innan raða íþróttahreyfingarinnar. Taka þarf á málum sem upp koma af festu og samkvæmt verkferlum og gera á kröfu um að slíkt verklag sé til staðar við opinberar styrkveitingar. Þarna eru landssambönd og stjórnvöld mikilvægir fræðslu- og stuðningsað- ilar. Þegar kemur að kynferðisbrotum og meðferð þeirra þarf að tryggja þolendum langtímastuðning, styttri málsmeðferðartíma og málsaðild, þegar réttað er yfir geranda. Sósíalistaflokkurinn Aðstöðumál: Sósíalistaflokkurinn hefur ekki tekið aðstöðumál fyrir en leggur áherslu á að slíkar framkvæmdir fái réttláta afgreiðslu. Ofbeldismál: Sósíalistaflokkur Íslands hefur á stefnuskrá sinni að sakamál og dómsmál, sér í lagi kynferðisbrotamál, verði sett í gagn- gera endurskoðun svo réttarvörslukerfið verði þolendavænna á allan máta. Einnig er mælst til að sett verði á laggirnar eftirlit sem rannsaki eftir ábendingum eða eigin frumkvæði vinnustaði, skóla og opinbera staði og hafi vald til að bregðast við, þar sem sýnt er að ofbeldi og áreitni grasserar, fjarlægja ofbeldismenn, svipta staði starfsleyfi og beita öðrum leiðum til að tryggja starfsfólki, nemum og gestum öryggi. Eftirlitinu ber að ein- beita sér að þeim stöðum þar sem valdaójafnvægi er mikið vegna tekjumunar, aldursmunar eða ólíks uppruna, stöðu eða valds. Hvað varðar forvarnir telja flokksmenn að mikilvægt sé að taka umræðu um ofbeldi, eitruð samskipti og valdamisnotkun fyrir í skólum í auknum mæli. Píratar Aðstöðumál: Það er auðvitað hálfgerð þjóðarskömm að við getum ekki haldið landsleiki með sóma. Hvort uppbyggingin hefjist á næsta kjörtímabili ræðst af samsetningu ríkisstjórnar- innar. Síðustu ríkisstjórnir hafa að minnsta kosti ekki staðið sig í stykkinu. Á sama tíma verður einnig að huga að aðstöðu annarra íþrótta líka. Þar verða stjórnvöld að gæta jafnræðis og setja skýra og forgangsraðaða áætlun um uppbyggingu í mál- efnum íþrótta á Íslandi. Ofbeldismál: Íþróttahreyfingin er nánast með öll börn þjóðarinnar í höndunum og fær til sín mikið opinbert fé. Það þarf að leggjast rækilega yfir það hvort það fé sé ekki örugglega að skila sér í heil- brigðu umhverfi og góðum fyrirmyndum. Við sem samfélag eigum að gera þá kröfu. Þess vegna hafa Píratar sett jafnrétti í íþróttum rækilega á dagskrá innan borgarkerfisins. Við þurfum aukna fræðslu, forvarnir og samtal – þar sem íþróttasamfélagið og íþróttafréttamenn eru síst undanskilin. Svo þurfa fulltrúar KSÍ að hætta að rægja þolendur í fjölmiðlum. Miðflokkurinn Aðstöðumál: Það er raunverulega raun- hæft að ráðast í slíkar framkvæmdir og á stefnu- skrá Miðflokksins. Miðflokkurinn styður hugmynd- ir ÍSÍ og sérsambanda um að byggja yfirbyggðan fjölnota þjóðarleikvang í Laugardal og byggingu fjölnota íþróttahallar fyrir handbolta, körfubolta, fimleika, frjálsar, og fleiri íþróttagreinar. Einnig þarf að byggja veglegan frjálsíþróttavöll. Það er hneisa að við Íslendingar getum ekki boðið okkar fremsta íþróttafólki, aðstandendum og stuðningsaðilum upp á íþróttaaðstöðu sem uppfyllir kröfur alþjóð- legra sérsambanda. Ofbeldismál: Miðflokkurinn hafnar öllu ofbeldi. Samfélagið allt þarf að taka höndum saman til að vinna bug á því. Íþróttahreyfingunni og öðrum þeim félagasamtökum, sem bjóða upp á þjónustu fyrir börn og unglinga í tómstundastarfi ásamt öðru starfi, verði boðið upp á leiðbeiningar, kennslu og almenna fræðslu um heilbrigð mannleg samskipti og gjörðir. Ríkið komi þar vel að málum, því við erum öll í þessu saman.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.