Fréttablaðið - 11.09.2021, Page 34

Fréttablaðið - 11.09.2021, Page 34
Sjöfn Þórðardóttir sjofn @frettabladid.is Haustið gleður á marga vegu, fallegir haustlitir taka á sig mynd í náttúrunni og það er ákveðin kyrrð sem fylgir þessari árstíð. Þá er upplagt að skapa róman- tíska stund með ljúffengum haustrétti og kertaljósi. Berglind Guðmundsdóttir, lífs- kúnstner, eigandi vefsíðunnar Gulur, rauður, grænn og salt, bókaútgefandi og þáttastjórnandi hjá Dagmálum á mbl.is, kann svo sannarlega að njóta góðs matar og fanga árstíðabundna stemningu um leið. Hún hefur líka gert sjón- varpsþætti þar sem matargerð og að kunna að njóta er í forgrunni. „Ég gerði nýlega fjóra stórkost- lega þætti um hina einstöku Sikil- ey og fólkið sem þar býr en þeir eru sýndir í Sjónvarpi Símans. Ég mæli svo mikið með að horfa á þá því þeir endurspegla hæglætislíf Sikileyinga og eru svo góðir fyrir hjartað,“ segir Berglind sem leggur mikið upp úr því að við kunnum að njóta. Þurfti að velja á milli tveggja rétta Berglind á sína uppáhalds haust- rétti og við fengum hana til að deila með lesendum einum af sínum uppáhalds. „Haustréttirnir sem ég held upp á eru reyndar margir, en að lokum stóð valið á milli tveggja rétta; ítölsku kjötsúpunnar og guðdóm- legs grænmetislasagna. Úr varð að ég valdi grænmetislasagna og ég veit að hér verður enginn svikinn.“ Var grænmetisæta á sínum yngri árum Að baki mörgum réttum býr saga og þessi réttur er einn þeirra. „Ég var grænmetisæta í nokkur ár, á mínum yngri árum, eða þar til ég datt í skál af buffalo-vængjum með gráðaostasósu á Hard Rock Café, þá rétt rúmlega tvítug. Þrátt fyrir að vera ekki grænmetisæta í dag elska ég góða vegan- og græn- metisrétti. Það er eitthvað við mat í fallegum litum. Þessi réttur er kannski ekki sá fljótlegasti, en þvílík dásemd. Hér smellur allt saman og punkturinn yfir i-ið er heimagert pestó, en það jafnast ekkert á við pestóið sem maður gerir sjálfur.“ Haustið kallar á þyngri mat Berglind segir að matargerðin breytist mikið hjá sér á haustin og hún fari þá í allt annan gír. „Ég fer meira í „comfort food“ eins og lambaskanka og kartöflu- Grænmetislasagna sem engan svíkur Berglind er mik- ill ástríðukokkur og lífskúnstner sem leggur mikið upp úr því að við eigum að njóta matarins og gera það af ást. VALLI/ FRÉTTABLAÐIÐ Grænmetislasagna Berglindar er ómótstæðilega girnilegt og hún lofar að enginn verði svikinn af þessum rétti. mús, kjötbollur, rótargrænmeti og súpur. Já, líklega borða ég aðeins þyngri mat, ef svo má kalla, þegar haustið gengur í garð. En þetta fer að sjálfsögðu eftir því hvort haustið er ljúft eða haustlægðirnar skelli á okkur af fullum krafti. Verra veður kallar á „þyngri“ mat.“ Berglind leggur líka mikla áherslu á að við njótum matarins og fáum ekki samviskubit yfir því sem við borðum. „Mig langar að minnast á að heilbrigði er ekki bara að borða hollan mat heldur einnig að borða hann með réttu hugarfari. Að borða og njóta hvers bita, í stað þess að borða kannski eitthvað óhollt og refsa sér með ljótum hugsunum. Tölum fallega við okkur, leyfum okkur alls konar og gerum það af ást,“ segir Berglind og brosir sínu fallega og einlæga brosi. Girnilegt grænmetislasagna að hætti Berglindar Ólífuolía Smjör 3 stk. laukar, skornir í þunnar sneiðar 1 msk. púðursykur 1 msk. timían + 1 tsk. 3 stk. kúrbítur (zucchini), skorinn í þunnar sneiðar langsum 6 stk. plómutómatar, skornir langsum Lasagnaplötur Spínat 1 poki rifinn mozzarellaostur 1 stór dós kotasæla, vökvi lítillega síaður frá og hrært út í 1-2 msk. rjómaost (ef vill) ½ bolli rifinn parmesanostur Fínrifinn börkur af einni sítrónu ½ búnt söxuð steinselja 3 msk. smjör 1½ dl brauðmylsna, mæli með Panko 1 msk. dijonsinnep 8 msk. ólífuolía Pestó (má kaupa tilbúið) 50 g basil, stilkar fjarlægðir 2 hvítlauksrif 3 msk. ólífuolía 3 msk. furuhnetur 3 msk. parmesanostur Allt sett í blandara og blandað vel saman. Látið tvær matskeiðar af olíu og eina matskeið af smjöri á stóra pönnu og hitið við lágan hita þar til smjörið hefur bráðnað. Bætið þá út í lauk, púðursykri og einni mat- skeið af timían og hitið á pönnunni í 20 mínútur eða þar til laukurinn er kominn með karmelluáferð. Hrærið reglulega í lauknum. Hitið ofninn á 150°C. Blandið saman í stórri skál zuccini ásamt fjórum matskeiðum af olíu og saltið. Raðið á bökunarplötu (gæti þurft tvær) og eldið í 20 mínútur eða þar til það er orðið mjúkt. Aukið þá hitann í 200°C og eldið í um 10 mínútur eða þar til zucch- iniið er orðið gyllt. Blandið kotasælu, parmesan, sítrónuberki, steinselju (nema 1 msk.) saman í skál og saltið og piprið. Hitið pönnu og bræðið tvær matskeiðar af smjöri við meðal- hita. Bætið einni teskeið af timían, einni matskeið af dijonsinnepi og einni matskeið af steinselju. Takið af hitanum og hrærið kröftuglega. Bætið brauðraspinu út í og blandið vel saman. Takið til hliðar. Raðið nú hráefnunum saman í ofnfast mót: ■ helmingur af lauknum í botninn ■ helmingur af zucchinisneiðum ■ helmingur af tómatsneiðum ■ látið pastaplötur yfir allt ■ pestó yfir pastaplöturnar ■ helmingur af kotasælublöndunni ■ spínat ■ helmingur af mozzarellaosti Endurtakið einu sinni enn í sömu röð og látið síðan brauðmylsnu yfir allt. Hitið í 175°C heitum ofni í 20 mínútur með álpappír yfir forminu. Takið hann síðan af og eldið í aðrar 40 mínútur. Berið fram á fallegan hátt og njótið. ■ Hægt er að fylgjast matargerð Berglindar á vefsíðunni hennar grgs.is og á Instagram-reikningn- um @gulurraudurgraennogsalt 4 kynningarblað A L LT 11. september 2021 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.