Fréttablaðið - 11.09.2021, Page 49
Ískraft er rafiðnaðarheildsala og leiðandi á því sviði á íslenskum markaði. Fyrirtækið hefur starfað síðan 1975. Ískraft rekur 4 starfsstöðvar, í Kópavogi, Akureyri, Selfossi og Reykjanesbæ.
.
Sótt er um á ráðningarvef okkar á www.iskraft.is/um-okkur/
ískraft/laus-storf/ Nánari upplýsingar veitir Brynjar Stefánsson,
framkvæmdastjóri Ískraft, brynjar@iskraft.is Farið er með
allar umsóknir sem trúnaðarmál. Hvetjum alla áhugasama til
að sækja um óháð kyni. Umsóknarfrestur til 26. september 2021.
Sviðsstjóri iðnstýringa-
og nemabúnaðar
Ískraft leitar að öflugum leiðtoga í starf sviðsstjóra iðnstýringa- og nemabúnaðar.
Sviðsstjóri heyrir beint undir framkvæmdastjóra og ber ábyrgð á þjónustu, sölu
og faglegri ráðgjöf til viðskiptavina. Hann ber einnig ábyrgð á innflutningi og
birgðastýringu og samskiptum við birgja.
Um er að ræða fjölbreytt verkefni í skemmtilegu starfsumhverfi þar sem reynir á
frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og gott skipulag. Lögð er rík áhersla á jákvæð
samskipti og samvinnu ásamt því að viðkomandi falli vel að góðri liðsheild
fyrirtækisins. Eftirsóknarvert er að fá til liðs við okkur þá sem eru tilbúnir að leggja
sitt af mörkum við að veita framúrskarandi þjónustu til okkar viðskiptavina og hafa
jákvætt hugarfar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Sviðstjóri ber ábyrgð á sölu, ráðgjöf og innflutningi
á iðnstýri- og nemabúnaði
• Samskipti við erlenda birgja
• Tilboðsgerð
• Innflutningur og birgðastýring
• Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
• Verkfræðingur/tæknifræðingur/iðnfræðingur
eða önnur menntun sem nýtist í starfi
• Góð þekking á iðnstýringum og nemabúnaði skilyrði
• Reynsla af sölu, ráðgjöf og vörustýringu
• Góð almenn tölvukunnátta
• Forriturnarkunnátta á PLC/HMI og skjástýrikerfum er kostur
• Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
• Stundvísi, jákvæðni og heiðarleiki í starfi
• Góð íslensku og ensku kunnátta
Framkvæmdastjóri
Eignastýringar og miðlunar
Eignastýring og miðlun býður upp á heildstæða
fjárfestingarþjónustu, m.a. eignastýringu, einkabanka-
þjónustu, miðlun verðbréfa, gjaldeyris og afleiðna.
Stefna okkar er að veita faglega og trausta þjónustu
með sjónarmið um ábyrgar fjárfestingar að leiðarljósi.
Nánari upplýsingar um starfið má finna á vinnvinn.is
Umsjón með ráðningarferlinu hafa Hilmar G. Hjaltason,
hilmar@vinnvinn.is og Auður Bjarnadóttir,
audur@vinnvinn.is. Umsóknir óskast útfylltar
á vinnvinn.is. Umsóknarfrestur er til og með
18. september.
Landsbankinn leitar að öflugum og framsýnum einstaklingi sem vill ganga til liðs við kraftmikinn hóp starfsfólks
bankans. Við viljum liðsfélaga sem hefur brennandi áhuga á að móta nýja tíma í fjármálaþjónustu fyrir fyrirtæki og
einstaklinga, þar sem ánægðir viðskiptavinir, stöðug framför og árangur skipta máli.
LANDSBANKINN. IS