Fréttablaðið - 11.09.2021, Blaðsíða 73
Helga Sigurbjörnsdóttir
útskrifaðist sem rafvirki frá
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra árið 2013 fyrst allra
stelpna frá þeim skóla. Hún
starfar núna hjá RARIK og
segir starfið fjölbreytt og
mjög skemmtilegt.
Helga segist alla tíð hafa stefnt á
verknám en foreldrar hennar eru
báðir iðnmenntaðir. Pabbi hennar
er bifvélavirki og mamma hennar
hárgreiðslumeistari. Hún ákvað
að prófa rafvirkjun og heillaðist af
náminu.
„Ég vissi bara að ég átti aldrei að
fara í smíði því ég kunni ekki að
nota hamar og pabbi er að kenna
í vélstjóranáminu svo mig langaði
ekki að fara þangað,“ segir Helga
og hlær.
Að námi loknu byrjaði Helga að
vinna hjá Tengli og vann þar til
ársins 2016 þegar hún flutti sig yfir
í RARIK.
„Þetta eru gjörólík störf. Hjá
Tengli var ég að vinna við lág-
spennu en hitt er allt meira og
minna háspenna. Lágspennan er
meira að leggja fyrir ljósum innan-
húss og þannig. Háspennan er til
dæmis að leggja strengi í jörð, setja
upp spennistöðvar og fara upp í
staura og línuvinnu. Það er það
sem ég er að gera núna,“ segir hún.
Helga segir vinnuna vera það
skemmtilegasta sem hún hefur
gert og hún hlakkar til að fara í
vinnuna alla daga.
„Ég finn ekkert við vinnuna
sem mér finnst leiðinlegt. Maður
er kannski að gera sama hlutinn
aftur og aftur en þú ert aldrei á
sama stað. Ég hef verið að vinna
um allt land, mest á mínu svæði
en hef verið í úthaldi á Austur-
landi og Norðurlandi eystra.
Maður ferðast mjög mikið í
vinnunni,“ segir hún.
Vel launað starf
Helga er vön því að vera eina
konan í vinnunni en segir að þeim
sé þó eitthvað að fjölga.
„Ég er eina konan í vinnuflokki
á Norðurlandi vestra, en við erum
orðnar fjórar í vinnuflokknum
um landið. Það er ein á Vestur-
landi og tvær á Suðurlandi. Það
hafa líka verið nokkrar sumar-
stelpur hér og þar um landið en ég
var sú fyrsta sem var fastráðin,“
segir hún.
Helga var fyrsta stelpan sem
útskrifaðist sem rafvirki frá
FNV og hún mælir hiklaust með
náminu.
„Þetta er svo góður grunnur
fyrir svo margt. Þegar þú ert
komin með sveinspróf sem
rafvirki þá opnast svo margir
möguleikar á öðru námi, eins og
tæknifræði, iðntækni eða raf-
magnsverkfræði. Þú þarft ekkert
að vera rafvirki og vera að skipta
um ljósaperu alla daga. Þú getur
alveg verið rafvirki sem fer svo
í áframhaldandi nám og fer að
teikna upp raflagnir í húsin. Þetta
býður upp á svo marga möguleika.
Svo er þetta bara mjög vel launað
starf, að vera rafvirki,“ segir hún.
„Það er líka nóg af störfum í
boði. Þetta er ekki eitthvað sem
er að fara að deyja út eins og til
dæmis margar færibandavinnur.
Þetta er eitthvað sem við þurfum
alltaf á að halda og það er bara að
aukast ef eitthvað er.“ ■
Hlakkar til að mæta í vinnuna alla daga
Helga segist alla
tíð hafa stefnt
á iðnnám og
sér ekki eftir að
hafa valið raf-
virkjun.
MYND/DAVÍÐ MÁR
SIGURÐSSON
Þetta býður upp á
svo marga mögu-
leika. Svo er þetta bara
mjög vel launað starf, að
vera rafvirki.
Helga Sigurbjörnsdóttir
J. Snæfríður Einarsdóttir
útskrifaðist sem vélfræð-
ingur frá Verkmenntaskól-
anum á Akureyri árið 2003.
Síðan þá hefur hún unnið
við fjölbreytt störf í faginu
sem hún segir öll hafa verið
skemmtileg.
Snæfríður eins og hún er kölluð fór
ung á sjó með frænda sínum og þá
kviknaði áhuginn.
„Ég var 15 að verða 16 ára og
hugsaði, þetta er eitthvað. Það er
geggjað að vera á sjónum. Svo ég
ákvað að það væri annað hvort
að hrökkva eða stökkva og prufa
námið. Ég varð ekki fyrir von-
brigðum. Námið kom mér á óvart.
Það var virkilega skemmtilegt og
gagnlegt,“ segir hún og bætir við að
það hafi ekki verið margar stelpur
í náminu þegar hún byrjaði árið
1996, tvær til þrjár á önn en oft var
hún eina stelpan.
Starf vélfræðinga einskorðast
ekki bara við sjóinn en Snæfríður
hefur unnið við fagið bæði á sjó
og landi. Henni líkaði mjög vel að
vinna úti á sjó en ákvað að leita að
vinnu á landi eftir að hún eignaðist
börn.
„Með skólanum byrjaði ég að
vinna sem háseti og vélstjóri á sjó.
Ég tók eitt ár í frí í miðju námi og
var þá að vinna sem deildarstjóri
rekstrar hjá Ratsjárstofnun uppi á
Gunnólfsvíkurfjalli. Eftir skólann
var ég á samningi hjá Samherja
og kláraði vélvirkjunina. Seinna
vann ég hjá Vinnueftirliti ríkisins
á Akureyri sem eftirlitsmaður í
vinnuvéladeildinni. Eftir það vann
ég svo sem stöðvarvörður í Laxár-
virkjun. Þetta eru fjölbreytt og ólík
störf,“ segir hún.
Það eru í raun vélstjórar úti um
allt. Þeir hafa mjög víða þekkingu.
Þeir vinna mikið við fyrirbyggj-
andi viðhald, geta verið í smiðjum
að vinna við smíði og hönnun.
Þeir eru í framleiðslufyrirtækjum,
frystihúsum, í lyftubransanum að
þjónusta til dæmis fólkslyftur og
svo auðvitað á sjónum að sjá um
vélbúnaðinn þar.“
Vélstjórar vinna ólík störf
Snæfríður segir störf vélstjóra geta
verið ólík, þau geta verið allt frá því
að framleiða vélhluta í fiskvinnslu-
vélar, setja upp kælikerfi, vera með
búrekstur, en vélstjórn er frábært
nám fyrir bændur sem þurfa að
geta bjargað sér, vinna í álverum,
virkjunum, mjólkurframleiðslu,
kjöt- og fiskvinnslum.
„Þetta eru fjölbreytt störf og
hægt að sérhæfa sig á ýmsum
sviðum. Möguleikarnir er mjög
margir. Það myndi ekkert virka
ef það væru ekki til vélstjórar.
Ekkert af þeim störfum sem ég
hef unnið sem vélfræðingur hefur
mér fundist leiðinlegt. Þetta fer í
reynslubankann og ég myndi tví-
mælalaust mæla með þessu námi
fyrir alla,“ segir hún.
Snæfríður settist aftur á skóla-
bekk árið 2011 og lærði sálfræði
í Háskólanum á Akureyri og fór í
framhaldi af því í nám í stjórnun og
stefnumótun í Reykjavík sem hún
lauk árið 2016. Í dag starfar hún sem
ráðgjafi hjá HSE Consulting.
„Ég er að fara inn í fyrirtæki og
veiti ráðgjöf og aðstoð varðandi
stefnumótun, sjálfbærni, gæða-,
öryggis- og umhverfismál og við-
hald vottana, til dæmis ISO9001,
14001 og 45001. Reynsla mín af
störfum sem vélfræðingur hefur
nýst mér mjög vel í núverandi starfi.
Þegar maður er að koma inn í fyrir-
tæki er maður illa svikinn ef það er
ekki einn vélstjóri að vinna þar.“ ■
Ekkert myndi virka án vélstjóra
Snæfríður hefur unnið fjölbreytt störf á landi og sjó en sinnir núna ráðgjöf. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Þegar maður er að
koma inn í fyrir-
tæki er maður illa svik-
inn ef það er ekki einn
vélstjóri að vinna þar.
J. Snæfríður Einarsdóttir
kynningarblað 5LAUGARDAGUR 11. september 2021 STELPUR OG VERKNÁM