Fréttablaðið - 11.09.2021, Blaðsíða 79
Fyrsta með-
ferð er að
meðhöndla
augun með
heitum OcuSci augn-
maska og hreinsa eftir á með
bakteríudrepandi blautklútum eða
froðu frá OCuSOFT.
Augnsjúkdóma er mikilvægt
að meðhöndla rétt. Augn-
maski og hreinsiklútar gera
gæfumuninn gegn hvarma-
bólgu og gervitár virka vel
gegn augnþurrki. Rann-
sóknir sýna að augnvítamín
geta hægt mjög á augn-
botnahrörnun.
Meðferð með OcuSci augnmaska
og OCuSOFT froðu/hreinsiklútum
er áhrifarík við hvarmabólgu, VIS-
MED gervitár/-hlaup virka vel við
augnþurrki og ULTRA MACULAR™
augnvítamín byggir á nýjustu NIH
(National Institute of Health, USA)
rannsókn á þessu sviði, AREDS 2,
sem sýndi fram á að samsetning
andoxunarefna og fjölvítamína í
ULTRA MACULAR™ minnki líkur
um allt að 25% á að augnbotna-
hrörnun þróist yfir á lokastig.
Hvarmabólga
Hvarmabólga er líklega algengasti
augnsjúkdómurinn á Íslandi.
Erfitt er að meta hlutfall fólks með
hvarmabólgu, þar sem sjúkdómur-
inn veldur oft vægum einkennum.
Á hinn bóginn getur hann valdið
einkennum sem eru afar óþægileg
og hafa mikil áhrif á daglegt líf.
Hildur Sigursteinsdóttir,
markaðsstjóri heildverslunarinnar
MAGNUS ehf., segir lítið vitað
um ástæður sjúkdómsins, en
að talið sé að um ofnæmi fyrir
bakteríum sem við erum öll með á
hvörmunum sé að ræða. Hvarma-
bólga getur meðal annars valdið
augnloksþrymlum (chalazion)
sem í börnum kemur oft fram sem
vogris (stye). Hvort tveggja eru
stíflaðir fitukirtlar sem blása út og
valda oft miklum óþægindum.
„Meðferð við hvarmabólgu er
oftast ekki flókin en hún krefst
töluverðrar natni og reglusemi.
Fyrsta meðferð og oft sú sem
ber mestan árangur er að með-
höndla augun með heitum OcuSci
augnmaska og hreinsa eftir á með
bakteríudrepandi blaut klútum
eða froðu frá OCuSOFT. Við slæmri
hvarmabólgu má nota OUST
Demodex froðu/blautklúta, sem
innihalda terunnaolíu, en sé hún
ekki eins alvarleg er mælt með
Lid Scrub PLUS blautklútum eða
Platinum froðu frá OCuSOFT. Beita
þarf meðferðinni að minnsta kosti
einu sinni á dag,“ segir Hildur.
„Slík meðferð er yfirleitt áhrifa-
rík sé henni beitt rétt. En það þarf
þolinmæði því árangurinn kemur
ekki fyrr en eftir tvær til þrjár
vikur.“
Einkenni hvarmabólgu:
n Stíflaðir fitukirtlar í augnlokum
n Sviði, „súrnar í augum“
n Flasa í augnhárum og stírur
n Óskýr sjón
n Aðskotahlutartilfinning, pirr-
ingur
n Smá kláði
n Roði í hvörmum og augum
n Óþægindi í augum eftir tölvu-
vinnu, sjónvarpsáhorf eða
lestur
n Bjúgur á hvörmum
Oft er erfitt að greina
á milli einkenna
hvarmabólgu
og þurra augna en sviði er meira
áberandi í hvarmabólgu en
aðskotahlutartilfinning í þurrum
augum. Hildur segir að það beri
að leggja áherslu á að þurr augu
og hvarmabólga fylgjast oft að og
þarf því oft að meðhöndla hvort
tveggja.
„Hvarmabólga er yfirleitt fremur
góðkynja sjúkdómur en getur þó
í undantekningartilvikum valdið
augnskaða og jafnvel varanlegu
sjóntapi. Í þeim tilvikum verður
erting frá hvörmum svo mikil á
auganu að slímhimna augans vex
inn á hornhimnu, eða að horn-
himna augans þynnist og skemm-
ist,“ útskýrir hún.
„Þar sem ofnæmi kemur inn í til-
urð sjúkdómsins á einhverju stigi,
sennilega gegn bakteríum sem
við erum öll með á hvörmunum,
er gagnslítið að bera sýklalyf á þá.
Þessar bakteríur eru alls staðar í
umhverfi okkar og setjast aftur á
hvarmana þegar notkun sýklalyfs-
ins lýkur. Flestar gerðir hvarma-
bólgu eru því ekki vegna sýkingar
og hvarmabólga er því jafnan ekki
smitandi.“
Sum lyf geta stuðlað að hvarma-
bólgu, svo sem sum krabbameins-
lyf og húðþrymlalyfið Roaccutane.
Hvarmabólga er einnig afar algeng
hjá fólki með ýmsa húðsjúkdóma,
svo sem flösuexem og rósroða.
Þurr augu algengt vandamál
Þurr augu eru afar algengt
vandamál. Hildur segir líklegt að
um 15.000 Íslendingar þjáist af
þurrum augum.
„Þurr augu eru sjúkdómur þar
sem augun framleiða ekki nægi-
lega mikið af tárum eða tárin
eru ekki nægilega vel
samsett og gufa upp
of fljótt. Algengasta
einkenni þurra augna
er aðskotahlutartil-
finning.
Það vekur sérstaka athygli að eitt
megineinkenni þurra augna er
aukið táraflæði og lýsir fólk því oft
svo að þegar það fer út í íslenska
rokið fari tárin að renna niður
vangana. Þessi tár myndast vegna
þess að augað verður auðertanlegt
og viðkvæmt fyrir til dæmis roki
og hita. Þessi tár myndast í stóru
tárakirtlunum fyrir ofan augun og
innihalda meira vatn en venjuleg
tár,“ segir Hildur.
Hún útskýrir að í mörgum tilvik-
um sé um að ræða öldrunaráhrif
tárakirtlanna þó að yngra fólk geti
líka upplifað þurr augu. Talið er að
um 3/4 fólks 65 ára og eldra fái þurr
augu. Þau eru algengari hjá konum,
sérstaklega hjá barnshafandi
konum eða eftir tíðahvörf. Líklega
eru um 3.000 Íslendingar með þurr
augu í tengslum við svokallaðan
Sjögren’s sjúkdóm og/eða gigtar-
sjúkdóma og aðra sjálfsofnæmis-
sjúkdóma og 90% þeirra eru konur.
Fólk með ofnæmi er útsettara fyrir
því að fá einkenni þurra augna auk
þess sem ýmislegt utanaðkomandi
getur valdið eða viðhaldið þurrum
augum, til dæmis ýmis lyf, snerti-
linsur og tölvunotkun að sögn
Hildar.
Oftast er ekki hægt að lækna
þurr augu en unnt er að með-
höndla einkennin. Þekking og
fjöldi meðferðarleiða hefur aukist.
Yfirleitt er byrjað á að nota gervitár
og gervitárahlaup eins og VISMED
sem fást án lyfseðils í apótekum.
VISMED gervitár og -hlaup inni-
halda engin rotvarnarefni og eru
til í dropaglasi og einnig í litlum
skammtahylkjum sem má loka á
milli notkunar. Gervitárahlaup er
fyrst og fremst notað fyrir svefn,
en það dugir lengur en venjuleg
gervitár. Í VISMED vörunum er
hýalúron sýra sem meðal annars
eykur endingu þeirra í augunum.
Það er talið að sumar fitusýrur, þar
á meðal Omega-3 til inntöku, geti
dregið úr einkennum þurra augna.
Hvarmabólgumeðferð
1. Setjið OcuSci augnmaskann í
örbylgjuofn á hæstu stillingu í
20-30 sekúndur.
2. Leggið augnmaskann á lokuð
augun í 3-5 mínútur á dag.
3. Drepa þarf bakteríurnar að
þessu loknu, t.d. með því að
þrífa hvarmana með OcuSoft
klútum eða OcuSoft froðu.
Helstu einkenni þurra augna:
n Táraflæði
n Óskýr sjón
n Aðskotahlutartilfinning, pirr-
ingur
n Smá kláði
n Sviði
n Óþægindi í augum eftir tölvu-
vinnu, sjónvarpsáhorf eða lestur
n Roði í augum
Vörn gegn augnbotnahrörnun
ULTRA MACULAR™ augnvíta-
mínið hægir á framgangi augn-
botnahrörnunar og er ætlað þeim
sem hafa greinst með sjúkdóminn
og sumum sem eru í fjölskyldum
þar sem sjúkdómurinn er ætt-
gengur. ULTRA MACULAR™ er
eina augn vítamínið á markaðnum
hérlendis sem inniheldur öll nauð-
synleg fjölvítamín og steinefni sem
fólk þarf á að halda til viðbótar við
sérhannaða samsetningu þeirra
efna sem eru fyrirbyggjandi
varðandi framgöngu augnbotna-
hrörnunar.
Að sögn Hildar, er samsetning
ULTRA MACULAR™ byggð á niður-
stöðum nýjustu rannsókna á þessu
sviði sem nefnast AREDS 2.
„AREDS 2 braut blað í fyrir-
byggjandi meðferðarmöguleikum
þar sem sérstaklega hefur verið
lagt upp úr réttum hlutföllum
andoxunarefna og vítamína til
að ná sem bestum árangri,“ segir
Hildur. „Allir sem þjást af augn-
botnahrörnun ættu að íhuga að
taka inn ULTRA MACULAR™
til að fyrirbyggja frekari þróun
augnbotnahrörnunar og þar með
sjónskerðingu. Einnig er mikil-
vægt að fara í reglulegt eftirlit hjá
augnlækni samhliða töku augn-
vítamínsins.“
Aðeins þarf að taka inn tvö
hylki af ULTRA MACULAR™ á dag,
ULTRA MACULAR™ inniheldur
meðal annars lítið sink til að hlífa
meltingarveginum og aðalbláber
sem talin eru styðja við nætursjón
auk fullkominnar samsetningar
fjölvítamína og steinefna í sam-
ræmi við ráðlagða dagskammta
(RDS).
Hildur segir marga eiga erfitt
með að gera greinarmun á þeim
augn vítamínum sem í boði eru
á markaðnum í dag. „Það er
mikilvægt að hafa í huga að ULTRA
MACULAR™ augnvítamínið er
byggt á vísindalegum rannsóknum
frá hinni virtu stofnun National
Institute of Health í Bandaríkj-
unum,“ segir hún. „Aldursbundin
augnbotnahrörnun er algengasta
orsök blindu og sjónskerðingar hjá
fólki yfir sextugu á Vesturlöndum
og því skiptir miklu máli að velja
rétt þegar kemur að augnvítamín-
um. Fyrrnefnd rannsókn, AREDS 2,
sýnir einmitt fram á að sú sérstaka
samsetning andoxunarefna sem
hér um ræðir minnki líkur um allt
að 25%, á að augnbotnahrörnun
þróist yfir á lokastig.“
Vörurnar fást í öllum helstu apó-
tekum. n
Meðferð með OcuSci augnmaska
og hreinsun með bakteríudrepandi
OCuSOFT froðu eða hreinsiklútum er
yfirleitt áhrifarík við hvarmabólgu.
Hildur segir margt í boði til meðferðar við augnsjúkdómum.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Áhrifaríkar meðferðir við augnvandamálum
ALLT kynningarblað 9LAUGARDAGUR 11. september 2021