Fréttablaðið - 11.09.2021, Side 88
Flest af því sem stendur
eftir frá miðöldum eru
verk karla, en verk
kvenna, klæði og útsaum-
ur, voru forgengilegri og
varðveittust síður.
Bayeux-refillinn er eitt merkasta
listaverk miðaldanna og í brenni-
depli í erindi Reynis Tómasar
Geirssonar í Landnámssetrinu.
arnartomas@frettabladid.is
Reynir Tómas Geirsson hefur undan-
farna mánuði frætt gesti á Landnáms-
setrinu í Borgarnesi um Bayeux-refilinn,
nær þúsund ára gamalt útsaumsverk,
með leynda þræði inn í íslenska sögu og
bókmenntir. Í dag flytur hann erindið í
síðasta skipti í bili þótt hann segi koma
til greina að gera það aftur næsta vor.
„Að sauma sögurefla er skrautaðferð
frá víkingatímanum,“ segir Reynir. „Vík-
ingahöfðingjar geymdu svona mynd-
skreytt verk í skálum sínum, sennilega
af goðum og fornum köppum. Eftir
kristnitöku fóru svipuð útsaumsverk
með kristilegu myndefni inn í kirkjur,
– til dæmis átti Hóladómkirkja marga
langa og fagra refla og altarisklæði sem
höfð voru í kirkjunni.“
Saumað var með ullargarni, sem var
litað með jurtalitum, á ljósan bakgrunns-
dúk úr líni. Notuð var sérstök aðferð sem
heitir refilsaumur. Á myndverkinu sem er
geymt í Bayeux, sem er borg í Normandí
í Norðvestur Frakklandi, er sögð sagan
af því hvernig Normannar, afkomendur
víkinga, unnu England af Engilsöxum og
Dönum í mikilli orrustu við bæinn Hast-
ings á suðurströnd Englands árið 1066.
Eins konar áróðursplagg þess tíma, til að
réttlæta innrásina.
Refillinn í Bayeux er rúmlega 70
metra langur. „Björn Th. Björnsson list-
fræðingur sagði að þetta væri eitthvað
mest heillandi myndlistarverk sem til er
frá þessum tíma, og eitt af fáum verkum
sem vitað er til að konur hafi unnið
en ekki karlar,“ segir Reynir. „Karlar
reistu byggingar, hjuggu í stein, gerðu
vefnað og máluðu myndir, skrifuðu
bækur, unnu með gull og silfur. Flest
af því sem stendur eftir frá miðöldum
eru verk karla, en verk kvenna, klæði og
útsaumur, voru forgengilegri og varð-
veittust síður. En þar á meðal er þessi
einstaki refill og íslensk altarisklæði
sem voru gerð með sömu aðferð og enn
eru til frá miðöldum. Þau eru alls um
átján og þar af eru um fimmtán hér í
Þjóðminjasafninu.“ Þá bendir Reynir á
að hópur kvenna á Hvolsvelli hafi unnið
að svipuðum stranga upp úr Njálssögu.
Því verki lauk í fyrra og nú á að setja
Njálurefilinn upp til sýningar þar. Á
Blönduósi eru konur einnig að sauma
Vatnsdæla sögu með sömu aðferð.
Viðgerð og lán til Bretlands
Refillinn er meðal helstu þjóðargersema
Frakka. Fyrir nokkrum árum lofaði Mac-
ron Frakklandsforseti að refillinn skyldi
lánaður til Englands til að sýna hann á
safni í London, en ekki hefur orðið úr
því enn.
„Borgarstjóri Bayeux sagði nýlega að
refillinn væri í svo viðkvæmu ástandi
að það yrði vafasamt að f lytja hann,“
segir hann. „Ef það yrði gert þá yrði að
gera mjög vandlega við hann og Bretar
þyrftu að standa fyrir því og borga við-
gerðina. Hugmyndin er að byggja yfir
hann nýtt safn á meðan hann er í láni, ef
af verður. Hann hefur síðustu 30 árin eða
svo verið geymdur í gömlum mennta-
skóla í Bayeux sem er kannski ekki besti
staðurinn fyrir svona dýrgrip.“
Eins og áður kom fram er erindið um
refilinn í dag sennilega það síðasta í bili
en hægt er að fá miða á tix.is. n
Fræðir gesti um fagra refla
Reynir segir tímabært að refillinn fái undir sig safn sem verkinu sæmir. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Bayeux refillinn lýsir sigri Normanna í orrustunni við Hastings. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
1945 Knattspyrnumaðurinn Franz Beckenbauer fæddur.
1967 Síldarleitarskipið Árni Friðriksson kemur til lands-
ins. Það er nefnt eftir Árna Friðrikssyni (1898-1966),
sem stundaði rannsóknir á síld og þorski við Ísland.
1973 Herinn, undir forystu Augustos Pinochets her-
foringja, rænir völdum í Chile, með leynilegum
stuðningi Bandaríkjanna.
1976 Farþegaþota frá TWA, sem hafði verið rænt, hefur
viðkomu á Keflavíkurflugvelli til að taka eldsneyti.
Eftir tveggja stunda viðdvöl heldur hún frá Keflavík
til Parísar þar sem ræningjarnir gefast upp.
2001 Al-Kaída rænir fjórum farþegaþotum og flýgur á
byggingar í New York og Virginíu. 2.973 láta lífið.
Merkisatburðir
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir
síðan 1996
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Sigurður Bjarni Jónsson útfararstjóriMagnús Sævar Magnússon útfararstjóri
Guðmundur Baldvinsson útfararstjóri Jón G. Bjarnason útfararstjóri
Innilegar þakkir fyrir samúð og
vinarhug við andlát og útför ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
Guðrúnar Þórðardóttur
Miðleiti 7, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á
hjúkrunarheimilinu Grund, fyrir góða umönnun.
Gunnar Helgi Guðmundsson Ragnheiður Narfadóttir
Björn Guðmundsson Margrét Héðinsdóttir
Guðmundur Þórður Fjóla Ósland Hermannsdóttir
Guðmundsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Gunnar Ólafsson
Hvassaleiti 117,
lést á Landspítalanum í Fossvogi þann
3. september. Útförin fer fram
frá Fríkirkjunni í Reykjavík þann
17. september kl. 13.00
Elísabet Ólafsdóttir
Ari Ó. Gunnarsson
Erla Á. Gunnarsdóttir Árni Hermannsson
Elísabet, Gunnar, Auður Sandra
og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför eiginkonu, móður, ömmu,
systur og mágkonu,
Sigríðar Halldórsdóttur
Steinaseli 7.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki krabbameinsdeildar
11E á Landspítalanum fyrir einstaka alúð og umhyggju.
Gylfi Þorkelsson
Ásta Heiðrún Gylfadóttir
Emma Sigríður Sverrisdóttir
Gylfi Sverrisson
Valgerður Halldórsdóttir Helgi H. Steingrímsson
Óli Friðgeir Halldórsson María Björk Daðadóttir
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
36 Tímamót 11. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐTÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 11. september 2021 LAUGARDAGUR