Fréttablaðið - 11.09.2021, Side 108
Forkaupsréttur á gæsahúð
Gæsahúð hríslaðist um ABBA-
aðdáendur þegar fyrsta breiðskífa
sveitarinnar í 40 ár var boðuð.
„Það bara kemur ekkert annað til
greina,“ sagði ABBA-drottningin
Jóhanna Vigdís, um fyrirhuguð
kaup sín á Voyager í forsölu.
Frelsisóður Siggu Guðna
Ári eftir að Covid kom í veg fyrir
útgáfutónleika plötunnar Don’t
cry for me fylgir Sigga Guðna
henni nú úr hlaði í Bæjarbíói næsta
laugardagskvöld. Þar mun hún
einnig syngja lagið Freedom sem
gerði hana fræga með Jet Black Joe.
S03 E01
Fyrsti þáttur þriðju seríu þáttanna
Sir Arnar Gauta fór í loftið á Hring-
braut. Hann segir helstu forrétt-
indin við gerð þáttanna vera að fá
að hitta allt það skapandi fólk sem
orðið hefur á vegi hans við gerð
þeirra.
Þrjú lög og Berlín
Lagið Ég og þú er það þriðja sem
Þórdís Petra gefur út í sumar og
það síðasta áður en hún heldur til
Berlínar í þriggja ára nám, með góð
ráð frá mömmu sinni og ömmu,
söngkonunum Heru Björk og Hjör-
dísi Geirsdóttur, í veganesti.
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
n Lífið í
vikunni
05.09.21
11.09.21
Eva Björg Logadóttir var tólf
ára þegar hún byrjaði að
skrifa um ævintýri vinkvenna
sem reyna að bjarga heim-
inum frá loftslagsvánni. Höf-
undurinn ungi segir magnað
að sjá bókina Síðasta tæki-
færið á sölulista barnabóka
tveimur árum síðar.
toti@frettabladid.is
„Ég byrjaði að skrifa bókina þegar
ég var nýorðin tólf ára 2019 og fékk
þá bara innblásturinn frá því að
loftslagsbreytingarnar voru það
eina sem var verið að tala um á
samfélagsmiðlum og bara út um
allt,“ segir Eva Björg Logadóttir, fjór-
tán ára nemandi í Snælandsskóla í
Kópavogi og höfundur bókarinnar
Síðasta tækifærið.
Bókin segir frá vinkonunum
Söndru og Karen sem ferðast aftur í
tíma eftir afdrifaríkt spjall við Brag-
hildi gömlu. Þar bíða þeirra síðan
alls kyns óvæntar uppákomur í æsi-
legu kapphlaupi við tímann þegar
þær fá síðasta tækifærið til þess að
bjarga heiminum frá loftslagsbreyt-
ingunum hættulegu.
Þversögn á ögurstundu
„Þetta var bara svona saga og ég
ætlaði ekkert lengra með hana af
því að ég hef skrifað mikið af sögum
um ævina sem hafa aldrei farið neitt
lengra en að vera bara sögur á blaði
heima hjá mér, skilurðu? Ég hugsaði
aldrei út í það þannig, en mig hefur
dreymt um að vera rithöfundur
alveg síðan ég var bara kornung,“
segir Eva Björg og leggur áherslu á
að hún hafi alls ekki lagt í þennan
leiðangur með útgáfu í huga.
„Þetta er svolítið mikið og stórt
ævintýri. Ég myndi segja að þetta
væri bara svona ævintýraskáldsaga
fyrir krakka á nánast öllum aldri,“
segir Eva Björg og bætir aðspurð við
að yrkisefnið brenni mjög á hennar
kynslóð.
„Við höfum miklar áhyggjur af
þessu og þetta er erfitt. Sérstaklega
líka af því það er oft sagt að þetta sé
í okkar höndum af því að framtíðin
er okkar. Það er náttúrlega alltaf
eitthvað sem við getum gert en það
er bara svo lítið. Eins og við getum
ekki breytt því hvað búðirnar selja
eða neinu þannig,“ segir Eva Björg
áfram og víkur að þeirri þversögn
að nú á ögurstundu hafi krakkarnir
takmörkuð áhrif til þess að gera
eitthvað sem vegur þungt.
Magnað tækifæri
„Sagan varð bara alltaf lengri og
lengri og ég skrifaði alltaf meira og
meira og hún varð bara það löng
þannig að ég leyfði fjölskyldunni og
vinum að lesa hana. Þau sem fengu
að lesa bókina sögðu öll að þetta
væri virkilega góð saga og að ég ætti
kannski bara að fara eitthvað lengra
með hana.“
Eva Björg segist þá hafa horft til
þess að Guðjón Ari, bróðir hennar,
hafi fengið bók sína, Náðu árangri
– í námi og lífi, útgefna í fyrra. „Það
ýtti svolítið undir hugmyndina hjá
mér um að ég gæti kannski gefið út
bók eftir allt saman og sendi hana
á útgáfur til að sjá hvert það myndi
leiða.“
Þá segist Eva Björg vitaskuld ekki
hafa séð fyrir sér að Síðasta tæki-
færið myndi skjóta upp kollinum í
8. sæti á metsölulista Eymundsson
í barnabókaflokki, eins og raunin
varð í síðustu viku. „Mér finnst það
alveg magnað. Þetta er að ganga
bara eins og í sögu,“ segir rithöf-
undurinn ungi og hlær.“
Varst þú að gefa út bók?
Eva Björg segist aðspurð þegar hafa
fengið góð viðbrögð við bókinni frá
f leira fólki en úr hennar nánasta
hring. „Já, já. Ég hef samt ekki verið
alveg nógu dugleg að auglýsa þetta,
en síðan verður fólk oft bara gáttað
þegar það kemst að þessu: Ha? Varst
þú að gefa út bók,“ segir Eva Björg og
hlær.
„Það er gaman að fá þannig við-
brögð en síðan eru auðvitað sumir
sem eru ekki með eins góð viðbrögð.
Ég veit ekki hvort það sé af brýði-
semi eða hvað. En það eru alltaf
einhverjir þannig,“ segir Eva Björg
sem reynir að leiða slíkt hjá sér og
heldur sínu striki.
„Já, já, já. Ég er byrjuð á annarri
sögu sem verður vonandi bara í besta
falli gefin út á næsta ári. Þannig að
það er spennandi,“ segir grunnskóla-
stelpan sem lét rithöfundadrauminn
rætast og ætlar ekki að láta fyrsta
tækifærið verða það síðasta. n
Síðasti séns framtíðarinnar
Eva Björg byrjaði að skrifa og skrifa innblásin af umræðunni um loftslagsvána og tveimur árum síðar er bókin Síðasta
tækifærið komin út og inn á sölulista barnabóka. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Heiða Rún Jónsdóttir myndskreytir
ævintýri Söndru og Karenar.
MYND/LEÓ BÓKAÚTGÁFA
Styður við bakið á þér!
Lýkur í dag
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Amerískir dagar
Sealy WASHINGTON
heilsurúm með classic botni
Virkilega vönduð dýna og hentar fólki á öllum aldri.
Washington heilsudýnan er með einstaklega vönduðu tvöföldu
pokagormakerfi, kantstyrkingum og vandaðri og þægilegri
yfirdýnu. Gormakerfinu er skipt upp eftir svæðum þannig að það
er með meiri stuðning þar sem við erum þyngri eins og öxlum og
mjöðmum. Lítil sem engin hreyfing finnst milli rekkjunauta.
Yfirdýnan (topperinn) er samsett úr fjórum lögum og þar á meðal
er gel lag (gel infused memory foam) sem lagast algjörlega
að líkamanum og heldur honum í réttri stellingu alla nóttina.
Áklæðið utan um dýnuna er silki og bómullarblanda sem andar
einstaklega vel sem og gefur extra mýkt. Millistíf dýna.
Val um svart eða hvítt PU leður
eða grátt áklæði á Classic botni.
20%
AFSLÁTTUR
Amerískir
DAGAR
Sealy Washington fæst í eftirtöldum stæðum:
160/180/200 x 200 og 192 x 203 cm
Verðdæmi 160 x 200 cm m/Classic botni og löppum
Fullt verð: 269.900 kr. AD tilboð: 215.920 kr.
56 Lífið 11. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ