Fréttablaðið - 11.09.2021, Page 112
frettabladid.is 550 5000RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf.DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is
Óttars
Guðmundssonar
n Bakþankar
Á liðnum árum hafa margir lýst
yfir áhyggjum vegna íslenskunnar.
Unga fólkið lifir og hrærist í net-
heimum í ensku málumhverfi og
lendir stöðugt í vandræðum með
einföldustu tjáningu og grípur þá til
enskunnar. Aðrir halda því fram að
ekkert sé að óttast. Þetta sé eðlileg
þróun lifandi tungumáls sem er
stöðugt að breytast.
Ég var á dögunum á ferðalagi um
Norðurland ásamt stórum hópi
fullorðins fólks. Við skoðuðum
gamla kirkju og byggðasafnið sendi
ungan mann til að sýna guðshúsið.
Honum kom á óvart að um tóma
Íslendinga væri að ræða og sagðist
vanari að leiðsegja útlendingum
um helgidóminn.
Hann fór að lýsa því sem fyrir
augu bar og nefndi sérstaklega
„skírnardallinn“ sem væri mjög
gamall. „Altarisspjaldið“ var danskt
en hann vissi ekki aldur þess.
„Pallurinn sem presturinn stæði
á“ var fagurlega málaður en hann
vissi ekki hvaða myndir skrýddu
„pallinn.“ „Spýturnar“ við altarið
voru upprunalegar, sagði ungi
maðurinn. Gamla fólkið kímdi yfir
þessum nafngiftum enda vanara
orðum eins og skírnarfontur,
altaristafla, prédikunarstóll og
grátur um þessa innanstokks-
muni í kirkjunni. Ungi maðurinn
átti greinilega auðveldara með að
segja frá guðshúsinu á ensku og
rak fljótlega í vörðurnar. Það má
þó telja honum það til tekna að
hann reyndi að gefa hlutunum nöfn
þegar íslenskan brást honum.
Ungur leikari sagði í fréttum
nýlega að „allir stólar væru sestir í“
þegar hann vildi segja að setið væri
í öllum stólum. Greinilegt er að fólk
er að reyna að betrumbæta tungu-
málið. Kannski er þetta eðlileg
þróun og öðruvísi íslenska kemur
til með að halda velli þegar hin er
fallin í gleymsku og dá. n
Nýsköpun máls
VEITINGASTAÐURINN
Afmælisréttir
Verslun opin 11-20 – IKEA.is
IKEA Bakarí, Sænska matarhornið og IKEA Bistro opið 11-20
595,- 195,-
Afmæliskjötbollur
og meðlæti Afmælisterta
F Æ I -
©
Inter IKEA System
s B.V. 2021
T LB Ð
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ TILBOÐ
borgarleikhus.is
Miðasala: 568 8000