Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.10.1981, Blaðsíða 4

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.10.1981, Blaðsíða 4
4 FormannaráÓstefna BSRB, sent haldin var 22.—24. sept. s.l. í nýja fundasalnum að Grettisgötu 89 var fjölmennari en nokkru sinni fyrr. Nær allir þeir rúmlega 70 full- trúar, sem þar eiga seturétt mættu. Umræður um aðalmál ráðstefn- unnar, sem var stefnan í kjara- málum, urðu allmiklar, og á köjlum snarpar. Um niðurstöðuna skapaðist svo eining og var meginályktunin sam- þykkt samhljóða. Formannaráðstefna skal haldin þau tvö árin, sem ekki er bandalagsþing. Síðasta ráðstefna var 12.—14. nóv. 1980. Ráðstefnan hófst kl. 10 að morgni þriðjudaginn 22. sept. Fundarstjórar voru Oddur Pétursson. form. Fél. opinberra starfsmanna á Vestfjörðum og Sigurfinnur Sigurðsson, stjórnarmaður í SFR. Ritarar voru Magnús Björgvinsson. Félagi flug- málastarfsmanna og Sigurveig Sigurðar- dóttir, hjúkrunarfræðingur. Skýrsla formanns og reikningar. Það er föst regla, að formaður banda- lagsins flytji á formannaráðstefnu skýrslu urn starfið á liðnu starfsári. Kristján Thorlacius gerði grein fyrir við- aukasamningi bandalagsins frá 11. febr. s.l. um kauphækkun og lengingu samningstíma svo og framkvæmd ýmissa mála og má þar nefna lífeyrissjóðamál, aðild að stjórnum verkamannabústaða, ný lög um lágmarks- hvíld, fæðingarorlof, starfsmenntunarsjóð, o.fl. Einnig rakti hann starf BSRB, m.a. að orlofsheimilamálum, fjölbreyttu fræðslu- starfi og útgáfumálum. Einar Ólafsson, gjaldkeri bandalagsins skýrði reikninga BSRB fyrir 1980. Rekstr- arhagnaður aðalsjóðs var 25 milljónir (gkr.) auk þess, sem hagnaður verslunar og veit- ingahúss að Munaðarnesi varð 5 millj. kr. lðgjöld voru 220 millj. og lagðar voru af því 33 millj. í verkfallssjóð. Orlofsheimilasjóður hafði í tekjur 161 millj. kr. og skilaði 103 millj. kr. reksturs- hagnaði. Skuldir vegna orlofshverfis í Munaðarnesi lækkuðu um 18 milljónir og voru um áramót aðeins 83 milljónir. Samningsre'ttur bcejarstarfs- manna og öryggistrúnaðar- menn. Þessi formannaráðstefna var einkum helguð væntanlegum samningum og því voru færri viðfangsefni tekin fyrir en oft áður. ' ■ \1 v "41 :É l á m | #ji 4 % ! * t. i| FORMANNARÁÐSTEFNA BSRB 1981: Kaupmáttarskerðing aö fullu bætt — jafnlaunastefna Þórhallur Halldórsson, foimaður Bæjar- starfsmannaráðs skýrði frá hugmyndum, sem frart) hafa komið um stofnun vinnu- málasambands sveitarfélaga, sem ætlað væri að annast fyrir þær sveitastjómir, sem þess óska, gerð kjarasamninga við bæjar- starfsmannafélög og verkalýðsfélög. Mál þetta hafði verið rætt á sérstakri bæjar- starfsmannaráðstefnu bandalagsins og kynnti Þórhallur ályktnn hennar, sem birt er annars staðar í blaðinu. — Nokkrar um- ræður urðu um málið og samningsstöðu bæjarstarfsmanna. Kynnt voru af Ólafi Jóhannessyni full- trúa BSRB í stjóm Vinnueftirlits ríkisins drög að reglum um skipulag heilbrigðis- og öryggisstarfsemi innan fyrirtækja. Dreift var þeim hugmyndum, sem fyrir liggja um val öryggistrúnaðarmanna og öryggis- nefnda. — Þegar reglur þessar hafa verið staðfestar af Vinnueftirliti ríkisins, sem er æðsti aðili í þessum efnum, þá má ætla að unnt verði að kjósa þessa fulltrúa starfs- manna hjá ríki og sveitarfélögum, t.d. í október eða nóvember. Ásgarður mun kynna reglumar, þegar þær verða frágengnar. Þá var dreift á formannaráðstefnunni reglum þeim um starfsmannaráð, sem greint er frá annars staðar í blaðinu, svo og fyrstu útreikningum um skattamál. Miklar umrceður um kjaramálin. Meginverkefni þessarar formannaráð- stefnu voru kjaramálin og undirbúningur nýrra kjarasamninga. Bjöm Amórsson, hagfræðingur BSRB, kynnti margvíslegar upplýsingar, sem lagð- ar voru fram á ráðstefnunni um launaþróun undanfarinna ára, samanburð launakjara, launaflokkadreifingu rikisstarfsmanna svo og nýjan grundvöll vísitölureiknings miðað við neyslukönnun 1979—’80. Kristján Thorlacius og Haraldur Stein- þórsson höfðu framsögu um stefnumótun í kröfugerð svo og fundahöld og skoðana-

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.