Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.10.1981, Side 9
9
Kaupmáttarþróun
Tafla þessi sýnir kaupmáttarþróun launa í
efstu þrepum 5. og 13. lfl. miðað við des.
1977. Efri línan sýnir kaupmáttarþróunina
frá mánuði til mánaðar í 5. lfl. (hækkar í 6.
lfl. í ágúst 1980), en sú neðri sýnir þróunina í
13. lfl. Neðst sjáum við mánuðina, en til
hliðanna skerðinguna.
Þróun
kaupmáttar
launa
Kaupmátt launa má reikna á ýmsan máta.
Annað línuritið, sem hér er birt, sýnir kaup-
máttarþróunina í annars vegar 5.—6. launa-
flokki (efri línan) og hins vegar 13. launa-
flokki (neðri línan). Línurítið sýnir okkur
augljóslega hver kjaraskerðingin hefur orð-
ið í þessum launaflokkum miðað við des-
ember 1977. Hér er þó ekki tekið tillit til
launaflokkahækkana, skattabreytinga og
félagsmálapakka.
Hitt línurítið sýnir okkur kaupmáttarþró-
unina frá árinu 1972 í lægsta launaflokki
(efsta línan), 10. neðsta launaflokki (mið-
línan) og efsta launaflokki (neðsta línan).
Bæði línurítin segja okkur, að kaupmátt-
urinn hefur ekki þróast sem skvldi svo og að
baráttan hefur gengið betur í neðstu launa-
flokkunum. Jafnlaunastefnan hefur innan
BSRB semsagt ekki aðeins veríð í orði.
B.A.