Morgunblaðið - 03.04.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.04.2021, Blaðsíða 4
FRÉTTASKÝRING Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Töluverðar tafir og óvissa settu svip sinn á starf verkefnisstjórnar vegna 4. áfanga rammaáætlunar um vernd og orkunýtingu land- svæða. Tafirnar má rekja meðal annars til þess að Alþingi hefur ekki afgreitt 3. áfanga, en verkefn- isstjórn um þann hluta rammáætl- unar skilaði af sér 2016 og er talið að afgreiðsla þess hluta hafi tafist vegna óeiningar innan ríkisstjórn- arflokkanna um virkjunarmál. „Starfsumhverfi verkefnisstjórn- ar og faghópa varð allt annað en að var stefnt í upphafi. Engan grun- aði að þingsályktunartillaga byggð á vinnu við 3. áfanga rammaáætl- unar yrði enn ekki samþykkt af Al- þingi þegar skipunartími verkefn- isstjórnar og faghópa 4. áfanga rynni út – fjórum árum eftir skip- un,“ skrifar Guðrún Pétursdóttir, formaður verkefnisstjórnar 4. áfanga, í formála skýrslu hópsins sem birt var 31. mars. „Þessi dráttur á eðlilegri máls- meðferð er sannarlega ekki í anda laganna um rammaáætlun, enda búa þau ekki yfir neinum leiðbein- ingum um hvernig taka skal á slíkri stöðu. Lagalega var verkefn- isstjórn 4. áfanga rammaáætlunar mjög þröngur stakkur skorinn við þessar aðstæður,“ skrifar hún. Í skýrslunni er einnig að finna drög að tillögum um flokkun virkj- unarkosta. Guðrún segir í formálanum að vegna þeirrar óvissu sem skapaðist um framvindu rammaáætlunar hafi Orkustofnun ekki auglýst eftir nýj- um virkjunarkostum fyrstu rúm tvö ár frá skipun verkefnisstjórn- arinnar, en hún var skipuð til fjög- urra ára 5. apríl 2017. Knappur tími til rannsókna „Í ársbyrjun 2019 sá verkefn- isstjórn sér ekki annað fært en að fara fram á það við Orkustofnun að lýst yrði eftir nýjum virkjunar- kostum til mats. Þegar þeir bárust verkefnisstjórn vorið 2020 var knappur tími til að framkvæma þær rannsóknir sem nauðsynlegar eru til að meta verðmæti viðkom- andi landsvæða og hin margvíslegu áhrif sem virkjanirnar kunna að hafa á þau, á aðra nýtingarmögu- leika svæðanna, og á viðkomandi samfélög. Í ljósi þessa varð að samkomu- lagi milli ráðherra umhverfis- og auðlindamála og verkefnisstjórnar að hún stefndi að því á skipunar- tíma sínum að ljúka mati og fyrstu flokkun þrettán virkjunarkosta sem tækir voru til meðferðar,“ út- skýrir Guðrún. Fram úr tímaramma Niðurstaða verkefnisstjórnar vegna 3. áfanga var afhent ráð- herra 2016 en þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða var lögð fyrir Alþingi 30. nóvember á síðasta ári og var afgreidd til umhverfis- og sam- göngunefndar 26. janúar. „Menn eru komnir langt fram úr þeim tímaramma sem lögin til- greina. Það er búinn að vera mikill vandræðagangur síðan 2016 og ég hef tengt þetta við afgreiðslu frumvarpsins um hálendisþjóð- garð. Mér þykir fráleitt að nálgast málið með þeim hætti að það sé hægt að leiða hálendisþjóðgarðs- málið til lykta áður en rammaáætl- unin er kláruð. Í henni eru verk- efni sem eru innan fyrirhugaðra þjóðgarðsmarka,“ segir Bergþór Ólason, formaður umhverfis- og samgöngunefndar og þingmaður Miðflokksins. „Ég hef gagnrýnt það hversu seint rammaáætlun kemur fram. Við erum á vorþingi síðasta þings kjörtímabilsins og er- um núna að fá málið til meðferðar í nefndinni. Það er ekki gott,“ bætir hann við. Til aukinna sátta „Ég get ekki annað gert en að hafa skilning á þeim sjónarmiðum sem verkefnisstjórnin kemur með,“ segir Bergþór sem telur ábyrgð á stöðu mála liggja hjá Guðmundi Inga Guðbrandssyni, umhverfis- og auðlindaráðherra, og umhverf- isráðuneytinu. „Það er alveg ljóst að rammaáætlunarferlið er allt í uppnámi. Það er búið að eyði- leggja þessa leið sem var mótuð á sínum tíma til þess að reyna að ná sátt um hvernig ákvarðanir séu teknar um hvaða virkjanakostir eru settir í framkvæmdaferli og hverjir ekki. Þetta var ágæt og skynsamleg nálgun sem átti að leiða til aukinna sátta í samfélag- inu.“ Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðar- dóttur hafði frumkvæði að lögum um verndar- og orkunýtingaráætl- un og var frumvarp Katrínar Júl- íusdóttur, þáverandi iðnarráð- herra, samþykkt á Alþingi árið 2011. Bergþór segir umhverfisráð- herra í sömu ríkisstjórn, Svandísi Svavarsdóttur, hafa byrjað að grafa undan fyrirkomulaginu árið 2012 þegar hún hóf að eiga við til- lögur verkefnisstjórnarinnar sem þá starfaði. „Þá byrjuðu undirstöð- ur rammaáætlunarferlisins að veikjast. Síðan hefur þetta jafnt og þétt farið í þá áttina að formið, og það verkfæri sem rammaáætlun átti að vera, sé að verða ónýtt.“ Tímabært að leita annarra leiða Bergþór vísar í orð Guðna A. Jóhannessonar orkumálastjóra máli sínu til stuðnings. Guðni sagði í jólaerindi sínu tímabært að leggja af rammaáætlunarkerfið. „Ég held við verðum að gera okk- ur ljóst að allt þetta ferli er orðið langur erfiður draumur eða mar- tröð. Það er kominn tími til þess að vakna upp frá þessu og finna nýjar leiðir,“ skrifaði Guðni. „Það er búið að eyðileggja þetta verklag,“ fullyrðir Bergþór. „Það sem fer í verndarhluta áætlunar- innar er varið til framtíðar, en það sem fer í nýtingarhluti er enn þá deilt um. Þannig að þau verkefni sem er mikil pólitísk samstaða um og eiga að fara í framkæmd, þau lenda í óteljandi hindrunum á seinni stigum. Eitt gott dæmi er Hvalárvirkjun fyrir vestan.“ Spurður hvort hann telji meiri- hlutann ósamstiga í virkjunarmál- um og að það hafi tafið afgreiðslu málsins, svarar Bergþór: „Mér þykir margt benda til þess að stjórnarflokkarnir hafi mismun- andi áherslur hvað rammaáætlun varðar og það gæti orðið til þess að málið tefjist.“ Reynt var, við vinnslu fréttar- innar, að fá skýringu umhverfis- ráðherra á því að afgreiðsla 3. áfanga hafi tafist eins mikið og raun ber vitni. Ekki náðist í ráð- herra símleiðis eða í gegnum að- stoðarmann hans í gær. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2021 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Lög um verndar- og orkunýtingaráætlun voru samþykkt 2011 og mæla fyrir um að Orkustofnun sendi verkefnisstjórn virkjunarkosti til mats. Verkefnisstjórn, sem skipuð er af ráðherra, skipar faghópa með sér- fræðingum til að fara faglega yfir virkjunarkostina, meta þá með stiga- gjöf og skila rökstuddum niðurstöðum til verkefnisstjórnar. Umhverfis- og auðlindaráðherra skipaði sex manna verkefnisstjórn til fjögurra ára þann 5. apríl 2017. Henni var gert að vinna tillögu fyrir 4. áfanga rammaáætlunar um vernd og orkunýtingu landsvæða. Verkefnisstjórnin vegna 4. áfanga skipaði síðan fjóra faghópa með 21 sérfræðingi alls en auk þeirra lögðu ýmsir sérfræðingar faghópunum og verkefnisstjórn lið. Hlutverk verkefnisstjórnarinnar VERNDAR- OG ORKUNÝTINGARÁÆTLUN Rammaáætlunarferli í uppnámi - Orkustofnun auglýsti ekki eftir nýjum virkjunarvalkostum í tvö ár - Tafirnar sagðar ekki í anda laga - Búið að eyðileggja verklagið sem átti að skapa sátt, segir formaður umhverfis- og samgöngunefndar Ljósmynd/Landsvirkjun Virkjanakostir Stækkun Hrauneyjafossstöðvar var ein þeirra þrettán framkvæmda sem lagt var mat á. Guðrún Pétursdóttir Bergþór Ólason Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Verkefnisstjórninni vegna fjórða áfanga rammáætlunnar bárust 34 kostir um vindorkuver. Hins vegar var það aðeins í fimm tilvikum sem nægileg gögn fylgdu svo hægt yrði að leggja mat á vindorkukostina. Verkefnisstjórnin lætur af störfum 5. apríl og bíða því 29 vindorku- valkostir úrvinnslu næstu verkefn- isstjórnar. Drög verkefnisstjórnarinnar að flokkun virkjunarkosta gera ráð fyrir að þrír virkjunarkostir vegna vindorku fari í nýtingarflokk. Eru það vindmyllugarðurinn í Garpsdal í Reykhólahreppi þar sem 37 myll- ur sem framleiða 130 MW eru fyr- irhugaðar, auk Alviðru í Borg- arbyggð þar sem gert er ráð fyrir 6 vindmyllum sem framleiða 30 MW og Vindheimavirkjun í Hörgár- byggð með 8 til 10 vindmyllur og 25 til 35 MW. Þá er lagt til að hugsanlegt 120 MW vindorkuver með 30 vindmyll- um í Búrfellslundi í Rangárþingi ytra og 27 vindmyllur með 151 MW framleiðslu að Sólheimum í Dala- byggð verði færð í biðflokk. „Þótt vindurinn sé óþrjótandi er land undir vindorkuver það ekki. Landið er hin takmarkaða auðlind í þessu tilfelli. Vindmyllur eru nú um 150 m háar og fara hækkandi. Þær eru því afar áberandi í landslagi og sjást víða að. Vindorkuver munu valda miklum breytingum á ásýnd landsins ef ekki verður varlega far- ið,“ segir í skýrslu verkefnisstjórn- arinnar. Bárust 34 vindorkukostir - Aðeins fimm kostum fylgdu nægileg gögn - Vindorku- garður í Garpsdal í nýtingarflokk - Búrfellslundur í bið Morgunblaðið/Árni Sæberg Vindur Landsvirkjun hefur staðið að þróunarverkefni við Búrfell.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.