Morgunblaðið - 03.04.2021, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.04.2021, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2021 Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 11-16 VÖNDUÐ LJÓS Í ÚRVALI Í dymbilviku fyrir ári, n.t.t. á skír- dag og föstudaginn langa, tók ég mig til og gekk á milli allra kirknanna í pró- fastsdæminu mínu í Reykjavík, byrjaði við Seltjarnarneskirkju og end- aði við Langholtskirkju og hafði þá samtals komið við í 10 kirkjum. Þessi ganga, sem kalla mætti pílagrímagöngu, hafði ákveðið mark- mið og tilgang fyrir mig sem mig langar til að greina frá. En fyrst ber að minna á að dymbilvika í fyrra var á hápunkti Covid-faraldursins í marsbyrjun. Þá voru flest smit, flestir í sóttkví og margir alvarlega veikir. Kirkjurnar voru lokaðar og helgihald lá niðri. En þótt kirkjurnar væru lokaðar var öflug starf- semi í gangi hjá prestum og starfsfólki kirknanna sem fólst m.a. í skipulögðum gæða- samtölum í gegnum síma, eink- um til eldra fólks og einangr- aðra, að ógleymdu alls kyns streymi frá helgistundum, sam- talsþáttum og upptökum frá menningarviðburðum. Þar sem ég sat heima hjá mér fann ég til mikillar og djúprar einsemdar, vanmáttar og söknuðar. Ég saknaði safn- aðarfólks og samstarfsfólks, samsöngs, altarisins og sakra- mentisins. Ég hugsaði með mér: Hvað get ég gert, hvað get ég lagt af mörkum, hvað kann ég, hvað er mér tamt að gera? Þá fór ég út og ákvað að fara til kirkju, ég skyldi stað- næmast að kórbaki hverrar kirkju, sem næst altarinu, þar sem ég er vön að vera. Ég ætl- aði að biðja þarna, eins og ég er vön að gera hinum megin við vegginn, við altarið. Biðja fyrir prestum, starfsfólki, sókn- arnefndarfólki og söfnuðum. Og þetta gerði ég. Á skírdegi var það fyrst Sel- tjarnarneskirkja með unaðs- legri fjallasýn til Akrafjalls, Skarðsheiðar og Esju, þar er öflugt kirkjustarf. Á leiðinni að Neskirkju sungu þrestir og tjaldar og á vegi mínum varð fólk sem ég hafði ekki séð í háa herrans tíð, gamall kennari minn og vinir úr Hagaskóla og minningar streymdu fram með hjálp þessa góða fólks. Það eru englar í Nessókn. Að kórbaki Hallgrímskirkju heyrði ég með innri eyrum mínum voldugan og hrífandi lofsöng kóranna og sá fyrir mér hundruð manna og kvenna sem hafa gengið þar inn og út. Á leiðinni upp í Há- teigskirkju hitti ég litla stelpu með fléttur sem sagði: „Manstu þegar við vorum að skíra bangsana?“ Og þar sem ég signdi mig og bað aftan við kirkjuna sem ég hef þjónað í 28 ár fylltist hjarta mitt friði og þakklæti. Við sjávarsíðuna á leiðinni niður í Dómkirkju kom heimurinn á móti mér svo að segja, Portúgalar, Ítalir, Danir, Þjóðverjar, Englendingar, Kín- verjar. Þeir voru hér sem sagt nokkrir ennþá, ferðamennirnir. Það er makalaust að ganga um götur miðborg- arinnar og heyra öll heimsins tungu- mál og sjá ólíkt fólk – Guði sé lof fyrir útlendingana, ferðamennina sem bera með sér fjöl- breytni mannlífsins í hinum stóra heimi. Þarna var menningin á sínum stað, Þjóðleikhúsið, Harpa og stjórn- sýsla landsins, Arn- arhvoll, Stjórn- arráðshúsið, Alþingi og Ráðhús Reykjavíkur. Að kórbaki Dóm- kirkjunnar, sem var sókn- arkirkja mín og fjölskyldu minnar lengst af, minntist ég sérstaklega allra presta, kvenna og karla, sem þar hafa þegið vígslu sína til sérstakrar köllunar og nam staðar við styttuna af sr. Bjarna Jónssyni sem var verðugur fulltrúi alls þessa fólks sem í Dóm- kirkjunni hefur hlotið prestsvígslu sína en sr. Bjarni þjónaði Dómkirkj- unni á árunum 1910-1951, lengst allra dóm- kirkjupresta, og var þjóðþekkt- ur maður og virtur vegna starfa sinna, t.d. þegar spænska veikin geisaði. Í rigningarsuddanum sem var á föstudeginum langa var búið að flagga í hálfa stöng í kirkjunum. Ég byrjaði við Bú- staðakirkju og þakkaði Guði fyrir hið þróttmikla safn- aðarstarf sem þar hefur verið innt af hendi alla tíð. Á leiðinni í vesturátt blasti Borgarspít- alinn við með Covid-sjúklinga og aðra sjúklinga, lækna, hjúkrunarfólk og sálgæsluþjón- ustu presta og djákna – og svo blessuð Grensásdeildin þar sem kraftaverkin gerast. Að kórbaki Grensáskirkju fann ég áþreif- anlegan bænaranda og nærveru Drottins. Í Laugarneskirkju var verið að streyma guðsþjón- ustu og leikkona las og sókn- arnefndarformaðurinn sinnti kirkjuvörslunni. Á leiðinni í Ás- kirkju laukst upp fyrir mér hvað Laugardalurinn er mikil vin í borginni með grænar grundir, blóm og tré og ung pör að spássera með litlu börn- in sín í vagni. Borgin blasti við í allri sinni fegurð frá litla skotinu að kórbaki Áskirkju, það var gott að tylla sér á bekknum og biðja þar og þakka fyrir trúfasta þjónustu prests og starfsfólks. Langholtskirkja beið mín að lokum, þegar ég var orðin dauðþreytt, en þegar ég sá allan myndarskapinn og snyrtimennskuna við þessa stóru kirkju og mér fannst ég heyra óminn af söng barnanna og unglinganna taka á móti mér hresstist ég öll við. Bara alveg eins og í lífinu yfirleitt. Ég geng inn í kirkjuna, nýt góðs atlætis til líkama og sálar og fer svo aftur þaðan út, margblessuð til að takast á hendur þau verkefni sem lífið færir mér í skaut. Kirkjurnar eru vörður á vegferð okkar á göngunni í gegnum lífið. Við vitum af þeim, þær eru þarna á sínum stað, þær eru heilagar, fráteknar, það stafar góðu frá þeim og fólkið hefur metnað til að bera fyrir þeirra hönd. Kirkjan til fólksins Vörður á vegferð Hugvekja Helga Soffía Konráðsdóttir Höfundurer sóknarpretur í Há- teigskirkju og prófastur í Reykja- víkurprófastsdæmi vestra. Helga Soffía Konráðsdóttir Kirkjurnar eru vörður á vegferð okkar á göng- unni í gegnum lífið. Þær eru þarna á sínum stað, þær eru heilagar, það stafar góðu frá þeim. Við erum orðin tíu ára og hlökkum til næstu tíu ára. Að fylla fyrsta tuginn er stórt fyrir alla og fyr- ir okkur hjá Specialist- erne er það líka svo. Við erum gríðarlega stolt af því að vera búin að sanna tilverurétt okkar og við erum komin til að vera. Vera til staðar fyrir ein- staklinga á einhverfurófinu, 18 ára og eldri, sem kerfið hefur e.t.v. ekki sinnt sem skyldi. Sjálfseignarstofnunin Specialist- erne á Íslandi var stofnuð haustið 2010, meðal annars í samstarfi við Þjónustumiðstöð Laugardals og Háa- leitis og með stuðningi í gegnum Leonardo-menntaáætlun ESB. Formleg opnun starfseminnar var síðan á alþjóðlegum degi einhverfu, 2. apríl 2011. Frá þeim tíma hafa um 166 einstaklingar verið hjá okkur í lengri eða skemmri tíma. Okkur hef- ur á starfstímanum tekist að finna 75 störf fyrir 54 einstaklinga, en flestir þeirra höfðu enga eða litla reynslu af vinnumarkaði. Þótt markmiðið hafi í upphafi ver- ið, öðru fremur, að skapa atvinnu- tækifæri fyrir skjólstæðinga okkar hefur áhersla á félagslega þáttinn orðið meiri og meiri eftir því sem tím- inn hefur liðið. Við höfum lagt áherslu á að hjálpa einstaklingum úr kyrr- stöðu í virkni, að finna styrkleika og hæfileika hvers og eins og finna rétt- an farveg þeirra inn á vinnumark- aðinn. Með því að rækta styrkleika, frekar en að einblína á veikleika, er hægt að skapa atvinnutækifæri fyrir mun stærri hóp en í dag er að finna á vinnumarkaði. Stjórnendur og starfs- menn fyrirtækja gætu prófað að hugsa störf í fyrirtækjum á nýjan hátt, t.d. hvernig hægt sé að skapa, í auknu mæli, fleiri störf fyrir starfs- menn með sérstaka hæfileika eða skerta starfsorku. Síðustu ár höfum við komið fjölda einstaklinga sem hafa verið langtíma- atvinnulausir í vinnu. Þakklæti og hvatning aðstandenda þeirra hvetur okkur áfram, en hér eru dæmi um hvatningu til okkar: Úr þakkarbréfum foreldra til Specialisterne „Erum Specialisterne ævinlega þakklát fyrir þeirra miklu vinnu fyrir einstaklinga á einhverfurófi.“ „Það var ýtt undir þroska og sjálfs- álit hjá mínum unglingi.“ „Specialisterne er stór þáttur í framförum dóttur okkar.“ „Specialisterne hafa opnað nýja mikilsverða möguleika sem byggja þarf á til framtíðar.“ „Mikill sigur fyrir son okkar að geta verið á vinnumarkaði, fá laun og borga skatta og skyldur.“ „Aðkoma Specialisterne hefur haft afgerandi og ómetanlega þýðingu fyrir unga einstaklinga á einhverf- urófi sem eru í atvinnuleit.“ „Specialisterne hafa hjálpað ein- staklingum á einhverfurófi til auk- inna lífsgæða.“ „Markmiðið hefði ekki náðst án stuðnings Specialisterne.“ „Specialisterne opnuðu á tækifæri fyrir dóttur okkar til að komast á hinn almenna vinnumarkað.“ „Okkar ósk er að Specialisterne geti starfað áfram um ókomin ár.“ Við vonum að þessi hvatningarorð verði þér líka hvatning til að leggja málstað okkar lið og styðja okkur inn í framtíðina. Fyrir hönd Specialisterne á Íslandi þökkum við styrktar- og samstarfs- aðilum okkar, en þeir stærstu eru Vinnumálastofnun, Virk, Reykjavík- urborg og önnur sveitarfélög á höf- uðborgarsvæðinu og Reitir fasteigna- félag. Þá hefur fjöldi fyrirtækja veitt skjólstæðingum okkar atvinnutæki- færi og það þökkum við sömuleiðis vel fyrir. Fjöldi einstaklinga hefur sömuleiðis stutt okkur fjárhagslega svo eftir er tekið. Næsta haust mun- um við bjóða til afmælisviðburðar sem óhjákvæmilega er ekki hægt að halda núna. Eftir Bjarna Torfa Álfþórsson og Hjört Grétarsson » Specialisterne fagna 10 ára afmæli og líta yfir farinn veg Hjörtur Grétarsson Bjarni er framkvæmdastjóri Specia- listerne á Íslandi. Hjörtur er stjórn- arformaður Specialisterne. bta@specialisterne.com Bjarni Torfi Álfþórsson Specialisterne á Íslandi 10 ára ÁRBÆJARKIRKJA | Vegna samkomutakmarkana verður helgistund á Föstudaginn langa streymt á heimasíðu kirkjunar kl. 11. Páskadagsmorgunn kl. 8, streymt frá helgistund á heimasíðu kirkj- unnar. Prestur. Þór Hauksson, organisti Krizstina K. Szklenár. Félagar úr kór Árbæjarkirkju syngja. BÚSTAÐAKIRKJA | Páskadagur. Hátíðarmessur kl. 8 og 9. Hólmfríður djákni og sr. Pálmi annast þjónustu með kór og Jónasi Þóri. 55 manns geta komið í hvora messu og verið í tveimur hólfum í kirkju og safnaðarheimili. Fólk er beðið að skrá sig með tölvupósti palmi@kirkja.is og eða í síma Bústaðakirkju 553 8500 Annar páskadagur fermingarmessur kl. 10.30 og 12.00 GRENSÁSKIRKJA | Páskahelgistund á FB-síðu Grensáskirkju og You- tube-rásinni Fossvogsprestakall. Sr. María G. Ágústsdóttir og Daníel Ágúst Gautason djákni þjóna ásamt Ástu Haraldsdóttur kantor. Ein- söngvari er Marta Kristín Friðriksdóttir. Þriðjudagur: Kyrrðarstund kl. 12. Fimmtudagur: Núvitundarstund kl. 18.15-18.45, einnig á netinu. HOLTASTAÐAKIRKJA Í LANGADAL | Á annan í páskum kl. 13 verður fermingarmessa í Holtastaðakirkju. Fermdur verður Einar Pálmi Bjart- marsson. Við syngjum saman við undirleik Hugrúnar Sifjar Hallgríms- dóttur organista, Vanessa leikur á þverflautu. SELTJARNARNESKIRKJA | Páskadagsmorgun kl. 8 er hátíðarhelg- istund í streymi á Facebook-síðu Seltjarnarneskirkju. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Þóra H. Pas- sauer syngur. Fólk þarf að hringja frá kl. 7 og skrá sig í síma 561-1550. Tvö sóttvarnahólf, hvort fyrir 30 manns. VÍDALÍNSKIRKJA | Páskadagur, 4. apríl. kl. 8. Hátíðarstreymi á Face- book-síðu Vídalínskirkju. Sr. Hans Guðberg Alfreðsson prófastur flytur hugvekju. Einsöngur: Gissur Páll Gissurarson. Eiríkur Örn Pálsson leikur á trompet. Organisti: Jóhann Baldvinsson. Streymi kl. 12: Páskahlátur – gamansögur. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir og sr. Bolli Pétur Bollason segja gleði- og gamansögur. Messur á morgun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.