Morgunblaðið - 03.04.2021, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2021
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Á dögunum var varðskipið Týr
tekið niður úr Slippnum í Reykja-
vík, þar sem það hafði verið í rúm-
an mánuð. Unnið var að við-
gerðum og greining gerð á
skemmdum. Týr liggur nú við
Faxagarð í Gömlu höfninni.
Að sögn Ásgeirs Erlendssonar,
upplýsingafulltrúa Landhelg-
isgæslunnar, var lokað fyrir skut-
pípu annarrar skrúfu skipsins og
er því aðeins önnur aðalvél þess í
lagi.
„Tekin hefur verið ákvörðun um
að skipið verði lagað til bráða-
birgða svo það geti að einhverju
leyti gagnast í sumar meðan beðið
er eftir varðskipinu Freyju. Þá er
einnig ljóst að skipið verður ekki
notað yfir vetrarmánuðina í núver-
andi ástandi,“ segir Ásgeir.
Alvarleg bilun kom í ljós
Þegar Týr var tekinn upp í
Slippinn í Reykjavík í janúar kom
í ljós alvarleg bilun í aðalvél skips-
ins. Landhelgisgæslan átti ekki
nauðsynlega varahluti, smíði
þeirra talin tímafrek og ljóst að
ekki yrði um varanlega viðgerð að
ræða. Einnig kom í ljós við
slipptöku Týs í janúar að tveir af
tönkum skipsins eru ónýtir sökum
tæringar og sjókælikerfi skipsins
lekur. Slíkur leki var talinn ógna
öryggi skips og áhafnar. Því var
ljóst að grípa varð til skjótra við-
bragða. Sem kunnugt er tók rík-
isstjórnin þá ákvörðun á fundi sín-
um 5. mars sl., þegar þessi staða
varð ljós, að kaupa notað skip sem
komi í stað Týs við gæslustörf.
Nýja skipið mun fá nafnið Freyja.
Starfshópur þriggja sérfræð-
inga, sem skipaður er fulltrúum
dómsmálaráðuneytis, Landhelg-
isgæslunnar og Ríkiskaupa, vinnur
að undirbúningi og framkvæmd
kaupanna. Landhelgisgæslan gerir
ráð fyrir að forval verði auglýst á
næstu dögum. Fram kom í til-
kynningu ríkisstjórnarinnar að
staða á mörkuðum fyrir kaup á
nýlegum skipum, t.d. þjón-
ustuskipum úr olíuiðnaðinum, sé
talin einkar góð um þessar mund-
ir.
Hægt verði að fá gott skip fyrir
1-1,5 milljarða króna. Stefnt er að
því að nýtt varðskip verði komið í
þjónustu Landhelgisgæslunnar í
vetrarbyrjun 2021.
Fyrir liggur að úthaldsdagar
varðskipsins Þórs verða töluvert
fleiri á þessu ári en áætlanir gerðu
ráð fyrir vegna þeirrar stöðu sem
upp er komin vegna alvarlegrar
bilunar í Tý. Áhöfnin á Tý hefur
þegar verið færð yfir á varðskipið
Þór og mun sinna gæslustörfum
við landið á móti áhöfninni á Þór.
Önnur aðalvél Týs er ónothæf
- Gert við skipið til
bráðabirgða svo það
geti gagnast við
gæslustörf í sumar
Morgunblaðið/sisi
Kominn úr slipp Varðskipið Týr liggur nú við Faxagarð í Reykjavíkurhöfn. Gert verður við skipið til bráðabirgða svo það geti gagnast við gæslu í sumar.
Rauðarárstígur 12–14, sími 551 0400 · www.uppbod.is
LUMAR ÞÚ Á GULLMOLA?
Við leitum að málverkum fyrir fjársterka aðila
Þeir listamenn sem koma til greina eru Jóhannes S. Kjarval, Þórarinn B. Þorláksson,
Jón Stefánsson, Svavar Guðnason, Jóhann Briem, Alfreð Flóki, Þorvaldur Skúlason,
Karl Kvaran og Kristján Davíðsson.
Áhugasamir geta haft samband við
Jóhann Ágúst Hansen, sími 8450450, netfang hansen@myndlist.is
Sólveig Vilhjálmsdóttir, sími 6162530, netfang solveig@myndlist.is