Morgunblaðið - 03.04.2021, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 03.04.2021, Blaðsíða 20
allra íslenskra kauphallarfyrir- tækja á síðasta ári. Jón G. Hauks- son ritstýrir tímaritinu og er jafnframt útgef- andi þess. Hann segir þá breyt- ingu áberandi á milli ára að nær allir innlánsreikningar bankanna báru neikvæða raunávöxtun á síð- asta ári en aðeins þriðjungur þeirra árið 2019. Hafði þar mest áhrif að verðbólga hækkaði en á sama tíma lækkuðu stýrivextir Seðlabankans og fóru úr 3% í ársbyrjun 2020 niður í 1% og síðar 0,75%. „Verðbólga ársins mældist 3,5% og því neikvæð ávöxt- un á bankainnistæðum sem báru lægri vexti en það.“ Verðtryggðir innlánsreikningar allra banka voru með jákvæða raun- ávöxtun en þar sem fjármagns- tekjuskatturinn er einnig lagður á verðbæturnar þá varð raunávöxtun þessara reikninga neikvæð um brot af prósenti þegar áhrif skatta eru tekin með. Eina undantekningin á þessu eru þrír af fjórum verð- tryggðum innlánsreikningum Kviku sem skiluðu 0,17 til 0,25% raun- ávöxtun á liðnu ári. Skattlagt þótt raunvirði rýrni Jón segir svipaða sögu að segja af öðrum löndum. Um allan heim hafa seðlabankar lækkað stýrivexti í þeirri von að hvetja til lántöku og fjárfestinga í atvinnulífinu og þann- ig örva hagkerfin til að vega upp á móti samdráttaráhrifum kórónuveirufaraldursins. Lægri stýrivextir hafi alla jafna bein áhrif á innlánsvexti. Hann segir þróun síðasta árs líka vekja upp spurn- ingar um hvernig fjármagnstekju- skattur er lagður á vexti jafnvel þótt raunvirði bankainnstæða hafi rýrnað vegna verðbólgu. Hjá bönkunum fjórum var versta raunávöxtun innlánsreikninga - 3,33%, s.s. á almennum tékk- areikningum. Sá reikningur sem skilaði skástri ávöxtun hjá Arion banka var með -0,11% raunvexti, hjá Íslandsbanka var það -0,20%, hjá Landsbankanum -0,15% en hjá Kviku jákvæðir raunvextir upp á heil 0,25% eins og fyrr var getið. Aðra sögu er að segja af þróun verðbréfasjóða sem í langflestum tilvikum báru jákvæða raunávöxtun. Voru það einkum sjóðir tengdir við innlend og erlend hlutabréf sem flugu með himinskautum. Þannig skilaði t.d. best rekni sjóður Akta 48,86% raunávöxtun eða 37,37% raunávöxtun eftir að fjármagns- tekjuskattur er dreginn frá. Hjá Ís- landsbréfum var það sjóðurinn EQUUS-hlutabréf sem kom best út með 37,60% raunávöxtun en 28,58% eftir skatt og hjá Íslenskum verð- bréfum bar sjóðurinn Erlent hluta- bréfasafn 45,62% raunávöxtun eða 34,84% eftir skatt. Er rétt að taka fram að fjár- magnstekjuskattur er reiknaður ár- lega af vöxtum bankainnistæða en skattar á hagnað verðbréfasjóða eru VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Tímaritið Fjármál og ávöxtun kom út fyrr í vikunni. Er þetta í fjórða skiptið sem tímaritið er gefið út en þar má finna ítarlegt yfirlit yfir ávöxtun allra þeirra innlánsreikn- inga sem í boði eru hjá íslenskum bönkum auk ávöxtunar sjóða þeirra verðbréfafyrirtækja sem starfa í landinu. Þessu til viðbótar inniheldur tímaritið samantekt á þróun hluta- bréfaverðs yfir síðustu tólf mánuði og yfirlit yfir helstu rekstrartölur ekki greiddir nema þegar hagnaður er innleystur. Hlutabréf á fleygiferð Jón segir hlutafjáreigendur geta unað vel við sinn hag og hefur hlutabréfaverð einstakra félaga í Kauphöllinni hækkað verulega. Í tímaritinu má finna yfirlit yfir gengi hlutabréfa frá því í mars í fyrra, eft- ir að gengi allra félaga tók væna dýfu vegna kórónuveirufaraldurs- ins, fram að miðjum mars í ár. Hækkunin er allt að því ævintýra- leg. Marel styrktist um rösklega 82%, Arion banki um nær 126%, Síminn um ríflega 108%, Festi um rúmlega 58%, Eik um 50% og Sjóvá um 130%, TM um nærri 160% og Kvika banki um 175% svo aðeins nokkur dæmi séu nefnd. Úrvalsvíst- ala Kauphallarinnar hækkaði um 26% á 12 mánaða tímabili frá 4. jan- úar 2020 en eina félagið sem lækk- aði í verði á þessu tímabili var Ice- landair sem veikist um nærri 56%. Jón segir það í samræmi við hefð- bundnar hagfræðikenningar að lægri stýrivextir leiði til hækkunar hlutabréfaverðs enda færi fjárfestar peninga sína frá bankainnistæðum út á verðbréfamarkaðinn í von um betri ávöxtun. Þróun hlutabréfa er þó áhugaverð í ljósi þess að hag- tölur hafa ekki verið góðar; lands- framleiðsla dregist saman og at- vinnuleysi aukist verulega. „Virðist að töluverð bjartsýni sé um rekstr- arhorfur þessara félaga þrátt fyrir þau áhrif sem kórónuveirufaraldur- inn hefur haft,“ útskýrir Jón. Þá hækkaði fasteignaverð á höf- uðborgarsvæðinu um 8% í fyrra og segir Jón að þar spili væntanlega saman lágir vextir og takmarkað framboð á eignum. Þegar vextir leita niður á við minnkar greiðslu- byrði lána og getur gert fasteigna- kaupendur viljugri til að hækka til- boð sín í þær eignir sem koma á markað. Í árslok 2019 var eignastaða ís- lenskra heimila þessi: 5.730 millj- arðar króna voru bundnir í fast- eignum, 830 milljarðar í bankainnistæðum, 560 milljarðar í verðbréfum og 320 milljarðar í bíla- flotanum. Raunávöxtun nær allra innlánsreikn- inga neikvæð - Stýrivextir, verðbólga og fjármagnstekjuskattur leiddu til þess að innistæður í íslenskum bönkum rýrnuðu að raunvirði Lægð Hlutabréf flugu hátt en inn- lánsreikningar áttu ekki gott ár. Morgunblaðið/Golli Jón G. Hauksson 20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2021 3. apríl 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 126.31 Sterlingspund 173.79 Kanadadalur 100.18 Dönsk króna 19.913 Norsk króna 14.818 Sænsk króna 14.466 Svissn. franki 133.78 Japanskt jen 1.1406 SDR 178.97 Evra 148.1 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.6699 Hrávöruverð Gull 1715.85 ($/únsa) Ál 2212.5 ($/tonn) LME Hráolía 64.13 ($/fatið) Brent IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 Litur: Svartur/Dark Ash Walnut að innan (einnig til svartur).10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flott- asta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleirra. Samlit- aðir brettakantar, heithúðaður pallur með gúmmimottu, sóllúga. VERÐ 13.380.000 m.vsk 2021 GMC Denali Ultimate 2500 Litur: White Frost/Dark Ash Walnut að innan. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleirra. Samlitaðir brettakantar, heithúðaður pallur með gúmmimottu, sóllúga. VERÐ 13.480.000 m.vsk 2021 GMC Denali Ultimate 2500 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Víninnflytjandinn Sante ehf. og vindlainnflytjandinn ST ehf. hafa sent Neytendastofu kvörtun vegna notkunar Fríhafnarinnar ehf. á nöfnunum „Duty Free“ og „Frí- höfnin“. Í kvörtuninni, sem útbúin var af lögmannsstofunni LEX og send Neytendastofu á fimmtudag, er gerð sú krafa að Fríhöfninni ehf. verði bannað að nota umrædd nöfn ásamt lénunum www.duty- free.is og www.frihofn.is í tengslum við auglýsingar og sölu á áfengi og tóbaki, auk þess að vera gert að greiða stjórnvaldssekt fyr- ir brot á ákvæðum laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðs- setningu. Er krafan sett fram með þeim rökum að tóbak og áfengi sem selt er í tollfrjálsum verslunum beri lækkað áfengis- og tóbaksgjald. Áfengið sem selt er í verslunum Fríhafnarinnar ber 10% af fullu áfengisgjaldi og tóbaksvörur 40% af fullu tóbaksgjaldi. Greiddi Frí- höfnin samtals um 673,5 milljónir króna í áfengis- og tóbaksgjöld ár- ið 2019 og um 693,7 milljónir árið þar á undan. „Varnaraðili hefur þannig rekið starfsemi sína undir merkjunum „Duty Free“ og „Fríhöfn“ þrátt fyrir að [hafa] á sama tíma greitt hundruð milljóna ár hvert í áfeng- is- og tóbaksgjöld sem [Fríhöfnin ehf.] hefur innheimt í gegnum vöruverð í verslunum sínum. Þeg- ar af þeirri ástæðu er ljóst að verslanir varnaraðila eru ekki verslanir með tollfrjálsan eða „duty free“ varning að þessu leyti,“ segir í kvörtuninni. Telja Sante ehf. og ST ehf. að með þess- um nafngiftum hafi neytendur ver- ið blekktir um árabil og Fríhöfnin ehf. skapað sér samkeppnisforskot á óréttmætum grundvelli. Guðjón Helgason, upplýsinga- fulltrúi Isavia, móðurfélags Frí- hafnarinnar, segir kvörtunina ekki enn komna á borð félagsins en hún verði skoðuð þegar hún berst og síðan í framhaldinu niðurstaða Neytendastofu. ai@mbl.is Segja Fríhöfnina blekkja neytendur - Gjöld lögð á „tollfrjálsar“ vörur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.