Morgunblaðið - 03.04.2021, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2021
VIÐTAL
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Hinn nýi dráttarbátur Faxaflóa-
hafna, Magni, er enn í Hollandi en
þar hefur hann verið til viðgerða
síðan í júlí í fyrra, eða í átta mán-
uði. Nýi Magni er 32 metra lang-
ur, 12 metra breiður og með tvær
2.025 kW aðalvélar (samanlagt
6.772 hestöfl). Togkraftur drátt-
arbátsins er 85 tonn áfram og 84
aftur á bak. Umsamið verð var
rúmur milljarður króna.
Stjórn Faxaflóahafna ákvað árið
2018 að láta smíða nýjan og öfl-
ugan dráttarbát. Mikil þörf var
talin á stærri báti í þjónustu hafn-
anna við Faxaflóa, m.a. vegna þess
að skemmtiferðaskip sem hingað
koma verða sífellt stærri. Þá hefur
Eimskip nýlega tekið í þjónustu
sína tvö öflug og stór gámaskip.
Magni kom til Reykjavíkur-
hafnar fimmtudaginn 27. febrúar
2020 eftir rúmlega 10 þúsund sjó-
mílna siglingu frá Víetnam, þar
sem báturinn var smíðaður, en
skipasmíðastöðin er í eigu Damen
Shipyards í Hollandi. Fljótlega
kom í ljós að ekki var allt með
felldu varðandi smíði skipsins og
ljóst að mikilla endurbóta var
þörf. Spurningar hafa eðlilega
vaknað um hvernig stendur á því
að rótgróin skipasmíðastöð láti frá
sér slíkan gallagrip.
Morgunblaðið lagði nokkrar
spurningar fyrir Magnús Þór Ás-
mundsson, hafnarstjóra Faxaflóa-
hafna, en hann tók við starfinu í
ágúst 2020.
- Hver er staðan á núna? Stefnt
var að því að ljúka endurbótum á
bátnum í október sl. en Magni er
enn þá í Hollandi.
„Starfsmenn Faxaflóahafna fóru
til Hollands í nóvember til að fara
yfir verkið og vera viðstaddir próf-
anir. Þá hafði ekki tekist að bæta
úr öllum ágöllum og var því bátn-
um haldið áfram í Hollandi á með-
an bætt væri úr því. Ástand vegna
Covid-19 í Hollandi hefur jafn-
framt tafið framgang verksins. Við
gerum nú ráð fyrir að prófanir fari
fram í Hollandi seinni hluta maí að
viðstöddum fulltrúum Faxaflóa-
hafna og ef allt gengur að óskum
að Damen sigli Magna til Íslands
og afhendi hann um miðjan júní.
Fulltrúar Faxaflóahafna verða
ekki sendir til Hollands á meðan
tvísýnt er með ástand Covid-19,
eins og raunin er í dag, en farið
verður utan í úttekt við fyrsta
mögulega tækifæri. Á meðan við-
gerð stendur yfir á Magna hafa
Faxaflóahafnir afnot af öðrum
dráttarbát frá Damen, Phoenix.“
- Hvaða endurbætur var ráðist í
og voru þær umfangsmeiri en upp-
haflega var talið?
„Eftir komu til Hollands kom í
ljós að viðgerðin yrði umfangs-
meiri en talið var í upphafi. Helstu
ágallar voru glussaleki á framspili,
sem síðar var endurnýjað, glussa-
leki á afturspili sem síðar var tek-
ið í land og yfirfarið frá grunni, af-
rétting aðalvéla, staðbundinn
titringur, óhreinindi í eldsneyt-
iskerfi og óeðlilegur gangur í
ljósavélum.“
- Fram hefur komið að Damen
beri allan kostnað. Hafa Faxaflóa-
hafnir skoðað möguleika á skaða-
bótum?
„Damen tekur á sig allan kostn-
að við viðgerðina og Faxaflóahafn-
ir hafa afnot af öðrum dráttarbát
frá Damen á meðan. Skaðabótamál
er ekki í skoðun að svo komnu
máli. Við höfum komist að ásætt-
anlegu samkomulagi við Damen
sem varðar lengingu á ábyrgð-
artíma.“
- Mun fara fram skoðun á því
hvers vegna svona margt fór úr-
skeiðis við smíðina, þrátt fyrir öfl-
ugt eftirlit erlendra skoðunarfyr-
irtækja?
„Magni var smíðaður af Damen
í Víetnam og tekinn út hjá flokk-
unarfélaginu Bureau Veritas. Sam-
kvæmt úttekt Bureau Veritas
stóðst báturinn allar kröfur sem til
hans voru gerðar af alþjóðareglum
og samkvæmt smíðasamningi. Eft-
ir smíði Magna og úttekt Bureau
Veritas (meðan á smíði stóð og
lokaúttekt að smíði lokinni) var
Magni færður yfir í flokkunar-
félagið Lloyd́s Register, sem var í
samræmi við smíðasamning sem
gerði ráð fyrir að báturinn yrði af-
hentur Lloyd́s Register. Skoðanir
flokkunarfélaga fóru fram áður en
Magni var afhentur og var hann
því eign Damen á þeim tíma-
punkti. Hvers vegna Damen tókst
ekki að smíða eða afhenda Magna
á tilsettum tíma samkvæmt samn-
ingi er til skoðunar hjá þeim og að
svo stöddu munu Faxaflóahafnir
ekki leita frekari réttar eða að-
gerða gagnvart flokkunarfélög-
um.“
- Mun tilkoma endurbætts
Magna breyta miklu fyrir Faxa-
flóahafnir?
„Öryggi starfsfólks og sjófar-
enda við Faxaflóahafnir er alltaf
leiðarljós í þeirri hafnarþjónustu
sem fyrirtækið veitir. Fyrirtækið
gegnir m.a. hlutverki við aðstoð
við skip og björgun. Dráttarbát-
urinn Magni og búnaður hans var
valinn sérstaklega með tilliti til
þess hlutverks sem hann mun
gegna og aðstæðna við hafnir
Faxaflóahafna. Nýlegt dæmi um
mikilvægi öflugs dráttarbáts er
aðstoð lánsbátsins Phoenix við
ferjuna Baldur til hafnar í Stykk-
ishólmi 12. mars sl. Með kaupum á
nýjum dráttarbáti var einnig verið
að bæta viðbragð við olíumengun
með mengunarvarnarbúnaði um
borð ásamt því að auka viðbragð
við eldsvoðum á sjó og í höfn með
öflugum brunabúnaði. Phoenix er
ágætlega búinn bátur og að svo
stöddu erum við vel sett með hann
en það verður gleðiefni að fá
Magna afhentan til að geta sinnt
hlutverki fyrirtækisins og veitt
góða og örugga þjónustu í framtíð-
inni.“
Nýi Magni enn í viðgerð ytra
- Miklir gallar voru í nýjum dráttarbáti sem Faxaflóahafnir fengu í fyrra - Bátnum var siglt til Hol-
lands í júlí þar sem umfangsmikil viðgerð hefur farið fram - Mikilvægt að fá öflugan bát í þjónustu
Morgunblaðið/sisi
Í heimahöfn Magni kom til Reykjavíkur kaldan vetrardag í febrúar 2020. Ekki grunaði menn þá að sigla þyrfti bátnum utan til viðgerða síðar sama ár.
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Í Stykkishólmi Lánsbáturinn Phoenix kom að góðum notum þegar Baldur
bilaði á miðjum Breiðafirði. Þar sannaðist mikilvægi öflugs dráttarbáts.
Salvör Nordal, umboðsmaður barna,
hefur sent bréf til skrifstofu borg-
arstjóra þar sem m.a. er kallað eftir
því að Reykjavíkurborg láti gera
óháða úttekt á viðbrögðum og að-
gerðum vegna ástands á húsnæði
Fossvogsskóla.
Mygla greindist fyrst í húsnæði
Fossvogsskóla árið 2019 og síðan
hefur starfsemi skólans tvívegis ver-
ið færð í annað skólahúsnæð, nú síð-
ast í húsnæði Korpuskóla og hefur
nemendum verið ekið í rútum frá
Fossvogsskóla í Korpuskóla og til
baka að skóladegi loknum.
Reykjavíkurborg upplýsti síðan
um það á miðvikudag, að skoðun á
húsnæði Korpuskóla hafi leitt í ljós
ýmsar skemmdir, þar á meðal
mygluvöxt, sem nauðsynlegt sé að
bregðast við til að tryggja heilnæmi
skólahúsnæðisins. Segir í tilkynn-
ingu Reykjavíkurborgar að unnið
verði að viðgerðum yfir páskana en
ekki náist að ljúka öllum viðgerðum
áður en skólastarf hefst á ný eftir
páskafrí og því verði sérstök áhersla
lögð á að klára það sem snýr að
íverurými nemenda og starfsfólks.
Salvör Nordal hvetur í bréfi sínu
til þess að Reykjavíkurborg láti
framkvæma óháða úttekt á við-
brögðum og aðgerðum skóla- og
borgaryfirvalda vegna ástands hús-
næðis Fossvogsskóla og kynni þær
niðurstöður fyrir skólasamfélaginu.
Þá sé einnig nauðsynlegt að skýrir
verkferlar séu til staðar sem tryggja
rétt og tímanleg viðbrögð þar sem
kveðið er á um þær aðgerðir sem
grípa á til þegar mál sem þessi koma
upp í skólum borgarinnar.
Reykjavíkurborg þurfti að setja
slíka verkferla, kynna þá fyrir
starfsfólki skóla, foreldrum og nem-
endum og gera þá aðgengilega.
Vill óháða úttekt á aðgerð-
um vegna Fossvogsskóla
Morgunblaðið/Eggert
Fossvogsskóli Unnið er að við-
gerðum á húsnæði Fossvogsskóla.
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar